Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þróttarar reiðir og sárir út í borgaryfirvöld: „Ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýn“

Þróttarar reiðir og sárir út í borgaryfirvöld: „Ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýn“
Bjarn­ólf­ur Lárus­son, for­maður aðal­stjórn­ar Þrótt­ar og Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­full­trúi – Myndin er sam­sett

Ára­mótapist­ill sem Bjarn­ólfur Lárusson, for­maður Þróttar, rit­aði á dög­unum hefur heldur betur vakið athygli en í honum fjallar for­mað­ur­inn um áætlun Reykja­vík­ur­borgar að byggja safn­skóla á svæði félags­ins en að sögn hans var ekk­ert sam­ráð haft við félagið um málið og þá hafi borgin ekki heim­ild til að byggja skól­ann á svæði félags­ins án aðkomu félags­ins.

„Við fögn­uðum því á þessu ári að það eru 75 ár eru liðin frá því að þeir Halldór Sig­urðs­son og Eyjólfur Jónsson, ásamt 35 öðrum kröft­ugum ein­stak­lingum stofn­uðu Knatt­spyrnu­fé­lagið Þrótt. Slík tíma­mót minna okkur á hvernig félagið hefur verið ómissandi hluti af sam­fé­lag­inu okkar frá stofnun. Það er ótrú­legt til þess að hugsa að afmæl­is­gjöf Reykja­vík­ur­borgar til hins mikla og göf­uga sjálf­boða­liða­starfs Þróttar voru ein­hliða hót­anir um upp­töku samn­ings­bund­ins svæðis félags­ins, Þrí­hyrn­ings,“ skrifar Bjarn­ólfur og segir að laga­nefnd félags­ins hafi skoðað málið ræki­lega.

„Nið­ur­staða laga­nefndar er skýr, að til­laga að stað­setn­ingu ung­linga­skóla milli gervi­gras­vallar og skauta­hall­ar­innar byggir á þeirri röngu for­sendu að umrætt svæði, þ.e. Þrí­hyrn­ing­ur­inn, sé við hlið íþrótta­svæðis Þróttar en ekki á íþrótta­svæði félags­ins. Með samn­ingi Þróttar og Reykja­vík­ur­borgar frá 12. des­em­ber 1996, um flutn­ing félags­ins úr Sævið­ar­sundi yfir í Laug­ar­dal, lét Reykja­vík­ur­borg Þrótti í té afnota af til­greindum svæðum, þar á meðal svæð­inu milli gervi­gras­vallar og Skauta­hallar, þ.e. Þrí­hyrn­ingi. Samkvæmt samn­ingnum skal Þróttur hafa afnot af þeim svæðum sem um ræðir svo lengi sem félagið starfar í Laug­ar­dal. Ekkert í samn­ingi aðila heim­ilar Reykja­vík­ur­borg ein­hliða að taka til sín svæði sem látin voru Þrótti í té,“ og full­yrðir Bjarn­ólfur að Þróttur muni ekki láta svæðið af hendi eins og staðan er í dag.

„Þróttur mun því ekki að óbreyttu gefa íþrótta­svæði sitt eftir undir skóla­lóð.“

Einar hinn óvin­sæli

Mannlíf hafði sam­band Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóra til að fá hans álit á orðum for­manns Þróttar en Einar hefur verið óvin­sæl­asti maður Laug­ar­dals síðan í fyrra eftir að hann sveik áætlun sem borgin hafði gert um skóla­upp­bygg­ingu í hverf­inu í sam­ráði við íbúa og aðra hags­muna­að­ila. Einar svar­aði ekki fyr­ir­spurn Mannlífs um málið.

Það gerði hins vegar Heiða Björg Hilm­is­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar.

„Ég veit að sam­töl áttu sér stað milli borg­ar­innar og Þróttar um svæðið sem um ræðir og ég ætla að leyfa mér að vera bjart­sýn á að þar náist far­sæl lend­ing,“ sagði Heiða við Mannlíf.

„Reykja­vík­ur­borg hefur fjár­fest í aðstöðu fyrir Þrótt utan­húss, bara á síð­ustu tveimur árum með upp­bygg­ingu Þrótt­heima þar sem nú eru tveir fyrsta flokks gervi­gras­vellir og end­ur­bætt aðal­völl­inn með nýju gervi­grasi. Það ásamt metn­að­ar­fullum fyr­ir­ætl­unum um löngu tíma­bæra upp­bygg­ingu fyrir inn­an­hús­í­þrótt­irnar gæti skapað tæki­færi fyrir Þrótt og Ármann til að kalla eftir auknu sam­starfi við fyr­ir­hug­aðan ung­linga­skóla þar sem hægt væri að leggja meiri áherslu á íþróttir og sam­starf við hverf­is­fé­lög en áður. Þetta er sam­tal sem bíður kom­andi árs.“

„Mála­ferli hafa ekki komið til tals enda sú upp­bygg­ing sem hefur verið og verður alltaf sam­starfs­verk­efni borg­ar­innar og hverf­is­fé­lag­anna,“ sagði borg­ar­full­trúi þegar hún var spurð hvort borgin væri til að standa í mála­ferli til að fá sínu fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum