Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fjölskylda og vinir minnast Maggie Smith: „Markar endalok gullins tímabils“

Fjölskylda og vinir minnast Maggie Smith: „Markar endalok gullins tímabils“
Lafði Maggie Smith

Dame Maggie Smith er látin, 89 ára að aldri. Þetta til­kynnti sorg­mæddur sonur hennar í til­kynn­ingu í dag.

Ósk­arsverð­launa­leik­konan og goð­sögnin úr Harry Potter mynd­unum lést frið­sam­lega á sjúkra­húsi með fjöl­skyldu sína sér við hlið á föstu­dags­morgun. Fjöl­skylda hennar sagði að hún væri „miður sín“ yfir miss­inum en þökk­uðu starfs­fólki NHS á Chelsea og Westminster sjúkra­hús­inu.

Í yfir­lýs­ingu sem gefin var út af tals­manni fjöl­skyld­unnar sagði: „Það er með mik­illi sorg að við verðum að til­kynna and­lát  Maggie Smith. Hún lést frið­sam­lega á sjúkra­húsi snemma í morgun, föstu­dag­inn 27. sept­em­ber.“

Yfir­lýs­ingin hélt áfram: „Hún var ákaf­lega hlé­dræg mann­eskja og var með vinum og fjöl­skyldu á dán­ar­stundu. Hún lætur eftir sig tvo syni og fimm ást­rík barna­börn sem eru nið­ur­brotin vegna frá­falls ein­stakrar móður sinnar og ömmu. Við viljum nota tæki­færið til að þakka frá­bæru starfs­fólki Chelsea og Westminster sjúkra­húss­ins fyrir umönnun þeirra og óbilandi góð­vild á síð­ustu dögum hennar. Við þökkum ykkur fyrir öll góðu skila­boðin og stuðn­ing­inn og biðjum ykkur um að virða frið­helgi einka­lífs okkar á þessum tíma.“

Jafnt aðdá­endur sem vinir Smith eru nið­ur­brotnir yfir frétt­unum og kalla hana „breska tákn­mynd“ á meðan vinur hennar, Gyles Brandreth, tísti á X-inu: „Sorg­leg­ustu frétt­irnar: and­lát Maggie Smith markar enda­lok gull­ins tíma­bils og alveg ótrú­legs lífs. Hún var sann­ar­lega frá­bær leik­kona, „ein af þeim stór­kost­legu“ og ein­fald­lega besti félags­skap­ur­inn: vitur, fynd­inn, hvöss, dásam­leg í alla staði og þar af leið­andi óbæt­an­leg. Omid Djalili skrif­aði: „Við höfum misst eina af þeim bestu í dag. RIP Maggie Smith.“

Maggie hlaut Ósk­arsverð­launin fyrir hlut­verk hennar í The Prime of Miss Jean Brodie árið 1969 og árið 1978 fyrir California Suite. Þá var hún til­nefnd til Ósk­arsverð­laun­anna árið 1965 fyrir Othello, 1972 fyrir Travel with My Aunt, 1981 fyrir Room With A View og 2001 fyrir Gosford Park. Þá sló hún ræki­lega í gegn sem pró­fess­or­inn Minerva McGonagall í Harry Potter kvik­mynda­ser­í­unni og sem Violet Crawley í þátt­unum Downton Abbey. Þá lék hún í Downton Abbey kvikn­mynd­unum sem komu út 2019 og 2022.

Þrátt fyrir að vera marg­verð­launuð leik­kona var Maggie þekkt fyrir að vera afar vör um einka­hagi sína og snið­gekk frægð­ina og mis­lík­aði lætin í kringum verð­launa­há­tíðir.

Maggie hafði aldrei talað um áætl­anir sínar um að hætta störfum, en síð­asta mynd hennar, The Miracle Club, kom út á síð­asta ári en þar lék hún á móti leikkonum á borð við Kathy Bates og Lauru Linney. Sonur hennar, leik­ar­inn Chris Larkin sagði árið 2016: „Það eru engar líkur á því að hún fari nokkurn tíma inn á dval­ar­heim­ili. Hún er ein af þeim sem segir: „Farðu með mig til Sviss ef eitt­hvað fer að versna og fer að gleyma nöfnum ykkar“.

Kvik­mynda­gagn­rýn­and­inn Michael Coveney sagði við Mirror um Maggie sem hann hafði skrifað ævi­sögu um: „Maggie sér bara oft­ast ekki hvað er svona gott við það sem hún er að gera.“

Hann bætti við: „Hér er kona sem býr ein í Fulham og á sveita­setr­inu sínu. Hún elskar barna­börnin sín fimm. Hún er sann­ar­lega gott epli (e. good apple), Amma Smith. En hún er bara með örfáa nána fjöl­skyldu­með­limi og vini í kringum sig, þ.á.m. frá­bæra vin­kona sína Judi Dench. Hár­greiðslu­konan hennar hefur klippt hana í 50 ár. Hún keyrir, fær enga hjálp og fer í mat­vöru­búðir. Hún kann að djamma, en það er á bak við luktar dyr. Hún er algjör­lega sjálf­stæð. Hún hatar að tala um sjálfa sig þar sem hún sér bara ekki hvað getur verið áhuga­vert við hana.“

Maggie fædd­ist Margaret Nathalie Smith árið 1934 í Essex og átti tví­bura­bræð­urna Ian og Alistair, sem voru sex árum eldri, sem báðir urðu arki­tektar.

Pabbi hennar Nat var lýð­heilsu­fræð­ingur frá Norð-austur Englandi en mamma hennar, Meg, sem aldrei sá til­gang í leik­list, var þröng­sýnn rit­ari frá Glasgow, Skotlandi, að því er segir í frétt Mirror.

Fjöl­skyldan flutti til Oxford þegar hún var fimm ára og í skól­anum fékk hún við­ur­nefnið The Woozler sem var til­búið nafn vegna þess að hún fékk aðra nem­endur til að hlæja.

Þegar hún var 16 ára komst hún á leik­list­ar­nám­skeið í Oxford Playhouse School of Theatre þar sem hún varð fljótt þekkt sem óvenju­legur gam­an­leik­ari. Hún varð stór­stjarna í hinum fræga grín­hópi The Oxford Revue í Oxford háskól­anum.

Þegar hún var 21 árs kom óað­finn­an­legur tíma­setn­ing hennar í grín­inu pláss á Broadway í Ameríku. En enn stærra tæki­færi fylgdi í kjöl­farið þegar hinn látni stór­leik­ari Laurence Olivier, þá fyrsti leik­stjóri Þjóð­leik­húss­ins í Englandi, sá hana í end­ur­reisn­ar­leik­riti sem heitir The Double Dealer at The Old Vic.

Kvik­mynda­gagn­rýn­and­inn Michael sagði: „Hann vissi strax að hann hefði hitt jafn­ingja sinn, að hún var ein­stök. Hann sagði að allir sem geta leikið grín­hlut­verk svo vel geti líka leikið í harm­leik og hann bauð henni hlut­verk Des­demonu í Othello eftir Shakespe­are. En eftir að hafa fengið hana inn í leik­húsið urðu þau ekki óvinir, heldur atvinnu­keppi­nautar. Aldrei áður hafði nokkur maður á svið­inu verið fljót­ari en hann og nú, að því er virt­ist, var keppni í gangi. Það voru rifr­ildi bak­sviðs. Í einu til­viki sagði Olivier við hana á meðan á Othello stóð: „Ég held að fram­setn­ingin þín sé svo­lítið í ólagi Maggie, elsku hjartað.“ Það var eitt sem þú gætir aldrei sagt um Maggie. Svo næsta kvöld, þegar hann sat kviknakinn í bún­ings­klef­anum og lit­aði sig svartan til að leika Othello, stakk hún höfð­inu inn um hurð­ina og hló: „How now brown cow!“ „Mjög gott Maggie,“ sagði hann „Miklu betra, elskan“.“

Michael hélt áfram: „Það er líka atriði þar sem Othello verður reiður við Des­demonu og lemur hana með skjali. Eitt kvöldið lamdi Olivier Maggie virki­lega og hún rot­að­ist á svið­inu og var borin til hliðar við sviðið. Þegar hún rank­aði við sér sagði hún: „Jæja, þetta er í fyrsta skipti sem ég hef séð ein­hverja hel­vítis stjörnur í Þjóð­leik­hús­inu.“ Sam­keppnin varði ekki að eilífu. Á síð­ari árum voru þau nágrannar í Sussex og urðu miklir vinir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco