Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Alda Karen segir hugvíkkandi efni vera sýklalyf hugans:„MDMA meðferðin snýst svo mikið um samkennd“

Alda Karen segir hugvíkkandi efni vera sýklalyf hugans:„MDMA meðferðin snýst svo mikið um samkennd“
Alda Karen Hjalta­lín Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varp­inu Þvotta­húsið er engin önnur en fjölta­lent­inn Alda Karen Hjalta­lín.

Alda Karen hefur búið um ára­bil í New York þar sem hún starfar við per­sónu­lega ráð­gjöf og við að þjón­usta fyr­ir­tæki við sölu og mark­aðs­setn­ingu.

Hér er brot úr við­tal­inu:

Alda er aðeins með stúd­ents­próf og enga hák­sóla­menntun, hvorki innan sölu og mark­aðs­mála né sál­fræði eða geð­hjálpar. Allur hennar árangur er byggður á reynslu og mið­ast allur hennar boð­skapur við að deila aðeins sinni reynslu með und­ir­tón ríks inn­sæis sem hún seg­ist hafa notið síðan hún var barn. Hún seg­ist skilja gagnýni á það að hún taki til sín skjól­stæð­inga í einka­tíma í hug­rækt, tengt atvinnu eða per­sónu­legum glímum og taki fyrir það 30.000,- á meðan sál­fræð­ingur með sjö ára háskóla­nám sinni í raun sömu eða svip­aðri vinnu fyrir 18.000,- per tíma en fólk verði að átta sig á að hún stendur ein í þessu, hún sé ekki með neitt örygg­is­net, hún þurfi sjálf að leigja skrif­stof­una og svo fram­vegis.

Gunnar fal­að­ist eftir svörum eða skoð­unum hennar á síauknum geð­grein­ingum og „við­eig­andi” lyfja­gjöfum sem virð­ast vera í veld­is­vexti hér á landi í málum barna og ung­linga sem og full­orð­inna og eldri borg­ara. Alda sagð­ist stíga var­lega til jarðar í þessum efnum enda hafi hún áhuga á að starfa meira með fag­fólki og að þetta sé afar við­kvæmt svæði að fara inn á án sér­fræði­þekk­ingar. Þessu tengt spurði Gunnar hana hvort að hún teldi að lyfja­fram­leið­endur hefðu raun­veru­legan áhuga á að lækna hug­ar­víl og geð­sjúk­dóma. Aftur steig hún var­lega til jarðar en fór úr þessu yfir í sam­tal tengt notkun hug­víkk­andi efna. Hún segir að af per­sónu­legum ástæðum hafi vaknað mikil áhugi hjá henni á mögu­leikum þess­ara efna. Nefndi hún helst MDMA og Psilosobin. Efni sem Þvotta­húsið hefur fjallað tals­vertu um í sínum fyrri þáttum. Alda hélt því fram að með notkun MDMA í með­ferð­ar­um­hverfi og í umsjón fag­fólks sé árang­ur­inn mun betri en við erum vön með hefð­bundnum geð­lyfjum. Segir hún að við séum á þeim stað sem við vorum á áður en að sýkla­lyf komu á mark­að­inn, stöðnuð í eins­konar lyfja­súpu sem hefur sýnt sig að sé ekki taka miklum fram­förum. Enn­fremur segir hún að þessi hug­víkk­andi efni séu í raun sýkla­lyf hug­ans og að við eigum eftir að sjá það betur og betur með auknum rann­sóknum og auk­inni fræðslu að útrýma for­dómum og hræðslu. Með tím­anum munu fleiri og fleiri stíga fram og öðl­ast hug­rekki til að deila sínum reynslum, presónu­legum sem og reynslum skjól­stæð­inga án þess að ótt­ast afleið­ingar frá þeirra akademíska umhverfi.

Alda Karen nefndi dæmi um MDMA með­ferð sem hún frædd­ist um á ráð­stefnu nýverið. „MDMA með­ferðin snýst svo mikið um sam­kennd. Rosalega mikið af ást og fólk nær að sjá sig á svo fal­legan hátt og það sem kom fyrir það og fleira.“

„Það eru engar vís­inda­lega rann­sóknir sem sýna fram á nið­ur­túr en það er hins­vegar fullt af fólki á djamm­inu sem líður ógeðs­lega illa á mánu­degi því það er búið að drekka sig í hel og taka fullt af pillum um helg­ina,“ sagði Alda Karen aðspurð um nið­ur­túra eftir MDMA inn­töku.

Gunnar spurði Öldu í lokin hver loka­orð hennar væru og voru þau mjög skýr, „Þú ert nóg.“

Þennan frá­bæra þátt má sjá í heild sinni hé rá spil­ar­anum hér að neðan sem og að má finna Þvotta­húsið á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu