Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fjölmiðlanefnd afhjúpaði nafn kvartanda – Persónuvernd krefst svara

Fjölmiðlanefnd afhjúpaði nafn kvartanda – Persónuvernd krefst svara
Fjöl­miðla­nefnd

Fjöl­miðla­nefnd taldi sig knúna til þess að gefa upp nafn kvart­anda þrátt fyrir að hafa boðið honum nafn­leynd.

Ein­stak­lingur sendi kvörtun til Fjöl­miðla­nefndar í sept­em­ber 2023 vegna meints hags­muna­á­rekst­urs hjá mbl.is. Þar hafði blaða­maður Morg­un­blaðs­ins birt pistil um ferð sína um vín­ekrur úti í löndum en svo vildi til að sami blaða­maður flutti sjálfur inn sum þeirra vína sem hann fjall­aði um í pistl­inum. Taldi kvart­and­inn, sem einnig er blaða­maður, að þetta bryti í bága við fjöl­miðla­lög um dulin við­skipta­boð fyrir áfengi. Fjöl­miðla­nefnd spurði við­kom­andi hvort hann vildi njóta nafn­leyndar sem hann þáði. Hér má sjá orða­lag nefnd­ar­innar: Áður en afritið verður sent óskar Fjöl­miðla­nefnd vin­sam­lega eftir upp­lýs­ingum um það hvort þú viljir njóta nafn­leyndar í sam­skiptum nefnd­ar­innar við Árvakur hf. en hægt er að óska eftir nafn­leynd þegar ábend­ing eða kvörtun er send nefnd­inni. Afrit af ábend­ing­unni yrði þá sent Árvakri án þess að hægt yrði að tengja hana við þitt nafn. Ef Fjöl­miðla­nefnd ákveður að taka ábend­ing­una (óform­leg kvörtun) til efn­is­legrar með­ferðar í fram­hald­inu yrði um frum­kvæð­is­mál að ræða.

Krefjast að sjá nafn kvartandans

Síðar fékk kvart­and­inn tölvu­póst frá Fjöl­miðla­nefnd þar sem honum var tjáð að þar sem að útgáfu­fyr­ir­tæki Morg­un­blaðs­ins, Árvakur hf. krefð­ist þess að sjá nafn þess sem kvart­aði, bæri Fjöl­miðla­nefnd að gefa upp Í tölvu­póst­inum stóð: Árvakur hf. hefur óskað eftir afriti af ábend­ing­unni þar sem nafn þitt kemur fram bæði á grund­velli 1. mgr. 15. gr. stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993 og 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012. Eftir nán­ari skoðun og í ljósi fyrr­greindra ákvæða og beiðni Árvakurs hf. telur nefndin sér skylt að veita aðgang að ábend­ing­unni eins og hún barst og þá þannig að nafn þitt komi fram. Upp­lýs­inga­rétt­ur­inn er mjög ríkur og er aðeins heim­ilt þegar sér­stak­lega stendur á að tak­marka aðgang aðila máls að gögnum ef hags­munir hans af því að not­færa sér vit­neskju úr þeim þykja eiga að víkja fyrir mun rík­ari almanna- eða einka­hags­munum, sbr. 17. gr. stjórn­sýslu­laga. Fjöl­miðla­nefnd óskar eftir upp­lýs­ingum um það hvort þú teljir að slíkir hags­munir séu fyrir hendi og þar með að tak­marka ætti rétt Árvakurs hf. til aðgangs að gögnum máls­ins, þ.e. að fá afhent afrit af ábend­ingu þinni í heild sinni.

Kvart­and­inn krafð­ist á móti að nafn hans yrði ekki birt Árvakri hf. með þeim rökum að í því fælist fæl­inga­máttur, ef fólk sem sendir inn ábend­ingar njóti ekki nafn­leyndar sé þeim boðið hún. Taldi Fjöl­miðla­nefnd hins­vegar sig ekki hafa heim­ild til að hafna nafn­birt­ing­unni en benti á í sama svari að hægt væri að senda nafn­lausa ábend­ingu í gegnum vef nefnd­ar­innar. Blaða­mað­ur­inn sem sendi kvörtun­ina sagð­ist þá vilja draga til baka umkvörtun sína og senda þess í stað nýja, nafn­lausa ábend­ingu.

Of seint

Í svari Fjöl­miðla­nefndar segir að Árvakri hf hafi þá þegar verið birt nafn blaða­manns­ins og því of seint að senda aðra kvörtun.

Þann 3. apríl 2024 kom loks nið­ur­staða í málið en í nið­ur­stöð­unni segir meðal ann­ars:

Málið var tekið til umræðu á fundi Fjöl­miðla­nefndar þann 3. apríl sl. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar að mati loknu var að umrædd umfjöllun bæri ekki að öllu leyti merki þess að vera dulin við­skipta­boð í skiln­ingi 2. mgr. 37. gr. laga um fjöl­miðla nr. 38/2011, eða við­skipta­boð fyrir áfengi sbr. 4. mgr. 37. gr. sömu laga.

Því var ekki talin ástæða til að hefja form­lega máls­með­ferð, sbr. 4. grein starfs­reglna Fjöl­miðla­nefndar (Starfs­reglur-fjöl­miðla­nefndar.pdf (fjolmid­la­nefnd.is) og var ábend­ing­unni vísað frá.

Umboðs­maður Alþingis

Kvart­and­inn sætti sig ekki við vinnu­brögð Fjöl­miðla­nefndar og sendi erindi á Umboðs­mann Alþingis. Í apríl á síð­asta ári barst svar frá Umboðs­mann­inum en þar sagði meðal ann­ars í nið­ur­stöðu hans:

„Af skýr­ingum nefnd­ar­innar fæ ég ekki betur séð en að hún hafi fram­kvæmt það atviks­bundna mat sem áskilið er sam­kvæmt fram­an­greindum ákvæðum 15. tiI 17. gr. stjórn­sýslu­laga. Í ljósi þess og eftir að hafa kynnt mér gögn máls­ins að öðru leyti tel ég ekki for­sendur til að gera athuga­semd við það mat stjórn­valds­ins að þær upp­lýs­ingar sem fram komu í erindi yðar væru ekki þess eðlis að tak­marka bæri aðgang aðila máls á þeim  grund­velli 17. gr. stjórn­sýslu­laga. Hér hef ég einkum í huga ofan­greinda meg­in­reglu stjórn­sýslu­laga um rétt aðila máls að gögnum þess og þvl skil­yrði lag­anna að einka­hags­munir þurfi að vera mun ríkarl en sá réttur.“

Umboðs­mað­ur­inn benti þó blaða­mann­inum á að hann gæti sent Per­sónu­vernd erindi vegna máls­ins, telji hann brotið á per­sónu­vernd­ar­lögum.

Persónuvernd

Blaða­mað­ur­inn sendi kvörtun til Per­sónu­verndar fyrir fjórum mán­uðum og barst svar nýlega. Þar segir að Per­sónu­vernd hafi sent eft­ir­far­andi spurn­ingar á Fjöl­miðla­nefnd:

Er Fjöl­miðla­nefnd gef­inn kostur á að svara spurn­ingum Per­sónu­verndar eigi síðar en 10. febr­úar næst­kom­andi.

Fyr­ir­vari: Blaða­mað­ur­inn sem sendi kvörtun­ina til Fjöl­miðla­nefndar er starfs­maður Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum