Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Snorri Ásmundsson byrjaði snemma að ögra: „Góðan daginn, helvítis mellan þín“

Snorri Ásmundsson byrjaði snemma að ögra: „Góðan daginn, helvítis mellan þín“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium er eng­inn annar en fjöl­lista­mað­ur­inn Snorri Ásmunds­son. 

Snorri, sem hefur feng­ist við gjörn­inga­list síðan hann man eftir sér, lifir einnig og þrífst í mál­ara­list­inni. Hann seg­ist í raun lifa á henni, en að gjörn­inga­list­formið sé það sem stendur honum næst í ein­hverjum kjarna.

Reiðin er eldsneytið

Gunnar spurði Snorra hvaðan listin kæmi og þá hvort að gjörn­inga­list­formið kæmi frá sama stað og máln­ingin. Hann hugs­aði sig um og sagð­ist ekki halda að svo væri. Hann seg­ist elska að mála, finnst það skemmti­legt, en gjörn­ing­ur­inn komi frá allt öðrum stað. „Mín nánd við mál­verkið er ekk­ert endi­lega eins og hjá þeim sem fara í nám. Mér finnst bara gaman að mála eins og barni finnst gaman að lita og ég er mjög ánægður með mynd­irnar sem ég mála, svona flestar sko. Þetta er ólíkt, það er að segja að það er ein­hver annar kraftur sem á sér stað þegar ég er í gjörn­ingi.“

Fjall­konan Snorri í góðra vina hópi

Gunnar spurði hann hvort að elds­neytið væri reiði og Snorri sagði að lík­lega væri það svo. Þá að ef reiðin sé elds­neytið væri hún ekk­ert annað en ótti við eitt­hvað sem er staðnað, storknað. Þaðan komi þessi þörf fyrir að sprengja allt í loft upp og brjóta niður efnið sem njörvar sál­ina.

„Ég spyr hann, Goddur hver er minn drif­kraftur og þá segir hann, ANGER, og ég var alveg ha? – tengdi ekk­ert við það, en málið er að það er kraftur í reið­inni. Og já, oft verður gjörn­ingur til þegar ég hef fengið nóg,“ segir Snorri og er að tala um það þegar Goddur, hinn þekkti lista­maður og rann­sókn­ar­pró­fessor við Lista­há­skóla Íslands og vinur Snorra, upp­ljóstr­aði um það hvaðan drif­kraft­ur­inn væri kom­inn.

„Góðan dag­inn hel­vítis mellan þín“

Snorri hefur verið í ein­hvers konar list­gjörn­ingum síðan hann var lít­ill drengur. Gunnar spyr hann einmitt um gjörn­ing sem Snorri fram­kvæmdi sem ungur drengur á götum Akur­eyrar þar sem hann bjó á þeim tíma. Gjörn­ing­inn myndu flestir bara túlka sem dóna­skap og ósvífni, en í augum Snorra var bara eitt mark­mið, að ögra og sprengja kass­ann. Hann sem sagt heils­aði öllum gömlum konum sem hann mætti með því að bjóða góðan dag­inn, en bætti svo við: „hel­vítis mellan þín“.

„Hún spurði mig: „Heyrðu Snorri, viltu hitta sál­fræð­ing,“ oftar en einu sinni og ég sagði bara nei, ég hef engan áhuga á því og þá var það bara útrætt,“ segir Snorri af sam­skiptum sínum við móður sína sem ungur drengur.

„Ég er alltaf í ein­hvers konar leik og talandi um það að ögra, ég þarf líka fyrst og fremst að ögra sjálfum mér, mér finnst ein­hvern veg­inn stöðnun ekki vera í boði.“

Fékk vitrun í fangaklefa

Snorri var drykkju­rútur að eigin sögn. Hann upp­lifði „blackout“ í fyrsta skiptið sem hann drakk og þar með var ekki aftur snúið. Helg­arnar lengd­ust og svo komu efnin. Amfetamín, kanna­bis og e-pillur er eitt­hvað sem hann not­aði óspart með til­heyr­andi vöku­stundum og partíum. Hann sagð­ist þó aldrei hafa skapað list undir áhrifum, þar virð­ist sem ein­hver aðskiln­aður hafi verið til staðar. Botninum náði hann þegar hann var hand­tek­inn heima hjá for­eldrum sínum fyrir norðan og settur í gæslu­varð­hald. Í fanga­klef­anum fékk hann guð­lega vitrun þar sem hann spurði sjálfan sig einnar spurn­ingar. Spurn­ingin var hvort hann ætl­aði sér að vera dópisti og ræf­ill það sem eftir var eða hvort hann ætl­aði sér að fara út í heim­inn og verða stór­kost­legur lista­maður. Hann valdi á þessum tíma­punkti seinni kost­inn. Snorra var svo sleppt úr gæslu­varð­haldi og það fyrsta sem hann gerði var að grafa upp dópið sem hann hafði falið fyrir lög­regl­unni, klára það og svo ekki sög­una meir. Hefur hann ekki snert áfengi eða eit­ur­lyf síðan. 

Snorri var skírður og fermdur og upp­lifði sig sem mikið Guðsbarn, en í kringum 1990 skráði hann sig úr Þjóð­kirkj­unni eftir að komst upp um kyn­ferð­is­af­brot Ólafs Skúla­sonar bisk­ups. Samhliða því las hann bók þar sem fram kom að um 7% allra kaþ­ólskra presta væru haldnir djúp­stæðri barna­girnd. Þessu költi vildi Snorri ekki til­heyra og skráði sig úr Þjóð­kirkj­unni í kjöl­farið. 

Gunnar spurði hvort að hann upp­lifði sig sem upp­hafs­mann eða eins konar braut­ryðj­anda slaufu­menn­ing­ar­innar. Snorri sagð­ist nú ekki vita neitt um það, en sagði nú samt að hann væri þekktur fyrir að sjá inn í fram­tíð­ina og kannski hefði hann í þessum efnum bara séð 30 ár fram í tím­ann.

Vill dansa við dauðann

Snorri vakti upp mikil við­brögð fyrir nokkrum árum þegar hann aug­lýsti eftir líki til að dansa við í eins konar lista­gjörn­ingi. Hann óskaði eftir því að fá að nota jarð­neskar leifar fólks í mynd­bands­verki. Vel var tekið í þessa hug­mynd af mörgum sem skráðu sig á lista sem hann fékk lög­fræð­ing til að krota upp fyrir sig. En allir þessir ein­stak­lingar lifa enn svo af þessum gjörn­ingi hefur ekk­ert orðið, enn sem komið er.

Ljós­myndin er svið­sett. Vona ég.

„Ég er reyndar mjög sterkur, en ég veit líka að það mun verða mjög þungt og þetta verður mjög klaufa­legt, mjög klaufa­legur dans en ég sé það fyrir mér að hann verði mjög skemmti­legur, svona dans­inn við dauð­ann,“ sagði Snorri um fyr­ir­hug­aðan dans sinn við lík.

„Já, eða bara fín­gert lík, mann­eskja, nátt­úru­lega best að þetta væri kona af því að ég er karl­maður og dansa, en ég er ekk­ert gay eða neitt þannig og ég er ekk­ert á móti dvergum heldur,“ segir Snorri er Gunnar spyr hann hvort það væri ekki best að dansa við lát­inn dverg svona af praktískum ástæðum. Snorri bætti við: „Flestir eru bara ágætir, við erum eig­in­lega öll ágæt fyrir utan þessa nokkra sem eru eig­in­lega alveg óþol­andi.“

Það má segja að einu sinni hafi kom­ist smá hreyf­ing í málið þegar Banda­ríkja­maður sem frétti af þessu skrif­aði Snorra og lýsti því yfir að hann mætti fá sitt lík til afnota. Hann skrif­aði ekki undir neitt þessu tengt, en Snorri frétti svo af því að mað­ur­inn hefði svipt sig lífi en hann glímdi við alvar­leg geð­ræn vanda­mál. Snorra brá að sjálf­sögðu við þessar fréttir en svo upp­lifði hann þá til­finn­ingu að mað­ur­inn hefði reynt að þvinga sig inn í verkið. Ferlið hafi samt sem áður verið mik­il­vægt spjall sem hann hafi átti við dauð­ann og klár­lega hluti af gjörn­ingnum sem enn er ekki útfærður að fullu. 

Kötturinn Reykjavík á Akureyri

Snorri fór einnig yfir það í við­tal­inu er hann bauð sig fram til for­seta. Hann sagði þó að hann hefði alls ekki gengið alla leið með það, því of mik­ill hiti hafi verið byrj­aður að skap­ast út frá vafa­samri for­tíð hans. Hann hafi ein­fald­lega bara hætt við þetta og þá sér­stak­lega eftir að dóttir hans, sem var fimm ára, grát­bað pabba sinn að vera ekki for­seti heldur bara halda áfram að vera lista­maður. Snorri upp­lifði ein­fald­lega létti fyrir vikið, enda mikil ábyrgð sem fylgir því að vera for­seti. Gunnar spurði hann hvernig for­seti hann héldi að hann hefði orðið. Snorri yppti öxlum og sagð­ist örugg­lega bara hafa hætt og sagt upp, hann hefði ekk­ert endi­lega nennt því til lengdar.

Kross­festur katta­vinur – frels­ari katta­kyns

„Ég man að ég var að lesa laga­bók­ina, pabbi var lög­fræð­ingur, eitt­hvað sem hét lög­bókin þín og málið er að mér hefur alltaf fund­ist að ég eigi að vera for­seti eða eitt­hvað, en málið er að ég sé að ég verð að vera 35 ára gam­all og ég ákvað að ég ætl­aði bara að bjóða mig fram þegar ég er orð­inn 35 ára, svo það var ekk­ert dýpra en það, þetta var bara gam­all æsku­draumur að bjóða mig fram til for­seta Íslands.“

Snorri hefur nú samt ekki skilið við póli­tík því í haust stofn­aði hann fyrir norðan nýtt stjórn­mála­afl, Katta­fram­boðið. „Ég er búinn að fá kött þarna í fyrsta sæti sem heitir Reykja­vík,“ segir Snorri um Katta­fram­boðið.

Hann seg­ist ekk­ert endi­lega vera búinn að missa trúna á mann­kynið eða mann­inn en að hug­myndin um kosna full­trúa á þing, haldi ein­fald­lega ekki vatni. Fólk er að ota sínum tota og reyna enda­laust að stjórna öðrum með ofbeldi og dólgs­hætti. „Þarna í póli­tík­inni hangir alltaf eitt­hvað á spít­unni og það er egóið sem menn eru að hugsa svo­lítið mikið um. Fólk er alltaf að drep­ast úr stjórn­semi og stjórn­semi er nátt­úr­lega ekk­ert nema ótti.“

Þess vegna hafi hann stofnað Katta­fram­boðið. Katta­fram­boðið hafi orðið til sem afleið­ing þeirra reglna sem settar voru norður á Akureyri hvað varðar bann á lausa­gönguköttum. Gunnar spurði Snorra hvort að þetta sneri að Akur­eyr­ingum og hvort að Akur­eyr­ingar væru ekki bara upp til hópa skrít­inn þjóð­flokkur. Snorri sagð­ist alltaf hafa borið þá upp­lifun innra með sér að Akur­eyr­ingar væru frekar sér á báti, en fyrir ekki svo löngu hafi hann dvalið í ein­hvern tíma fyrir norðan og þá hafi hann náð sáttum við Akur­eyr­inga og séð þá í allt öðru ljósi. „Ég alltaf verið pínu hroka­fullur gagn­vart Akur­eyr­ingum þótt að ég sé fæddur og upp­al­inn á Akureyri.“

Hvað varðar Alþingi er Snorri á því að draga þurfi kenni­tölur fólks inn á þing, svona eins og í Lottóinu. „Ég er á kenni­tölu-lóttó­inu, þú verður bara val­inn til að sitja á þingi í ein­hver viss mörg ár, þú ert bara dreg­inn inn á kenni­tölu, bara eins og kvið­dóm­ur­inn í Banda­ríkj­unum. Þegar ég fór að lesa mér til um anar­k­isma þá sá ég að það ekk­ert mik­ill munur á anar­kista og frjáls­hyggju­manni.“

Meistari Hilarion

Uppátæki Snorra hafi jafnan vakið mikla athygli hér á landi en hann hefur meðal ann­ars selt aflát­brét og látið kross­festa sig, svo fátt eitt sé nefnt. Þá var hann einnig með sam­komu í Egils­höll þar sem meist­ari Hilarion, heil­ari og prestur í must­eri sann­leik­ans í Atlantis, lík­amn­að­ist í Snorra.

Snorri að Snorrast

„Ég er nátt­úr­lega oft svo barns­lega bjart­sýnn að ég hélt að ég yrði millj­arða­mær­ingur bara á því að selja afláts­bréf,“ sagði Snorri er Gunnar spurði hann hvort hann hefði grætt mikið á að lána meist­ara Hilarion lík­ama sinn.

„Það var nóg pláss og þetta var mögnuð sam­koma sko, vin­kona mín sem hefur fylgst með mér í gegnum tíð­ina sagði mér að það hefði bara eitt­hvað gerst þarna, málið er að ég var nátt­úr­lega að opna fyrir fimmtu vídd­ina.“

Aðspurður hvað fimmta víddin væri nákvæm­lega, svar­aði Snorri:

„Ég veit það ekki, ég rugla öllum þessum víddum saman, fimmtu og sjöttu og sjö­undu vídd, en þið getið bara opnað inn á þetta í hug­leiðslu.“

Að lokum er Snorri beð­inn um að segja ein­hver vel valin loka­orð:

„Þetta er bara í góðum far­vegi, þetta fer allt eins og þetta á fara og við eigum ekk­ert betra skilið.“

Þetta stór­brotna tíma­móta­við­tal við einn ást­sælasta og fjöl­hæf­asta lista­mann Íslands má sjá og heyra hér á spil­ar­anum fyrir neðan, auk þess sem nálg­ast má þætti Þvotta­húss­ins á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu