Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Örn Karlsson tölvufræðingur seldi og gerðist bóndi: „Gunnar Smári keypti. Þá var hann kapítalisti“

Örn Karlsson tölvufræðingur seldi og gerðist bóndi: „Gunnar Smári keypti. Þá var hann kapítalisti“

„Ég kynnt­ist Jóni Bern­ód­us­syni sem var frum­kvöð­ull í því að reyna að byrja að rækta repju­jurt­ina á Íslandi,“ segir Örn Karlsson, bóndi á Sandhóli í Með­al­landi, Skaft­ar­hreppi, í við­tali við Guðna Ágústs­son þar sem þeir koma víða við og bætir við að árið 2009 hafi hún verið fyrst ræktuð hér á landi. „Hann var þá hjá Sigl­inga­stofnun sem rann svo inn í Sam­göngu­stofu og þá var pæl­ingin hvort það væri hægt að búa til líf­díselolíu úr repj­unni til að knýja fiski­skipa­flot­ann. Hann fór á nokkra staði á land­inu og próf­aði og þetta gekk svona mis­vel. Ég tal­aði við Ólaf á Þor­valds­eyri sem var einn af þeim sem próf­aði þetta og við fórum síðan að prófa að rækta þetta og lentum í smá­basli fyrst vegna þess að þetta var nýtt á Íslandi og það er mis­mun­andi yrki; þú ert að prófa vetr­ar­yrki og sum­ar­yrki og svo eru mis­mun­andi teg­undir og stundum voru mikil afföll. Og við héldum áfram. Nú erum við búin að ná mjög góðum tökum á þessu og erum að rækta repju. Við tökum fræin úr henni, pressum það og búum til repju­olíu sem við seljum í versl­unum og seljum í sápu­gerð. Hesta­fólk er að kaupa olí­una okkar til að gefa hest­unum sínum og svo það sem manni datt ekki í hug: Útgerðin kaupir tölu­vert magn af okkur; línu­bátar þurfa að smyrja línu­krók­ana – ég kann ekki alveg að útskýra það – og þeir geta ekki notað jarð­efna­olíu í það vegna þess að þá kemur það í fisk­inn. Þeir kaupa tölu­vert af okkur.“

Örn segir að 40 hekt­arar séu not­aðir undir repj­una. Svo ræktar hann meira.

„Já, svo erum við með bygg og byggið höfum við verið að selja í fyr­ir­tæki sem heitir Eimverk sem er að búa til flóka­viskí; búa til viskí úr íslensku hrá­efni.

Svo erum við með hafrana; þá erum við að búa til hafra­mjöl og selja til mann­eldis. Svo höfum við verið með naut­gripi sem við gefum bygg og hafra og höfum notað hálm­inn; við fáum gríð­ar­lega mik­inn hálm. Við erum að nota hann sjálf og Flúða­sveppir hafa verið að kaupa svo­lítið af hálmi frá okkur.“

Við fengum styrk frá Mat­væla­sjóði til þess að skoða að búa til hafra­mjólk.

Þetta er mikið frum­kvöðla­starf sem Örn vinnur.

„Já. Svo viljum við halda áfram með hafrana. Við fengum styrk frá Mat­væla­sjóði til þess að skoða að búa til hafra­mjólk og unnum það með Matís og það heppn­að­ist full­kom­lega. Og það er alltaf að verða meiri og meiri neysla á jurta­drykkjum á Íslandi. Ég held að nýj­ustu töl­urnar séu frá 2017 og þá var flutt inn 1,1 milljón lítrar af hafra­mjólk. Þetta er hægt að gera. Það er nátt­úr­lega tölu­verð fjár­fest­ing að fara að búa til verk­smiðju fyrir það; við fengum svaka­lega fína vöru í til­rauna­eld­húsi. Þetta er mjög ein­föld vinnsla í raun og veru. Þetta er hafrar, vatn og svo þarf ensím til þess að brjóta niður sterkj­una í höfr­unum.“

Örn hefur heim­sótt mörg bú í Norður-Evrópu og skoðað hvað gert er á fær­ustu búunum. Hann seg­ist læra mikið af því. „Svo höfum við verið í tölu­verðu sam­starfi við Land­bún­að­ar­há­skól­ann. Þeir eru til dæmis með hafra­til­raun hjá okkur. Og Matís sem er með mjög færa vís­inda­menn sem og Land­bún­að­ar­há­skól­inn.“

Í tölvubransanum

Bóndinn á Sandhóli er ein­birni. „Ég ólst upp hjá móður minni; hún var ein­stæð móðir. Við bjuggum á mörgum stöðum í Reykja­vík; maður flutti oft í æsku og maður var alltaf að skipta um vini. Mamma var smá að hrekj­ast en ég var alltaf á sumrin frá sex ára aldri á Búrfelli í Miðfirði í Húna­vatns­sýslu hjá bróður mömmu. Hann er fall­inn frá; hét Eiríkur Tryggva­son.“

Það var skráð breskt fyr­ir­tæki sem keypti ákveð­inn hug­búnað af okkur.

Örn fór mörgum árum síðar í tölvu­nám í Svíþjóð þar sem  hann bjó í þrjú ár. „Ég kom svo heim og stofn­aði þá fyr­ir­tæki með Vil­hjálmi Þor­steins­syni árið 1983 og seldum við það 1996; það hét Íslensk for­rita­þróun. Ég hef alltaf verið í frum­kvöðla­starf­semi meira og minna; líka í þessu land­bún­að­ar­brasi sem ég er í núna.“ Hann segir að fyr­ir­tæk­inu hafi eig­in­lega verið skipt í tvennt þegar þeir seldu. „Það var skráð breskt fyr­ir­tæki sem keypti ákveð­inn hug­búnað af okkur og við fórum að vinna fyrir það þangað til árið 2000 en þá stofn­aði ég annað „start up“-fyr­ir­tæki í hug­bún­aði sem lifði reyndar ekki mjög lengi en alveg frá stofnun Kögunar var ég þar í stjórn og varð síðar for­maður. Við seldum það svo 2006 til Dags­brúnar; Gunnar Smári keypti. Þá var hann kap­ít­alisti. Núna er hann sós­í­alisti.“

Örn seg­ist hafa látið gamlan draum ræt­ast. „Ég fór í land­bún­að­ar­störf,“ segir Örn sem er einnig mennt­aður búfræð­ingur frá Land­bún­að­ar­há­skól­anum á Hvann­eyri en þar var hann áður en hann fór í háskóla­námið í Svíþjóð. „Við keyptum jörð austur í Skafta­fells­sýlu í Með­al­landi, Sandhól. Og hófum þar búskap.“

Hann segir að heima­landið sé um 150 hekt­arar. „Svo erum við í óskiptri sam­eign með þremur öðrum jörðum sem eru 1900 hekt­arar en það er mikið sandar og fjörur.“

Örn er ekki einn í þessu. „Hörður Daði Björg­vins­son er bústjór­inn og hann er aðal­mað­ur­inn á búinu; hann sér um þetta frá degi til dags. Björgvin, faðir hans, kemur og hjálpar okkur á álags­tímum þegar þarf að þreskja og svona. Og Viðar, bróðir hans, hefur verið mikið við og Arndís, fyrr­ver­andi konan hans, líka meðan hún bjó þarna.“

Örn er kvæntur maður. Konan hans heitir Ellen Gunn­ars­dóttir. Synirnir eru tveir. Báðir upp­komnir.

Bullandi tap

Aftur að naut­grip­unum.

„Nauta­búið er í dag um 180 ber­andi kýr. Það er þrefalt það þegar það er flest. En við erum hins vegar að draga mikið saman þar. Það er bara bull­andi tap. Það bara stendur ekki undir sér.“

Örn segir að þau hafi fengið einn Angus-tudda. „Svo er honum hleypt á ein­hverjar 30 kýr og svo koma kálfar árið eftir og svo þurfa þeir að verða kyn­þroska. Þetta tekur langan tíma. Það hefur verið svo­lítil hindrun í allri kjöt­rækt og nauta­kjöts­rækt á Íslandi að við höfum verið með slakt hrá­efni en það stendur til bóta. En það tekur tíma.“

Örn segir að byggið sem notað er fyrir naut­grip­ina sé valsað áður en það er sett ofan í naut­grip­ina. „Þannig að það er ekki mikil vinnsla á því.“

Þetta er úti­hjörð sem gengur úti allt árið en hún kemst inn í skjól þegar veður er vont.

„Við stýrum þessu þannig að kýrnar bera á vorin og kálfarnir ganga bara með mæðrum sínum þangað til hag­inn er búinn ein­hvern tím­ann í októ­ber/nóv­em­ber og þá eru frá­færur; þá tökum við kálf­ana frá mæðr­unum, kúnum, og setjum þá inn í fjós og þar fara þeir í sterkt eldi í um ár áður en þeir fara í slát­ur­hús. Við erum að slátra grip­unum þegar þeir eru svona 18-22 mán­aða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu