Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Gunnlaugur segir heiminn vera að breytast: „Valdið er að færast í alþjóðlegar stofnanir“

Gunnlaugur segir heiminn vera að breytast: „Valdið er að færast í alþjóðlegar stofnanir“

Gunn­laugur Guð­munds­son stjörnu­spek­ingur segir stóran hluta af þján­ingu fólks stafa af remb­ingi við að passa inn í normið í stað þess að leyfa sér að vera ein­stak­lingur. Gunn­laugur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, hefur tekið fólk í einka­tíma í meira en 40 ár og varð hug­fang­inn af stjörnu­speki aðeins 15 ára gam­all:

„1973 gerði ég fyrsta stjörnu­kortið og fann að þetta væri það sem ég myndi gera í líf­inu. Það eru gríð­ar­leg fræði á bak­við stjörnu­speki og þetta eru alvöru alda­gömul vís­indi sem hafa orðið útundan. Eftir að hafa hitt mik­inn fjölda fólks í gegnum tíð­ina sé ég að stór hluti af vanda fólks er að reyna að fitta inn í eitt­hvað norm, en svo eru allir hinir að hugsa það sama. Við erum ein­stak­lingar og verðum að virða það hver við erum og hætta að reyna að þvinga okkur inn í að vera eins og eitt­hvað kerfi ætl­ast til að við séum,“ segir Gunn­laugur, sem ræðir í þætt­inum um stöð­una í heim­inum núna og hvernig kerfin og sam­fé­lögin séu óhjá­kvæmi­lega að breyt­ast:

„Þessi hefð­bundnu gömlu stjórn­mála­kerfi virka ekki lengur á 21. öld­inni vegna þess að þau voru skrifuð fyrir meira en 200 árum af körlum í valda­stöðu fyrir aðra karla í valda­stöðu. Það sama gildir um skipt­ing­una milli hægri og vinstri flokka sem við höfum þekkt úr stjórn­mál­unum. Það má rekja hana til frönsku stjórn­ar­bylt­ing­ar­innar þar sem íhalds­menn, aðall og kon­ungs­sinnar sátu hægra megin í þingsalnum í París og hinn lýð­ræð­is­sinn­aði almúgi sat vinstra megin. Allt saman karlar að skrifa leik­reglur fyrir sjálfa sig,“ segir Gunn­laugur og heldur áfram:

„Núna þegar 21.öldin er gengin í garð í heims­þorpi tækni- og upp­lýs­inga­bylt­ingar, vaknar fólk til með­vit­undar um stöðu sína. Þá blasir við órétt­læti sem hefur verið við lýði gríð­ar­lega lengi. Átökin í heim­inum í dag snú­ast mikið um að hvorki nútíðin né for­tíðin hafa verið eins og við viljum og því er bara ein leið í boði sem er fram­tíðin. Heim­ur­inn er búinn að breyt­ast mjög hratt á stuttum tíma. Landa­mæri eru að smátt og smátt að hverfa, þjóð­ar­brotum og trú­ar­brögðum ægir saman í borgum heims­ins sem verða æ lík­ari hver annarri. Upp­lýs­inga­streymið er mikið og kemur úr öllum áttum. Bæði opin­ber­lega og á bak við tjöldin, eru hin hefð­bundnu þjóð­fé­lög að leys­ast upp og þjóð­ríki breyt­ast hægt og rólega í sam­bands­ríki. Valdið er að fær­ast í alþjóð­legar stofn­anir, en mest til stór­fyr­ir­tækja. Hér á Íslandi er stór milli­stétt sem borgar brús­ann, greiðir háa skatta af launum og lánum og stendur í gríð­ar­legum átökum í líf­inu. Á end­anum eru margir hrein­lega að kafna. En hvað okkur sem ein­stak­linga varðar þá er það undir hverjum og einum komið að vinna á jákvæðan hátt í því að laga og umbreyta þjóð­fé­lags­kerf­inu. Breyt­ingar munu eiga sér stað hvað sem hver og einn segir, óskar sér eða vill. Eina óum­breyt­an­lega lög­mál lífs­ins er að allt er breyt­ingum háð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu