Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fyrrverandi útvarpsmaður BBC 1 fannst látinn í ánni Dart – Var dæmdur fyrir að eiga barnaníðsefni

Fyrrverandi útvarpsmaður BBC 1 fannst látinn í ánni Dart – Var dæmdur fyrir að eiga barnaníðsefni
M. Willis Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fyrr­ver­andi útvarps­maður BBC Radio 1, Michael Willis, er lát­inn, 79 ára að aldri. Tilkynnt var um hvarf hans í des­em­ber en mán­uði síðar fannst lík hans í ánni Dart.

Michael Willis, sem einnig hafði starfað sem háskóla­kenn­ari, hafði breytt nafni sínu í David Evans eftir að hafa verið leystur úr fang­elsi eftir 18 mán­aða dóm. Lög­reglan sagði að hann hefði týnst í des­em­ber og að hann hafi síð­ast sést taka vatns­leigu­bíl [bát sem skutlar fólki gegn greiðslu] að brú þar sem snekkja hans lá við festar í Dartmouth, Devon.

Árið 2020 var Willis fang­els­aður fyrir að eiga ósæmi­legar myndir af börnum eftir að lög­reglan réðst inn á einka­snekkju hans. Hann var tek­inn með tæp­lega 500 við­bjóðs­legar myndir í tölvu­bún­aði sínum. Willis, sem gekk undir sviðsnafn­inu Steve Merike þegar hann var plötu­snúður, var útvarps­maður á BBC Radio One á átt­unda ára­tugnum. Hann var líka útvarps­maður á hinni frægu sjó­ræn­ingja­stöð Radio Caroline og starf­aði hjá Radio Trent á níunda ára­tugnum, þar sem hann starf­aði með sjón­varps­mann­inum Dale Winton heitnum.

Breska Land­helg­is­gæslan og RNLI (Royal National Lifeboat Institution) leit­uðu að Willis í Dart ánni er hann hvarf en án árang­urs. Hins vegar fannst lík hans þann 20. jan­úar, hálfa mílu niður ána. Dán­ar­dóm­stjór­inn gaf síðar upp nafnið David Evans, 79 ára, án þess að geta til um fyrri auð­kenni hans, sam­kvæmt Sun.

Dán­ar­dóm­stjóri Devon-svæð­is­ins, Alison Longhorn, sagði: „Aðstæð­urnar eru þær að David bjó í bátnum sem lá við festar í ánni Dart. Hvarf hans var til­kynnt til lög­reglu þar sem hann hafði ekki sést í nokkra daga. Lík fannst neðar í ánni nokkrum vikum síðar. Engar grun­sam­legar aðstæður eru fyrir hendi. Dán­ar­or­sök er ókunn.“

Mirror reyndi að hafa sam­band við fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, Juliu en núver­andi eig­in­maður hennar svar­aði frétt­inni um lát Willis stutt og laggott: „Gott.“

Hlaut skilorðsbundinn dóm

Willis fékk skil­orðs­bund­inn dóm í Leicester Crown Court árið 2015. Hann flutti til Plymouth, þar sem hann bjó á bát sínum Appalachian Spring í Plymouth Yacht Haven. Willis neit­aði því að eiga 238 ósæmi­legar myndir í A-flokki af börnum á tölvum sínum – sem sýna þau verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi af hendi full­orðnum.

Hann neit­aði einnig að eiga 226 myndir í B-flokki. Willis ját­aði sig sekan um að hafa aðeins 10 myndir í væg­asta flokk­inum, C-flokki, á minnis­lykli. Lög­reglan réðst inn á snekkju hans aftur í ágúst 2017. Hann fór í vitn­is­stúk­una til að lýsa því yfir að sér fynd­ist sumar af alvar­legri mynd­unum „algjör­lega ógeðs­legar“.

En kvið­dóm­ur­inn frétti að hann hefði líka verið tek­inn með myndir í flokki A þegar hann var hand­tek­inn í Loughborough árið 2013. Willis við­ur­kenndi að hann not­aði hug­búnað til að deila skrám og til að finna ósæmi­legar myndir. En hann hélt því fram að hann hefði ekki hug­mynd um hvernig alvar­legri mynd­irnar birt­ust á far­tölvu hans, borð­tölvu og minnis­lykli.

Kvið­dómur vís­aði fljótt frá­sögn hans á bug og fann hann sekan með sam­hljóða dómum eftir tveggja daga rétt­ar­höld. Willis ját­aði í Leicester árið 2015 að hafa verið sekur um níu ákærur fyrir að hafa hlaðið niður ósæmi­legum myndum og kvik­myndum af börnum á árunum 2006 til 2013. Hann hafði sagt lög­reglu í við­tali að hann hefði verið „for­vit­inn vegna Jimmy Savile-máls­ins“ og vildi koma nið­ur­stöðum sínum á fram­færi við félags­fræð­ing.

Hann átti mynd­irnar á meðan hann var fram­bjóð­andi frjáls­lyndra demókrata til þings fyrir Loughborough í almennum kosn­ingum 2010, þar sem hann fékk nærri 10.000 atkvæði en tap­aði fyrir verð­andi mennta­mála­ráð­herra breska íhalds­flokks­ins, Nicky Morgan. Willis hélt einnig fyr­ir­lestra í 15 ár við New College Nott­ing­ham og Nott­ing­ham Trent auk þess að vera for­stöðu­maður (e. school governor) við fjölda skóla í Midlands-svæð­inu. Hann tók einnig þátt í ýmsum ráðum í Leicester-skíri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco