Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Inga er samsærisdrottning Íslands: „Þetta tengist allt The Great Reset“

Inga er samsærisdrottning Íslands: „Þetta tengist allt The Great Reset“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er blogg­ar­inn og Covid-19 sam­sær­is­drottn­ingin Inga Guðrún Hall­dórs­dóttir. Athugið, þær kenn­ingar og skoð­anir sem kom fram í þessu við­tali end­ur­spegla ekki skoð­anir og afstöðu Mannlífs í málum sem snúa að Covid, bólu­setn­ingum og því um líkt.

Inga sem er einnig tækni­teikn­ari og félags­liði hefur skrifað á annað hund­rað blogg­færslur um covid19, bólu­efnin og kenn­ingar um alræð­is­hyggju og „hina miklu end­ur­ræs­ingu.“

Að sögn ræddu bræð­urnir Gunnar og Davíð við Ingu með opnu hjarta en gagn­rýnum hug og þá sér­stak­lega Davíð sem átti afar erfitt með að draga álykt­anir sem snúa að þeim sam­sær­is­kenn­ingum sem Inga lagði fram í við­tal­inu.

Inga Hall­dórs­dóttir

Hið Nýja upphaf

Inga, sem er kristin, segir að hennar hlut­verk á þess­ari jörðu sé að þjón­usta heild­ina og standa upp í Guðs­hug­rekki og benda á sam­særið, lygarnar og rang­lætið. Minna má það nú varla vera.

Hvað varðar Covid-19 far­ald­ur­inn og bólu­setn­ing­arnar, vill Inga meina að um sé að ræða mjög skipu­lagða aðgerð sem hefur með hag­ræð­ingu að gera og vissa hlýðn­is­herslu. Í því sam­hengi talar hún um Festa, mið­stöð um sam­fé­lags­á­byrgð og sjálf­bærni. Festa eru eins­konar sam­tök eða gæða­stimp­ill sem stór­fyr­ir­tæki hafa aðild að, sem brúa bilið milli hins opin­bera og einka­rek­inna stór­fyr­ir­tækja.

Þar eru haldnar ráð­stefnur og fleira tengt umhverf­is­málum, end­ur­skipu­lagn­ing á fjár­mála­kerf­inu, eins og það er upp­byggt í dag, og end­ur­skil­grein­ing á því hvernig sam­fé­lag okkar er byggt upp.

Þar er líka mikið minnst á heims­mark­mið til árið 2030 sem kall­ast „The Great Reset.” eða „Nýtt upp­haf.“

„Ég veit að það eru fullt af fyr­ir­tækjum sem eru inn í þessu og þetta virð­ist vera gæða­stimp­ill, þú sérð þetta heims­mark­miða­merki, þú alla þessa ráða­menn hjá World Economy of Forum að þeir eru allir með þetta heims­mark­miða­barm­merki, þetta teng­ist allt The Great Reset,“ sagði Inga og bætti við. „Agenda 2130 er áætlun sem er til í skýrslum sem var gerð af sam­ein­uðu þjóð­unum og þessi skýrsla er áætlun The New World Order í raun­inni, total control yfir öllu,” sagði Inga á átti við skugga­sam­tök sem sam­sær­is­fólk trúir á og telur að stjórni heim­inum á bak­við tjöldin.

Inga hélt áfrma að útskýra ástæð­una fyrir þessu öllu.

„Lúsifer kemur í ljós­eng­ills­mynd, hann kemur ekk­ert með horn og hala, hann nær þér ekk­ert þannig.”

„Ásetn­ing­ur­inn er að ná heims­byggð­inni undir vald lít­illar stjórnar ríks fólks. Lúsifer kemur í ljós­eng­ills­mynd, hann kemur ekk­ert með horn og hala, hann nær þér ekk­ert þannig.” En inni í þess­ari ljós­eng­ils­mynd er hulin gildra. Gildran er að við förum undir þetta totaler­ian, efna­hags­kerfi þar sem til dæmis er kveikt og slökkt á kort­inu þínu allt eftir því hvort þú hagir þér vel eða ekki.”

Aðild­ar­ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar á meðal Ísland, hafa skuld­bundið sig til að vinna skipu­lega að inn­leið­ingu mark­mið­anna. Heims­mark­miðin eru sam­þætt og snúa að öllum þáttum sjálf­bærrar þró­unar, hinnar efna­hags­legu, sam­fé­lags­legu og umhverf­is­legu. Þetta kemur allt fram á heima­síðu Festa á Íslandi

Inga vill meina að þetta sé allt skreytt með pall­í­ettum og kósý­leg­heitum en sé í raun bara úlfur í sauða­gæru. Að um valda­græðgi örfárra ein­stak­linga búi þarna að baki og það standi til að afmá alla mannúð, and­leg­heit, sjálf­stæða, skap­andi hugsun úr mann­inum og í raun fram­kalla heim sem Guðrún Bergmann kom einnig inn á í við­tali í Þvotta­hús­inu, hið for­eldra­lausa sam­fé­lag.

Vald­beit­ingin, sem hún vill meina að sé iðkuð kerf­is­bundið, er að hennar mati allt hluti af áætlun á sál­fræði­legu plani og hafi með blindna hlýðni að gera. Hvernig stjórn­völd herða skrúf­una og losa svo smá áður en hert er aftur. Smátt og smátt eru vald­hafar búnir að búa til ákveðið trú­ar­kerfi í sam­eig­in­legri vit­und manns­ins sem hefur með hlýðni og ein­angrun að gera, allt keyrt af ótta við ein­hvern sam­eig­in­legan óvin, óvin sem getur verið veiru­sýk­ing eða eins og hún Inga nefnir hlýnun jarðar, sem hún vill meina að sé ekki af manna­völdum.

Inga Hall­dórs­dóttir

Valinn maður í hverri stöðu

„Þetta endar alltaf á ein­stak­lingnum, þú ferð í Costco og það er allt í ein­hverju plasti, ég meina af hverju færð þú ekki bara hveitið í ein­hverjum sekkjum eins og í gamla daga? Það er alltaf verið að láta ein­stak­ling­inn taka allt á sig og nú á ein­stak­ling­ur­inn að taka það á sig út af því að rík­i­s­tjórnin hefur ekki staðið sig í rekstri spít­al­ana.”

Þá tal­aði hún einnig um út, frá einum blogg­pistli sínum, að það sé val­inn maður í hverri stöðu í þessu sam­særi. Nefnir í því sam­hengi for­eldra Kára Stef­áns­sonar og Ölmu Möller. Hún vill meina að ætt­ar­tengsl margra lyk­il­manna í stjórn­málum, innan heil­brigð­is­kerfis sem og í einka­rekstri og eign­ar­haldi stór­fyr­ir­tækja séu aug­ljós og þar af leið­andi hags­munir ein­stakra fjöl­skyldna eða hópa leið­andi afl í þess­ari end­ur­ræs­ingu. „Þetta er galið ef að þú veist það að hann er að vinna fyrir erlendan lyfj­arisa sem er í bólu­efna­fram­leiðslu, ris­inn er Amgen sem er í sam­starfs­verk­efni við bæði Active og Microsoft við fram­leiðslu á bólu­efnum,“ segir Inga og er að tala um Kára Stef­áns­son.

PCR prófanir á kóki og apríkósu

„Sjáum ásetn­ing­inn í stríði, þá eru menn bara að ná sér í land­svæði, sumir vilja bara plánetur

Gunnar og Davíð veltu upp þeim mögu­leika að ásetn­ing­ur­inn með þess­ari end­ur­ræs­ingu sem greini­lega er í kort­unum, sam­kvæmt heima­síðu Festa, sé af hreinum hug og að for­sendur hennar sé að göfga og skil­virkja upp­bygg­ingu sam­fé­lags manna á þess­ari jörð.

„Sjáum ásetn­ing­inn í stríði, þá eru menn bara að ná sér í land­svæði, sumir vilja bara plánetur. Svo var þessi aust­ur­ríski alþing­is­maður sem gerði próf á kóki og fékk jákvæða nið­ur­stöðu og síðan var það for­seti afr­íku­rík­is­ins Tansaníu sem gerði próf á apríkósu og fékk jákvæða nið­ur­stöðu,” segir Inga um áræð­an­leika PCR próf­ana og vill meina að þau próf séu notuð í áróð­ur­skyni.

Inga er orðin þreytt

Gunnar sem kannski er ekki jafn mik­ill efa­hyggju­maður og bróðir sinn Davíð, spurði Ingu í við­tal­inu hvort þessi þróun væri ekki bara eðli­leg og það sem þorri fólks­ins vill. Nefndi í því sam­hengi það tíma­bil sem Trump gegndi hlut­verki for­seta Banda­ríkj­anna. Það puðr­uð­ust allir yfir honum eins og eng­inn væri morg­un­dag­ur­inn en á sama tíma var hann sá sem var kos­inn til að gegna þessu hlut­verki. Sam­fé­lags­upp­bygg­ingin, vildi Gunnar meina, er alltaf í sam­ræmi við megin þorra fólks­ins og því sé lítið annað að gera en bara halla sér aftur og fylgj­ast með. Sagði hann enn­fremur að 90% þeirra sem myndu horfa eða hlusta á þetta við­tal muni halda því fram að Inga væri klikkuð.

Inga svar­aði því til að hún seg­ist vera orðin þreytt, hún er eins og komið hefur fram, búin að skrifa blogg sín á annað ár og hefur það tekið mikla orku frá henni. Hún seg­ist vera komin á stað þar sem hún þurfi mögu­lega að draga sig í skel hvað þessi mál varðar enda að eigin sögn búin að gera nóg til að vekja fólk til vit­undar um spill­ingu og stór­sam­særi hinnar fámennu elítu.

Viðtalið má hlusta á í heild sinni á öllum helstu streym­isveitum sem og að horfa á það í mynd Hér fyrir neðan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu