Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Michael Schumacher sást opinberlega í fyrsta sinn frá slysinu – Mætti í brúðkaup dóttur sinnar

Michael Schumacher sást opinberlega í fyrsta sinn frá slysinu – Mætti í brúðkaup dóttur sinnar
Michael Schumacher vinstra meg­inn – Gina Schumacher og Iain Bethke -hægra meg­inn

Öku­þór­inn fyrr­ver­andi, Michael Schumacher er sagður hafa mætt í brúð­kaup dóttur sinnar um helg­ina en það er í fyrsta skipti sem hann sést opin­ber­lega frá því að hann slas­að­ist alvar­lega í skíða­slysi fyrir 11 árum síðan.

Michael Schumacher var einu sinni einn af risum akst­urs­í­þrótt­anna en hrika­legt skíða­slys breytti öllu. Nú vinnur fjöl­skylda hans sleitu­laust að því að vernda hann, alveg eins og hann gerði einu sinni fyrir þau.

Á þeim 11 árum sem liðin eru frá því að Formúlu 1 meist­ar­inn varð fyrir hörmu­legum heilaskaða í skíða­slysi, hefur fjöl­skylda hans reist sterkan varn­ar­hring utan um hann.

Það er litið svo á að þessi var­kára nálgun á heilsu­far Michaels hafi valdið nún­ingi innan fjöl­skyld­unnar, þar sem eig­in­kona hans, Corinna Schumacher hefur sýnt mikla var­kárni þegar kemur að því hverjir fá að heim­sækja eig­in­mann hennar.

Hins vegar virð­ist sem Schumacher-fjöl­skyldan hafi nú lækkað varn­ar­veggi sína lít­il­lega, þar sem Michael er sagður hafa komið fram í fyrsta sinn „opin­ber­lega“ síðan 2013.

Greint er frá því í spænska fjöl­miðl­inum Ultima Hora á Mallorca, að hinn 55 ára gamli tveggja barna faðir hafi verið við­staddur brúð­kaup dóttur sinnar Ginu um helg­ina. Hin 27 ára hesta­kona, sem hefur fetað í fót­spor föður síns í íþrótta­heim­inum, er sögð hafa kvænst unnusta sínum Iain Bethke um helg­ina í villu fjöl­skyld­unnar á Mallorca, Puerto De Andratx. Fjöl­skyldan hefur enn ekki tjáð sig um frétt­ina.

Þetta tíma­móta augna­blik markar fyrsta skiptið sem Michael sést opin­ber­lega eftir hið hrotta­lega slys árið 2013 og gæti reynst vera merki um að Corinna sé að mild­ast í nálgun sinni. Regl­urnar voru þó strangar, þar sem brúð­kaups­gestir voru beðnir um að skilja sím­ana sína eftir við dyrnar svo að Michael yrði ekki mynd­aður, en þannig vildi fjöl­skyldan halda hlífi­skyldi yfir einka­lífi hans.

Árið 2013 breytt­ist líf Schumacher-fjöl­skyld­unnar til fram­búðar þegar Michael féll á skíði í frönsku Ölpunum og sló höfð­inu við stein. Hjálm­ur­inn hans tók mest af högg­inu en heila­á­verkar hans voru þrátt fyrir það alvar­legir og eftir að hafa geng­ist undir tvær lífs­nauð­syn­legar aðgerðir var íþrótta­goð­sögn­inni haldið sof­andi mán­uðum saman. Frá upp­hafi slyss­ins hélt fjöl­skyldan upp­lýs­ingum um smá­at­riði varð­andi heilsu­far Michael, frá almenn­ingi, þó svo að nokkrar upp­færslur hafi verið gefnar.

Strax í kjöl­far slyss­ins var stað­fest að Michael væri að berj­ast fyrir lífi sínu. Önnur yfir­lýs­ing var ekki gefin út fyrr en í apríl 2014, þegar fjöl­skyldan deildi því að Michael hefði nokkrum sinnum náð með­vit­und. Sumarið eftir var stað­fest að Michael væri kom­inn úr dái og hefði verið fluttur á end­ur­hæf­ing­ar­stofnun.

Í sept­em­ber 2014 var Michael fluttur aftur heim til fjöl­skyldu sinnar við Gen­far­vatn þar sem Corinna og teymi lækna hlúðu að honum allan sól­ar­hring­inn. Eftir að hafa helgað sig því að standa vörð um reisn eig­in­manns síns hefur Corinna leyft aðeins fáum útvöldum og traustum vinum og ætt­ingjum að heim­sækja hann, en gesti hafa þurft að fara eftir ströngum reglum. Talið er að aðeins örfáir búi yfir upp­lýs­ingum um ástand Michaels og umönnun, sem eru enn hulin dulúð.

Seint á árinu 2014 fengu aðdá­endur sjald­gæfa inn­sýn í ástand Michaels eftir að fyrr­ver­andi kappakst­ursöku­mað­ur­inn og náinn vinur hans, Philippe Streiff upp­lýsti að Michael væri lamaður og not­aði hjóla­stól. Philippe, sem notar einnig hjóla­stól eftir kappakst­urs­slys, sagði: „Hann er að bata­vegi en allt er afstætt. Þetta er mjög erfitt. Hann getur ekki talað. Eins og ég er hann lamaður í hjóla­stól. Hann er með minn­is­vanda­mál og vanda­mál með tal.“

Á sama tíma tal­aði fyrr­ver­andi Ferrari-stjór­inn Jean Todt um ótrú­lega ákveðni Corinnu í að sjá um ást­kæran eig­in­mann sinn en sagði að krafta­verk hans hefði haft „afleið­ingar“. Hann sagði við Bild: „Ég hef eytt miklum tíma með Corinnu síðan Michael lenti í alvar­legu skíða­slysi 29. des­em­ber 2013. Hún er frá­bær kona og sér vel um fjöl­skyld­una. Hún hafði ekki búist við að þurfa það. Þetta gerð­ist skyndi­lega og hún hafði ekk­ert val. En hún gerir þetta mjög vel. Ég treysti henni og hún treystir mér. Þökk sé vinnu lækna hans og sam­vinnu við Corinna, sem vildi að hann lifði af, þá lifði hann af – en það hafði afleið­ingar.“

Í sept­em­ber 2020 var greint frá því að Michael hefði eytt orðið meiri tíma á Mallorca, þar sem brúð­kaup Ginu fór fram. Og fleiri hrika­leg smá­at­riði komu fram um raun­veru­legt ástands hans. Á þeim tíma sagði Elisa­betta Gregoraci, fyrr­ver­andi eig­in­kona Flavio Briarote, fyrrum liðs­stjóra í Formúlu-1 , við spænska fjöl­miðla: „Michael talar ekki, hann hefur sam­skipti með aug­unum. Aðeins þrír geta heim­sótt hann og ég veit hverjir þeir eru.“
Í ítölsku útgáf­unni af Big Brother, sagði Elisa­betta einnig: „Þau fluttu til Spánar og konan hans hefur sett upp sjúkra­hús í því húsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco