Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Framúrskarandi fyrirmyndum fagnað í Kaupmannahöfn – LJÓSMYNDIR

Framúrskarandi fyrirmyndum fagnað í Kaupmannahöfn – LJÓSMYNDIR
For­ystu­konur og hóp­ur­inn sem stóð að baki ráð­stefn­unni. Mynd: Kaja Sigvalda

Mikil stemn­ing ríkti þegar 120 íslenskar konur komu saman til að heiðra fram­úr­skar­andi fyr­ir­myndir á Norð­ur­bryggju í Kaup­manna­höfn á laug­ar­dag­inn 26. októ­ber, að því fram kemur í frétta­til­kynn­ingu. Tilefnið var ráð­stefna Félags kvenna í atvinnu­líf­inu í Danmörku (FKA-DK): For­ystu­konur – Seigla og Sigrar. Þetta er í annað sinn sem félagið heldur ráð­stefnu af þessu tagi og komust færri að en vildu. Samkvæmt frétta­til­kynn­ing­unni var upp­selt á ráð­stefn­una og stemn­ingin frá­bær enda dag­skráin fjöl­breytt og skemmti­leg.

Jórunn Ein­ars­dóttir for­maður FKA-DK býður gesti vel­komna.

Í til­kynn­ing­unni segir að inn­blástur og orka hafi fyllt sal­inn á Norð­ur­bryggju þegar fjórar áhrifa­konur úr atvinnu­líf­inu héldu erindi, konur sem allar hafa rutt veg­inn með þraut­seigju og þekk­ingu hver á sínu sviði. Það voru þær Fida Abu Libdeh stofn­andi og for­stjóri GeoSilica, Gerður Arin­bjarnar, stofn­andi og for­stjóri Blush, Guðný Lára Árna­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Moon og Þórey Vil­hjálms­dóttir Proppé, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Öldu sem allar héldu kröftug erindi fyrir ráð­stefnu­gesti. Laufey Karítas Ein­ars­dóttir Langkjær, eig­andi Karitas Flow, bauð upp á stutta hug­leiðslu og einnig nutu gestir örtón­leika með Katrínu Helgu Ólafs­dóttur, K.óla, lista­konu og tón­skáldi.

K.óla, lista­kona og tón­skáld.

Form­legri dag­skrá lauk með pall­borðsum­ræðum þar sem ráð­stefnu­gestir gátu lagt spurn­ingar fyrir fyr­ir­les­ara dags­ins og sköp­uð­ust þannig mjög líf­legar umræður. Ráð­stefnu­gestir höfðu einnig nægan tíma til þess að efla tengsla­netið, sem er mik­il­vægur liður í starfi félags­ins. Að lok­inni form­legri dag­skrá hélt gleðin áfram, langt fram á kvöld.

Gestir á ráð­stefnu FKA-DK For­ystu­konur Seigla og Sigrar

Veit­ingar dags­ins voru með íslensku ívafi, en boðið var upp á hið alís­lenska Dóttir skyr sem er nýtt á dönskum mark­aði, Collab sá um að halda ráð­stefnu­gestum á tánum og íslenska bak­aríið Bake My Day, sem rekið er af Ynju Mist Ara­dóttur bauð upp á dásam­legar kræs­ingar. Jökla, hágæða íslenski rjóma­líkjör­inn, setti síðan svip sinn á gleð­ina þegar leið á kvöldið.

Laufey Karítas Ein­ars­dóttir Langkjær, eig­andi Karitas Flow.

Rúsínan í pylsu­end­anum var „þynnku­þramm“ með Ástu Stef­áns­dóttur, eig­anda Ferða um Kaup­manna­höfn á sunnu­deg­inum. Ásta leiddi stóran hóp ráð­stefnu­gesta um Íslend­inga­slóðir í gamla mið­aldabæ Kaup­manna­hafnar.

Laufey Karitas bauð upp á stutta hug­leiðslu.

Icelandair, dyggur stuðn­ings­að­ili félags­ins, var aðal­styrkt­ar­að­ili ráð­stefn­unnar en hátt í 30 fyr­ir­tæki studdu við félagið og ráð­stefn­una með einum eða öðrum hætti.

For­ystu­konur

Fyr­ir­tæki sem studdu ráð­stefn­una voru: 66°Norður, Anna Marta, Bake My Day, Bioeffect, Blush, Boozt, Collab, Dóttir Hot Yoga, Dóttir Skin, Dóttir Skyr, Dropi, Einrúm, Female Invest, Ferðir um Kaup­manna­höfn, Garn­ki­osken, GeoSilica, Good Good, Icelandair, Inspiration Center Denmark, Jódís, June Salon, Jökla, Saga Natura og Floer­alis, Saltverk, Sif Jakobs, Storytel og Tommi’s Burger Joint DK.

Fida Abu Libdeh stofn­andi og for­stjóri GeoSilica,

Félag kvenna í atvinnu­líf­inu í Danmörku, FKA-DK, var stofnað árið 2014 og fagnar því 10 ára starfs­af­mæli um þessar mundir. Félagið býður íslenskum konum upp á fag­legan vett­vang til tengsla­mynd­unar og inn­blást­urs, þar sem styrkur og hvatn­ing eru í hávegum höfð og unnið er mark­visst að því að auka sýni­leika og tæki­færi félags­kvenna. FKA-DK heldur alla jafna 6 – 8 við­burði á ári hverju, sem eru ávallt vel sóttir. 

Guðný Lára Árna­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Moon.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu