Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þorgerður spennt fyrir samráði við almenning: „Ætti algerlega að banna áfengi“

Þorgerður spennt fyrir samráði við almenning: „Ætti algerlega að banna áfengi“
Inga, Þor­gerður og Kristrún – Mynd: Facebook

Í fyrra­dag opn­aði val­kyrj­u­stjórnin sam­ráðs­gátt­ina „Verum hag­sýn í rekstri rík­is­ins“ og er mark­mið þess að leita til almenn­ings varð­andi hug­myndir til hag­ræða í rík­is­rekstri, ein­falda stjórn­sýslu og sam­eina stofn­anir. Uppátæki þetta hefur vakið mik­inn áhuga þjóð­ar­innar en þegar þetta er skrifað hafa 1900 umsagnir borist í sam­ráðs­gátt­ina.

„Í öll­um þess­um hund­ruð eða þús­und­um til­lagna hljóta nú að leyn­ast gull­mol­ar, ég er sann­færð um það,“ sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra við mbl.is um þessa nálgun rík­is­stjórn­ar­innar.

„Það litla sem ég er búin að sjá, eins og til dæm­is sam­ein­ing stofn­ana, án þess að ég til­greini hvaða stofn­an­ir það eru, þá er al­veg ljóst að við get­um gert ým­is­legt hvað það varðar. Í hag­ræð­ingu, nýt­ingu fjár­muna, ein­föld­um reglu­verks og svo fram­veg­is,“ sagði ráð­herr­ann um málið. „Mér finnst þetta frá­bært, gam­an að við ákváðum að fara þessa leið, rík­is­stjórn­in, klukka fólkið okk­ar í land­inu.“

Áfengi, sendi­ráð og komu­gjöld

Umsagn­irnar eru væg­ast sagt fjöl­breyttar og áhuga­verðar og verður for­vitni­legt að sjá hversu mikið verður tekið mark á þeim.

„Hætta/banna áfeng­is­kaup i heild sinni. Hætta óhóf­legum veit­ingum við við­burði. Takmarka veru­lega funda­höld á veit­inga­stöðum þar sem funda­að­ilar borða td i hádegi dýr­ustu rétti margra rétta mat­seðla m til­heyr­andi vín­kaupum og slíku og senda svo reikn­ing­ana á ráðu­neytin/ríkið. I slíku ætti alger­lega að banna áfengi, (enda er hádegi miður vinnu­dagur flestra) Takmarka leigu­bíla­notkun starfs­manna rík­is­ins,“ skrifar Steinunn Þor­leifs­dóttir í sam­ráðs­gátt­ina.

„Er ekki löngu tíma­bært að inn­heimta komu­gjöld á flug­far­þega eins og tíðkast í öðrum löndum ? Komu­gjöldum er hægt að stilla í hóf t.d. 10-15 € á haus. Svo er ein hug­mynd að sparn­aði: Má ekki ný brú við Selfoss yfir Ölfusá vera hefð­bundin brú eins og við sjáum yfir stór­fljót sunn­an­lands?“ spyr Hilmar Sig­urðs­son.

„Fækka eða loka sendi­ráðum erlendis, þetta eru börn síns tíma. Það er hægt að senda út full­trúa með stuttum fyr­ir­vara, ef mál koma upp erlendis, þá getur 1 starfs­maður sinnt fleiri löndum og sofið heima hjá sér. Og við þurfum ekki að hafa á leigu hús­næði út um allan heim,“ stingur Guðrún Andr­és­dóttir upp á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum