Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Krummi þjálfar unglinga í MMA: „Rosalega sterk tól til að fara með út í lífið“

Krummi þjálfar unglinga í MMA: „Rosalega sterk tól til að fara með út í lífið“
Krummi Þrá­ins­son Mynd: Aðsent

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium er eng­inn annar er bar­daga­hund­ur­inn og áhættu­leik­ar­inn Hrafn Þrá­ins­son einnig þekktur sem Krummi.

Krummi Þrá­ins­son

Krummi er einn af eig­endum RVK MMA og umsjón­ar­maður barna og ung­linga­starfs hjá RVK MMA ásamt því að vera yfir­þjálf­ari yngri ald­urs­flokka.

MMA er sterkt tól út í lífið

„Þetta sport er nátt­úru­lega svona forced núvit­und,“ segir Krummi í upp­hafi við­tals­ins og bætir svo við: „Þú getur eig­in­lega ekki leyft þér að hugsa um neitt annað á meðan ein­hver er að reyna að kyrkja þig. Það er alls­konar fakt­orar í þessu og bar­daga­í­þróttir eru fyrst og fremst myndi ég segja 70-90% and­legt og svo er restin lík­am­leg. Þetta gefur þér bara ákveðin verk­færi fyrir lífið, þetta kennir þér á hvað þú getur og þú getur í raun­inni miklu meira en þú raun­veru­lega heldur. Skipulag og þetta kennir þér sam­vinnu og það eru bara rosa­lega sterk tól til að fara með út í lífið.“

Krummi er mennt­aður íþrótta og heilsu­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og er brún­belt­ingur í BJJ sem stendur fyrir Brasilian Jiu-jitsu. Hann hefur keppt bæði í áhuga­manna MMA ásamt því að vera virkur kepp­andi á mótum hér heima og erlendis í BJJ.

Vel tekið á því.

„Það er ógeðs­lega erfitt að móti­veita sig nema þá bara að maður sé með lausa skrúfu, þú veist að móti­veita sig til að mæta á æfingu og láta kýla sig í and­litið eða kyrkja þig reglu­lega, það er bara öðru­vísi en að fara og sparka eða kasta bolta ein­hvers­staða. Það eru fullt af góðum fakt­orum við þessar hefð­bundnu bar­daga­í­þróttir eins og til dæmis heim­spekin á bak við, virð­ingar aspectið og allt þetta en það missir kannski svo­lítið marks í nútím­anum ef þú ætlar að fara að koma inn með ein­hverja 13 ára ung­linga núna, ein­hverja kúlista og láta þá hneigja sig og tala japönsku við, þá eru þeir bara ekki að tengja kannski.“

Krummi þjálf­ari

Fór í her­inn til að ná aftur áttum

Krummi byrj­aði snemma að æfa Karate með Karate­deild Þórs­ham­ars um fimm ára ald­ur­inn. Honum lík­aði vel við agann og þessa form­festu sem ein­kennir hefð­bundið Karate og því hélst hann þar í ein 11 ár eða þar til hann varð 16 ára gam­all. Við tóku nokkur ár þar sem hann leit­aði að sjálfum sér ákaft og að eigin sögn var hann mjög týndur. Hann lenti í slags­málum og almennu rugli sem hann ákvað að snúa baki við og því flutti hann til Noregs og skráði sig í her­inn.

Krummi gegndi sinni her­þjón­ustu í tæp tvö ár og lík­aði honum vel við að vera komin aftur í form­fest­una sem hann hafði skilið við í Karate íþrótt­inni. Starfs­stöð hans í hernum var  landamæra­stöð við landa­mæri Noregs og Rúss­lands. Á þeim tíma segir Krummi að hann hafi lært mikið um sjálfan sig og náð aftur þess­ari festu og þennan strúktur.

„Ég held að þetta sé út af því að það er röff að búa hérna, við erum svo norð­an­lega, við erum með skamm­degið og storm eftir storm eftir storm, ef þú finnur þér ekki bara ein­hverja stefnu þá ertu bara í vand­ræðum,“ segir Krummi um ástæðu þess að Íslend­ingar séu svona öfl­ugir íþrótta­menn upp til hópa.

Krakkar með svarta beltið í núvit­und

Krummi fór yfir það hvernig MMA verður til hér á Íslandi með til­komu Mjölnis á Héð­ins­göt­unni árið 2005 en hann fann að það varð ekki aftur snúið. MMA hefur náð alveg ótrú­legum hæðum á þeim stutta tíma sem um ræðir. Í dag eru reknir hinir og þessir klúbbar en RVK MMA og Mjölnir eru þeir einu sem eru að senda menn og konur út í keppni.

Krummi til­bú­inn í slag­inn, bók­staf­lega.


„Ég er brún­belt­ingur í Jiu-Jitsu en þau eru með svarta beltið í núvit­und, þannig að ég fæ það frá þeim,“ segir Krummi um starf sitt með börnum og ung­lingum.

„Það er ógeðs­lega mikið af sterkum krökkum sem maður er að sjá koma upp á þessum box­mótum og glímu­mótum hérna heima,“segir Krummi enn­fremur, bjart­sýnn á fram­tíð­ar­ein­stak­linga innan MMA á Íslandi.

Krummi fór yfir það í við­tal­inu af hverju barna og ung­linga­starfið er svona mik­il­vægt innan MMA sem og ann­arra bar­daga­í­þrótta þar sem aginn er mikil og regl­urnar strangar. Hann vill meina að börn og ung­lingar sæki í agann og formið því það veiti þeim ekki bara aðild að félag­s­kap sem er rík af sam­kennd, heldur einnig að einmitt í aganum finni þau öryggið. Þar læri þau að fara eftir fyr­ir­mælum og að bera virð­ingu fyrir þeim reynslu­meiri sem og hefð­inni á bak við hinar og þessar bar­daga­í­þróttir. Hann sagði einnig í við­tal­inu að ótrú­legt væri hve langt við í raun værum búin að ná og ótrú­lega spenn­andi væri að fylgj­ast með þeim yngstu næstu 10-20 árin, gríð­ar­legir mögu­leikar framundan. Hann benti á mik­il­vægi fyr­ir­myndar eins og Gunnars Nelson sem er búinn að ná mjög langt innan UFC. Gunnar vann einmitt sinn síð­asta bar­daga og er nýbúin að skrifa undir nýjan samn­ing við UFC um 5 bar­daga sem í raun gætu fleytt honum meðal þeirra bestu á heims­vísu.

Eyrun einskonar ferilskrá

„Það eru Ísland, Noregur og N-Kórea sem eru þau lönd sem banna atvinnu MMA í dag. Atvinnu hnefa­leikar eru ólög­legir, ólympískir hnefa­leikar eru lög­legir. Hnefa­leikar eru lög­legir, Jiu-Jitsu er lög­legt, wrestling er lög­legt en afhverju má ekki keppa í ein­hverju þar sem þessir þrír kompóndar eru bundnir saman?“ spyr Krummi.

Hvað varðar MMA var farið um víð­ann völl. Það var tals­vert rætt um stera­notkun og lyfja­próf­anir ásamt því hvort maður gæti yfir höfuð lifað á þessu, orðið atvinnu­maður svo auð­veld­lega. Í því sam­hengi barst talið að Gunnari Nelson og hans síð­asta bar­daga en orðið á göt­unni er að hann hafi fengið um 120.000,- doll­ara fyrir skatt fyrir bar­dagan eða um 16 millj­ónir Íslenskra króna. Sem kannski er ekk­ert óeðli­leg upp­hæð ef tekið er mið af útlögðum kostn­aði við að kom­ast í svona keppni, æfing­ar­tími, þjálf­arar, uppi­hald, flug­miðar og fleira.

Gunnar þátt­ar­stjórn­andi sagð­ist vera með svona áferð­ar­blæti eða þrá­hyggju og spurði Krumma út í þessi ein­kenni­legu eyru sem virð­ist ein­kenna marga sem hafa stundað MMA lengi. Hann spurði hvort ekki væri hægt að poppa þeim til­baka og Krummi sagði svo ekki vera. Málið er að í þessum enda­lausa nún­ing í þessar glímu endar brjóskið í eyr­unum með að brotna og eyrum enda á að missa form sitt, þau eru á vissan hátt flött út. Vinstra eyrað á Krumma er verr farið en það hægra og ástæða þess er að hann hefur verið kýldur svo illa á eyrað svo brjóskið hefur ekki bara brotnað heldur hefur líka blætt inn á eyrað með þeim afleið­ingum að vök­vinn ein­fald­lega hefur storknað í sjálfu eyr­anu með til­heyr­andi afmyndun. En hann sagði að þessi ein­kenni bar­daga­manna kæmi sér oft vel þegar maður sótti æfingar erlendis til dæmis í ókunn­ugar stöðvar, þá í raun mætti lesa úr eyr­unum hve langt menn væru komnir, eins­konar óljós fer­il­skrá.

„Þetta er bara storknað blóð í raun­inni, storkn­aður vökvi, verður til við nún­ing, haus­kúpu við haus­kúpu, haus­kúpa við olboga eða hnúa eða eitt­hvað. Þegar þú færð högg eða nún­ing þá brotnar upp úr brjósk­inu og það flæðir vökvi undir húð­ina sem svo storknar.“

Áhættuleikarinn Krummi

Krummi starfar einnig sem áhættu­leik­ari. Það fannst Gunnari ein­stak­lega spenn­andi enda mikil aðdá­andi áhættu­leik­ar­ans Cliff Booth sem var fyr­ir­mynd áhættu­leik­ar­ans í mynd­inni Once Upon a Time in Hollywood eftir Quentin Tar­antino. Krummi hefur tekið þátt í nokkrum verk­efnum í sínum áhættu­leik, ýmist í kvik­myndum eða sjón­varps­þáttum. Hann segir að kvik­mynda­brans­inn á Íslandi sé í því­líkum vexti og í raun orð­inn í dag miklu stærri en flestir gera sér grein fyrir.

Áhættu­samur leikur

„Hlutir eru mis­hættu­legir en Það sem er helst í þessum slags­mála­senum sem við erum búnir að vera að gera, þá er þetta end­ur­tekn­ingin. Þú ert að negla þér inn í eitt­hvað, lenda á ein­hvern ákveðin hátt og svo þarft þú að taka þetta upp 15 sinnum skil­urðu frá mimun­andi vinklum og öðru og þá ertu bara orð­inn svo­lítið lemstr­aður.“

Að lokum kemur Krummi með fínt ráð fyrir fólk sem er að velta fyrir sér hvað það eigi að taka sér fyrir hendur, íþrótta­lega séð.

„Þú verður bara að finna fyrir hnú­anum á þér graf­ast inn í ein­hvern púða og sjá hvort þú fílar það ekki, gá hvort að það sé ekki skemmti­legra cardio en að hlaupa á ein­hverju bretti ein­hver­staðar.“

Þetta skemmti­lega spjall má sjá í heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan sem og að þú finnur alla þætti Þvotta­hús­ins á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu