Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þór notar hugvíkkandi efni í meðferðum sínum: „Ég var einfaldlega bara suicidal í eitt og hálft ár“

Þór notar hugvíkkandi efni í meðferðum sínum: „Ég var einfaldlega bara suicidal í eitt og hálft ár“
Þór Guðnason Mynd: Guðmann hjá Mink

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Þór Guðnason. Þór sem er sonur Guðna í Rope yoga, hefur verið lengi lengi í brans­anum eins og maður segir. Hann hefur feng­ist við alls­konar einka­þjálfun og ráð­gjöf. Hann var sá fyrsti sem náði sér í rétt­indi hjá kulda­meist­ar­anum Wim Hof sjálfum. Hann er einn af stofn­endum Primal Iceland og svona væri lengi hægt að telja. Maður mik­illar reynslu hér á ferð.

Þór Guðnason og Gunnar Wiium

Héðinn Unn­steins­son opn­aði á þessa umræðu í þætti Þvotta­húss­ins nr 69, það er að segja umræð­una um hug­víkk­andi efni. Lilja Sif sál­fræð­ingur lýsti akademískri nálgun á und­ir­bún­ing og eft­ir­fylgni í þessum efnum þó án þess að fara í athöfn­ina sjálfa í þætti nr 74. Í þessum þætti er svo ekk­ert skafið af því, Þór fer með okkur í reynsl­una sjálfa og lýsir fyrir okkur hversu sterk og áhrifa­mikil þessi verk­færi geta verið sé þeim beitt á réttan hátt, þá í réttu umhverfi, undir réttri hand­leiðslu, réttu magni og mik­il­væg­ast á réttum for­sendum ferða­langs­ins.

Leitaði að sjálfum sér á furðulegum stöðum

„Ég ferð­að­ist mikið um heim­inn og fór á furðu­leg­ustu stað­ina, Himala­jas, búinn að fara til Perú, inn í frum­skóg­inn og hverju var ég eig­in­lega að leita að? Ég var að leita að sjálfum mér. Ég var búinn að prófa að fara til Indlands, sitja þar og hug­leiða, gera önd­unaræf­ingar, fara í yoga­kenn­ara­nám, búinn að fara í þetta Wim Hof kenn­ara nám. Þetta eru allt hlutir sem hjálp­uðu mér að end­ur­heimta sjálfan mig,“ sagði Þór um leit­ina að sjálfum sér.

„Þegar að við opn­uðum Primal þá bjó ég í 150 fer­metra ein­býl­is­húsi út í skógi við Elliða­ár­vatn og ég var búin að opna þetta gym og bara dream had come true en mér hefur bara aldrei liði eins illa á ævi minni. Að labba inn í Primal og horfa framan í fólk var oft bara þján­ing. Þegar að fólk skoð­aði Instagram­mið mitt hélt fólk bara að ég væri í topp málum, ferð­að­ist út um allan heim, fór á nám­skeið, nýbú­inn að opna þetta flottasta gym á Íslandi en ég var bara mölv­aður inn í mér.“

Hugfanginn af hugvíkkandi efnum

Þór hefur síð­ustu ár verið hug­fang­inn af mögu­leikum hinna ýmsu hug­víkk­andi efna en þá fyrst og fremst af íslenska Psilosobin svepp­inum. Hann hefur þó einnig unnið með hin og þessi efni og nefnir í því sam­hengi Ayahuasca og Mescalin kaktus. Þór hefur ferð­ast um heim­inn í þessum til­gangi og lært sham­anískar aðferðir, mögu­leika og umgengni við þessi þrælöflugu efni. Í dag veitir hann ráð­gjöf, utan­um­hald og hand­leiðslu í þessum efnum, ýmist í hóp sem eins­konar hópserómón­íur eða meira ein­stak­lings­miðað þar sem ein­stak­ling­ur­inn eftir sam­tal leggur sig í hendur Þórs og inn­byrgir sveppi í mis­miklu magni, allt upp í 5 grömm, og á sirka 6 tíma glugga situr Þór yfir við­kom­andi og leið­beinir í gegnum ferða­lagið sem oft á tíðum getur verið erfitt og krefj­andi.

Þór Guðnason Guðmann hjá Mink

„Ég tek til mín fólk í vinnu með þessa plöntu­kenn­ara eins og ég vil kalla það. Öll lyf eru afleiður af nátt­úru­legum plöntum, af hverju erum við þá ekki bara að éta þessar plöntur? Þetta eru allt mis­mun­andi verk­færi í verk­færa­kass­anum,“ segir Þór um hin og þessi hug­víkk­andi efni. 

„Þetta er rosa­lega öflug verk­færi til að fara inn í sál­ar­líf fólks og hjálpa fólki að bara melta þennan heim sem við búum í. Það er bara ákveðin gluggi sem upp á 4-6 tíma með Psilosobin og þó að ég myndi taka 20 grömm þá myndi það ekki lengja ferða­lagið, þú ferð þá bara dýpra.“

Hrært í pott­unum.

Ásetn­ingur þess­ara ferða­laga getur verið margs­konar en fyrst og fremst er ásetn­ing­ur­inn að kom­ast í dýpið og vinna þar á afleiðum eða áverkum áfalla, stórra og smárra. Þór heldur því fram að eitt svona vel heppnað ferða­lag geti jafn­ast á við fjöldan allan af sál­fræði­tímum því tengsl eru mynduð á afar bein­sk­eittan hátt við und­ir­vit­und­ina. Ferða­lagið getur verið krefj­andi og krefst vissrar upp­gjafar að setja sjálfan sig í þetta ferli upp­gjafar sem oft á tíðum hlýst af því að gefa eftir spennu sem kannski hefur verið langvar­andi ástand. 

„Já,já, að sjálf­sögðu, það er hægt að gera allt á röngum for­sendum. Ég meina ef ég myndi bara borða gúrkur þótt að gúrkur séu rosa­lega hollar þá myndi ég samt bara deyja úr nær­ing­ar­skorti,“ segir Þór er Gunnar spyr hann hvort hægt sé að nota hug­víkk­andi efni á röngum for­sendum. „Það opn­ast allt upp á gátt og það skiptir gríðar miklu máli að þú sért með mann­eskju sem veit hvað er að gera og hefur reynslu sjálfur á því að ferð­ast og ég mæli bara með að fólk sé með ábyrgan aðila með sér.“

Sveppir. Þetta eru sveppir.

„MDMA er nátt­úr­lega man made substance en samt sem áður gríð­ar­lega öfl­ugt verk­færi því það eykur sam­kennd og brýtur niður varnir fólks, egóið leys­ist bara upp basicly,“ segir Þór er talið berst að MDMA.

Engin þunglyndislyf á markaðnum eftir 5 ár

Þór telur að hug­víkk­andi efni eigi jafn­vel eftir að gera þung­lynd­is­lyf óþörf eftir fimm ár.

„Ég hef átt sam­töl við geð­lækna sem segja að eftir 5 ár verði bara engin þung­lynd­is­lyf á mark­aðnum, afhverju? af því að þau stand­ast ekki sam­keppni við rann­sókn­irnar sem eru að koma á þessum hug­víkk­andi efnum. Ég sé og man kannski hluti í þessum ferða­lögum sem ég hef ekki hugsað um í 20-30 ár, en þegar ég sé minn­ing­una, sárið, þá skil ég af hverju ég bregst við á ákveð­inn hátt sem full­orð­inn ein­stak­lingur. Þetta er eins og ég geti gengið inn í sál­ar­líf mitt með vasa­ljós og allt í einu get ég beint ljósi inn í the dark corners of my soul, þá sé ég hvað er það sem er að valda skap­gerð­ar­brestum mínum og hvað er það sem er að valda fíkn og annað. Serómón­ían byrjar þegar hún endar í raun og veru því þú færð þarna inn­sýn inn í sál­ar­líf á annan hátt en þú ert vanur, að fara í svona ferða­lag er eins og 20 ára sál­fræði­með­ferð liggur við.“

Í dag er mikil vit­und­ar­vakn­ing í gangi í þessum efnum bæði hér­lendis og erlendis. Fólk er farið að nota efni á borð við LSD, mescalin, DMT, Psilosobin, MDMA og ketamín svo eitt­hvað sé nefnt. Efnin eru ýmist notuð sem svokölluð full­dose trip og þá oft í hóp og í serómónísku umhverfi eða að efn­ana er neytt í svoköll­uðu smá­skammta­formi. Til dæmis myndi dag­skammt­ur­inn, 0.1-0.3 gramm af Psilosobin sveppi flokk­ast sem smá­skömmtun og að sögn Þórs algjör­lega hættu­laust sam­kvæmt mörgum alþjóð­legum rann­sóknum.

„Hann not­aði sem sagt LSD til að við­halda edrú­mennsku sinni. Hann var að upp­lifa and­legar upp­lif­anir og teng­ingar í gegnum LSD og ef hann hefði fengið sínu fram væru fíkni­mál á jörð­inni í miklu betri málum,“ segir Þór um sagn­fræði­legar stað­reyndir stofn­anda AA sam­tak­ana Bill Willson.

Edrú en í stöðugum sjálfsvígshugsunum

Talið barst að lélegum árangri í bar­áttu við fíkni­sjúk­dóma og alka­hól­isma. Þór end­aði mjög ungur í neyslu áfengis og ann­arra lyfja og í 19 ár stund­aði hann hefð­bundna edrú­mennsku með til­heyr­andi AA fund­ar­sókn og 12 spora vinnu. Gunnar minn­ist á töl­fræð­ina á bak­við lang­tíma edrú­mennsku sem liggur ein­hver­staðar í kringum 10% með hjálp nútíma með­ferð­ar­kerfis og 12 spora lausnar. Þór fannst þessi töl­fræði ekki vera fjarri lagi, þó frekar há ef eitt­hvað. Hann sagði frá því að eftir öll þessi ár edrú var hann í stöðugri van­líðan, á lyfjum við ADHD og síð­ustu tvö árin áður en hugur hans opn­að­ist fyrir hug­víkk­andi efnum, með stans­lausar sjálfs­vígs­hugs­anir. Hann sagð­ist hafa upp­lifað í raun vissa end­ur­fæð­ingu með hjálp þess­ara efna þar sem hugur hans var opn­aður á hátt sem hann hafði aldrei upp­lifað áður og afleið­ing þess var aukin sköpun í hvers­dags­leik­anum ásamt gríð­ar­lega öfl­ugu verk­færi hvað varðar úrvinnslu á áverkum óaf­greiddrar for­tíðar. Hann ein­fald­lega seg­ist hafa upp­lifað að tauga­kerfið hafi verið end­ur­for­ritað, þung­lyndi, þrá­hyggju­hugs­anir, fíkni­hegðun og spennu­fíkn er horfin úr lífi hans en í stað­inn finnur hann fyrir auknum létt­leika, sterku inn­sæi, sjálf­bærni, sköpun og hug­rekki. 

„Þegar ég var 12 ára var ég far­inn að drekka hverja ein­ustu helgi og ég gerði það í mörg ár, svo koma fíkni­efni inn í þetta og þá er ég komin í dag­neyslu á fíkni­efnum og ég setti bara basicly allt í mig sem að kjafti kom. Ég var bara hægt og rólega að murrka úr mér lífið en þegar ég er orð­inn 22 ára fer ég í með­ferð, tek mig á í líf­inu og tek út vímu­gjaf­ana en það þýddi ekki það að líf mitt varð eitt­hvað æðis­legt. Ég fór inn í AA sam­tökin og ég fann mig ekk­ert rosa­lega vel inn í þessum sam­tökum. Að við­ur­kenna van­mátt minn og að vera með ólækn­andi sjúk­dóm, ég upp­lifði rosa mikið dogma inn í AA sam­tök­unum og hjarta mitt bara gat þetta ekki. Ég var ein­fald­lega bara suicidal í eitt og hálft ár áður en ég kem svo að þessum plöntu­kenn­urum,“ segir Þór er hann rifjar upp for­tíð­ina.

Þrældómur nútímamannsins

Þór vildi meina að við menn­irnir séu á svo miklum villi­götum. Hann útskýrði fyrir Gunnari hvernig okkur mönn­unum er ætlað að snúa aftur til nátt­úru­legra úræða sem lausn við hvaða kvillum sem er. Hann vill meina að tengin við nátt­úr­una geti og sé ætlað að lækna hrein­lega alla kvilla, hug­ar­fars­lega sem og lík­am­lega. Það að vinna myrkrana á milli og hlamma sér svo í sófann með popp og kók yfir Netflix milli þess sem maður skrollar sam­fé­lags og frétta­miðla sé í raun viss þræl­dómur sem við erum komin í og algjör­lega óaf­vit­andi. Lausnin við þessu ástandi er að sjálf­sögðu að sjá sann­leik­ann á þeirri aðstöðu sem maður hefur skapað sér og svo í kjöl­farið brjóta sér leið út og tengj­ast nátt­ur­unni eins og okkur er ætlað.

Þór, við það að leggj­ast í vík­ing. Guðmann í Mink

„Þetta eru sár sem eru að koma þegar við erum börn en í dag getum við ekk­ert verið að kenna mömmu okkar og pabba um það sem eftir er ævinnar að við séum svona eða hinsegin, eða að afi hafi verið svona eða amma og blabla. Við erum orðnir full­orðnir ein­stak­lingar og þegar við erum orðin full­orðnir ein­stak­lingar þá er það okkar að heila okkur, ekki mömmu og pabba, ekki ríkið eða heil­brigð­is­kerfið heldur við sem ein­stak­lingar sem erum ábyrg fyrir okkar heilsu og well-being. Þegar að við meltum ekki til­finn­ingar okkar setj­ast þær fyrir á ákveðnum stöðum í lík­am­anum og ef við meltum ekki til­finn­ing­arnar þá förum við að breiða yfir þær. Ef ég drekk áfengi, hvað ger­ist? Það slakar á tauga­kerf­inu á mér og þegar það slakknar á tauga­kerf­inu á mér þá shiftar blóð­flæðið úr skel­etal vöðv­unum sem ég nota til að berj­ast eða verj­ast með og ég fæ flæði inn í hjartað og ég get upp­lifað ást og sam­kennd og þetta er það sem við erum að nota vímu­efni í, að stýra taugekerf­inu í okkur. Við eigum að vera fjár­hirðar jarð­ar­innar, við eigum að hugsa um nátt­úrna, vera í sam­hljómi með nátt­úr­unni og búa í minni sam­fé­lögum,“ segir Þór og bætir svo við:

„Því inni í þess­ari neyslu­hyggju ætla allir að verða ham­ingju­samir þegar og ef. Þegar ég er búinn að klára háskóla­námið, þegar ég er búinn að eign­ast barn, þegar ég er búinn að kaupa mér hús og þegar ég er búinn að kaupa mér hús, þá ætla ég að kaupa mér stærra hús og hvað þýðir þetta allt? Það þýðir það að það eru allir komnir með sjón­varp inn í sitt­hvorn klef­ann og fólk er hætt að borða mat saman. Við verjum megn­inu af okkar vöku­tíma gláp­andi á sím­ann okkar og svo skilur eng­inn afhverju hann er ekki ham­ingju­samur.” Þessi neyslu­hyggja er bara að gera út af við okkur, tauga­kerfið okkar bara ræður ekki við þetta, við erum orðin aðskilin frá nátt­úr­unni.“Þessi neyslu­hyggja er bara að gera út af við okkur, tauga­kerfið okkar bara ræður ekki við þetta, við erum orðin aðskilin frá nátt­úr­unni. Við gerum okkur enga grein fyrir hversu megnuð við erum.“

Viðtalið má sjá í heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan ásamt því að finn­ast á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu