Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sveppameðferð bjargaði lífi Þorsteins Úlfars: „Oftar en þrisvar staðið á brúninni með að drepa mig“

Sveppameðferð bjargaði lífi Þorsteins Úlfars: „Oftar en þrisvar staðið á brúninni með að drepa mig“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er eng­inn annar en rit­höf­und­ur­inn, afglæpasinn­inn og hampakti­vist­inn Þor­steinn Úlfar Björns­son. Hér er brot úr við­tal­inu.

Glímdi við þunglyndi í 30 ár

Gunnar spurði Þorstein hvort að THC í það litlu magni að það valdi ekki vímu, sé óhollt fyrir fólk. „THC er ekki óhollt, punktur. Þeir eru búnir að reyna að drepa hunda, þeir eru búnir að reyna að drepa fólk, með því að gefa þeim hreint THC.“

Gunnar spurði þá að bragði „Já en hvað gerir THC fyrir okkur?“ Þor­steinn glotti og svar­aði: „Það lætur okkur líða vel.“ Gunnar spyr áfram „Burtséð frá því, af því að þú getur tekið snef­il­magn af THC og þú ert kannski ekki að upp­lifa mikla vímu, hvað er það að gera fyrir kerfið?“ „Þetta hefur sjálf­sagt til dæmis róandi áhrif eða ein­hver áhrif hefur hann ef hann virkar þannig en þetta er allt í rann­sóknum og óstað­fest sjáðu til.“

Gunnar sagði Þor­steini frá því að CBD hefði breytt lífi hans síð­ustu ár og hafði Þor­steinn frá svip­aðri reynslu að segja en í hans til­viki var það svepp­ur­inn sem bjarg­aði bók­staf­lega lífi hans. „Eins og sílósíbin gerði fyrir mig,“ sagði Þor­steinn og átti við sveppa­með­ferð gegn þung­lyndi. „Ég fór í svona sól­ósíbin með­ferð, búinn að vera að drep­ast úr þung­lyndi í 30 ár og hef oftar en tvisvar og oftar en þrisvar staðið á brún­inni með að drepa mig. Ég fer í eina með­ferð, eina alvöru með­ferð fyrir þremur árum, það er und­ir­bún­ingur með sál­fræð­ingi, það er með­ferð með með­ferð­ar­að­ila sem sat yfir mér allan tím­ann og svo eft­ir­vinnsla á eftir. Og ég var bara „Vá, þetta var mögnuð reynsla og bla, bla, bla“ en svo líða ein­hverjar þrjár vikur og ég er úti í bíl­skúr eitt­hvað að gera, senni­lega að troða mér í pípu eða eitt­hvað, þegar ég finn þessa gam­al­kunnu til­finn­ingu, svona doða­til­finn­ingu í herð­unum og niður hand­legg­ina. Ekki óþægi­leg til­finn­ing, ekki þægi­leg en óhugn­an­leg til­finn­ing vegna þess að ég vissi hvað hún tákn­aði. Ég hugs­aði með mér „Ó fuck, er ég að fá þung­lyndiskast núna?“ en svo liðu fjórar, fimm sek­úndur og ég hugs­aði bara „Nei, ég er ekki að fá þung­lyndiskast núna, þetta er bara rugl“ og hélt áfram. Og ég hef ekki fundið fyrir þung­lyndi síðan!“

En hvað er það sem svepp­ur­inn er að gera fyrir mann í svona með­ferð?

„Hann er að end­ur­tengja heila­brautir sem þú hefur ekki notað síðan í frum­bernsku. Rétt á meðan þú ert á tripp­inu.“

Gunnar spyr þá hvort hann skilji þetta rétt, að þegar til­finn­ingin kemur, sem hann tengdi áður við þung­lyndiskast, getur hann um leið hoppað yfir í aðra teng­ingu og komið þannig í veg fyrir kastið. Sagði Þor­steinn að það væri alveg rétt skilið hjá honum.

Búfénaður hætti að nærast á hampi

Wiium bræður minn­ast á það í við­tal­inu að vitað sé um sirka 130 ólíkir kannabínóðar Kanna­bis­plönt­unar en þeir þekkt­ustu eru THC og CBD. Þeir kannabínóðar eru mest rann­sak­aðir og því mest vitað um þá. Má segja að THC sé eini kannabínóð­inn í plönt­unni sem veldur vímu­á­hrifum á meðan kannabínóði eins og CBD veldur ekki vímu. Rann­sóknir hafa sýnt að CDB sé að hafi gríð­ar­lega mikil áhrif á hug og lík­ama í gegnum kerfi sem er skamm­stafað ECS en stendur fyrir endocannabinoid system.

Þetta kerfi var uppgvötvað fyrir um 30 árum síðan af ísra­elskum vís­inda­mönnum.
Um er að ræða kerfi innan lík­ama hverrar mann­eskju sem er sér­stak­lega hannað til að taka á móti kannabínóðum og aðeins þeim. Þekktir við­tak­arar innan þessa kerfis voru tveir þar til fyrir stuttu er einn til við­bótar bætt­ist við. Síðan Kannabis komst á svarta list­ann fyrir um 100 árum hefur ECS kerfið svelt og eru afleið­ing­arnar afar slæmar.

Búfén­aður sem áður nærð­ist á hampi fór að éta gras og það þýddi að við fórum að hætta að fá CBD meðal ann­ars með kjöt­inu sem við átum, mjólk­inni sem við drukkum og eggj­unum sem við borð­uðum. Læknar fengu ekki að upp­á­skrifa Kannabis lengur og því hvarf virkni þessa kerfis og heldur Þor­steinn að þess vegna séum við að horfa á vax­andi sjúk­dóma tengt bólgum svo eitt­hvað sé nefnt sem og geð­sjúk­dóma og vax­andi alka­hól­isma.

Möguleikar hampsins óendandlegir

Mögu­leikar hamps­ins sem hrá­efni eru óend­an­legir. Þeir ræddu um í við­tal­inu hvernig bæta þurfa inni­viði hamp­ræktar á Ísland með reynslu sem og auk­inna mögu­leika á nýt­ingu og sölu hamps­ins eftir ræktun. Þetta vildi Þor­steinn meina að sé í vinnslu og að þetta ferða­lag taki tíma og að við séum að sjá breyt­ingar í veld­is­vexti frá ári til árs.  Þor­steinn sér mik­inn mögu­leika í hamp­inum á Íslandi og segir að við eigum í raun ekki ann­arra kosta völ en að færa okkur inn í umhverf­is­vænni fram­leiðslu á hrá­efnum fyrir iðnað. Hann seg­ist vera bjart­sýnn og viti að miklar breyt­ingar séu í vændum og að stór­fyr­ir­tækin sjái hag sinn í auknu mæli í að rækta hamp eða kaupa hamp af bændum lands­ins.

Þegar Þor­steinn er beð­inn um að koma með loka­orð stendur ekki á svari: „Það þarf að afglæpa­væða þetta og fara að fram­leiða lyfja­hamp. Og gera út á túrista, það er gert í Hollandi, þar gera þeir út á Kannabis-túrisma sem skilur eftir mik­inn pen­ing í hag­kerf­inu. Tælend­ingar gera þetta líka. Þjóð­verjar, Ítalir og Frakkar, þeir gera út á gott vín, af hverju gerum við ekki út á gott Kannabis? Það er miklu minna vesen af Kannabis-reykj­urum en fylli­byttum nokk­urn­tím­ann.“

Þennan afar athygl­is­verða þátt má sjá i heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan eða heyra á flestum streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu