Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

SJÓARINN #42 – Finnbogi Þorláksson er sáttur á La Marina á Spáni: Skipstjórinn sem keypti sjoppu

SJÓARINN #42 – Finnbogi Þorláksson er sáttur á La Marina á Spáni: Skipstjórinn sem keypti sjoppu

Finnbogi Þor­láks­son segir sögu sína í Sjó­ar­anum þessu sinni. Hann býr í glæsi­legu húsi á La Marina á Spáni. Um ára­bil var hann skip­stjóri á tog­ar­anum Björg­úlfi EA og það gekk yfir­leitt vel. Seinustu árin starf­aði hann undir Samherja þar til sjó­mennsk­unni lauk þegar Þor­steinn Már Bald­vins­son sagði honum upp.

„Á end­anum rak Mái mig. Það segir sína sögu.

Var þetta ást­ar­hat­urs­sam­band á milli hans og Þor­steins Más?

„Þor­steinn Már er bara eins og hann er. Hann er bara hörku, djöf­ull dug­legur og hann er búinn að búa til risa­fyr­ir­tæki en mér er alveg sama. Það má ekki taka það af honum; hann er ofvirkur og dug­legur. Búinn að búa til þetta apparat. En það er eitt sem hann vantar; að vera pínu skemmti­legur. Það er allt í lagi að vera pínu skemmti­legur þó þú sért dug­legur. Ég sá um Björgúlf og það var mín deild. Við fengum okkur kaffi þegar við hitt­umst. Það voru engir árekstrar.“

Ekki strax.

„Það var ekk­ert slæmt að vinna hjá þeim. Það voru kröfur sem er eðli­legt. Ég er ekk­ert að kvarta yfir því. Svo vildi hann losna við mig og los­aði sig við mig.“

Af hverju vildi hann losna við þig?

„Þú verður að spyrja hann að því.“

Kom hann og til­kynnti þér að þú yrðir að hætta?

„Ég væri alltaf fullur um borð sem er nátt­úr­lega rangt. Ég ætl­aði að hætta um ára­mótin. Mig lang­aði það. Þetta var um haustið. Ég fékk fínan starfs­loka­samn­ing. Það eru 10 til 12 ár síðan.“

Það þarf ekk­ert skip­stjóra á skipum í dag.

Það hefur ekk­ert hvarflað að þér að fara aftur á sjó?

„Þetta var orðið leið­in­legt. Þetta var orðin svo mikil Excel-vinna. Áður fyrr fór maður bara út á sjó. Nú er þetta orðið svo mikið Excel. Það þarf ekk­ert skip­stjóra á skipum í dag.“

Hann sem hafði verið svo lengi á sjónum söðl­aði um eftir að hafa „leikið sér“ í ein­hverja mán­uði. „Svo leidd­ist mér það og asnað­ist til að kaupa mér sjoppu. Það var dálítið fyndið að sitja inni í sjoppu. Og ég hafði aldrei komið nálægt neinu svona. Ég vissi ekk­ert hvað ég átti að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu