Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Marius Høiby handtekinn grunaður um nauðgun: Réttargæslumaður Ingunnar verjandi meints fórnarlambs

Marius Høiby handtekinn grunaður um nauðgun: Réttargæslumaður Ingunnar verjandi meints fórnarlambs

Lög­reglan í Osló hefur nú víkkað út rann­sókn sína á Marius Borg Høiby og hand­tók hann í gær vegna meintrar nauðg­unar. Samkvæmt Netta­visen átti nauðg­unin að hafa átt sér stað í vor á þessu ári. Høiby er stjúp­sonur krón­prins Noregs.

Lögmaður meints fórn­ar­lambs er Hege Salomon, en hún er einnig rétt­ar­gæslu­maður Ingunnar Björns­dóttur, dós­ents í lyfja­fræði við Osló­ar­há­skóla, sem stungin var af nem­anda sínum í ágúst í fyrra.

Segir Salomon að skjól­stæð­ingur sinn eiga erfitt.

„Hún vill ekki tjá sig um málið. Hún hefur ekki leitað að athygli, skrifar Hege Salomon, sem er skip­aður lög­maður meints fórn­ar­lambs, í SMS til Netta­visen.“

Segir hún einnig að það hafi verið lög­reglan sem opn­aði málið og skjól­stæð­ingur sinn hefði ákveðið að vinna með henni.

Salomon segir við Netta­visen að konan hafi ekki verið í neinu sam­band við Høiby fyrir brotið og að hún þekki heldur ekki hinar þrjár kon­urnar í saka­mál­inu gegn Høiby.

Høiby var hand­tek­inn af lög­reglu seint á mánu­dags­kvöld og situr nú í fanga­geymslu í hverf­inu Greenland. Með honum í bílnum var sú kona sem hann er grun­aður um að hafa beitt ofbeldi í ágúst á þessu ári.

Í frétta­til­kynn­ingu í morgun sagði lög­reglan:

„Lög­reglan hefur rýmkað ákærur á hendur Marius Borg Høiby. Ákæran hefur verið rýmkuð þannig að hún taki einnig til eins skil­yrðis fyrir broti á b-lið 291. gr. almennra hegn­ing­ar­laga, sem gildir um kyn­ferð­is­mök við ein­hvern sem er með­vit­und­ar­laus eða getur af öðrum ástæðum ekki staðið gegn verkn­að­inum,“ skrifar lög­reglan. 291. greinin fjallar um nauðgun. Bætti hún við: „Það sem lög­reglan getur sagt um nauðg­un­ina er að hún varðar kyn­ferð­is­mök án sam­ræðis. Fórn­ar­lambið er sagt hafa ekki getað stað­ist verkn­að­inn“, skrifar lög­reglan enn­fremur.

Enn sem komið er hefur engin ákvörðun verið tekin um hvort Høiby verði sendur í fang­elsi, á meðan málið er rann­sakað, segir lög­reglan.

Marius Borg Høiby var hand­tek­inn 4. ágúst á þessu ári eftir að lög­reglan fór á heim­ili á Frogner í Ósló í tengslum við ofbeld­is­verk. Høiby var þá ákærður fyrir skemmdir og fyrir lík­ams­meið­ingar á þáver­andi kær­ustu sinni og hefur við­ur­kennt að hafa beitt ofbeldi og eyði­lagt hluti meðan hann var undir áhrifum áfengis og kóka­íns. Lög­reglan hefur nú rýmkað ákæruna þannig að hún taki einnig til ofbeldis í nánum sam­böndum gegn þess­ari konu.

Eftir þessa fyrstu ákæru við­ur­kenndi Høiby ofbeldi og fíkni­efna­neyslu. Eftir þetta sögðu fyrr­ver­andi kærustur hans, Juliane Snekk­estad og Nora Haukland, bæði opin­ber­lega og lög­reglu að þær hefðu verið beittar ofbeldi af hálfu Høiby. Hann var síðar ákærður fyrir ofbeldi í nánum sam­böndum gegn þessum konum.

Í sept­em­ber var ákæran rýmkuð þannig að hún næði til gáleys­is­legrar hegð­unar og brots á nálg­un­ar­banni, auk frek­ari lík­ams­meið­inga. Hann var einnig ákærður fyrir að hafa hótað öðrum manni.

Lög­fræð­ing­ur­inn John Christian Elden, sem er lög­fræð­ingur Noru Haukland, segir við Netta­visen að nýja rýmkunin snerti skjól­stæð­ing hans ekki.

„En okkur skilst að rann­sóknin muni drag­ast á lang­inn,“ segir Elden.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco