Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Soffía villingur: „Flestar konur með mína sögu, lifðu þetta ekki af“

Soffía villingur: „Flestar konur með mína sögu, lifðu þetta ekki af“

Nýjasti gestur bræðr­anna í Þvotta­hús­inu er hin elsku­lega Soffía H. Gunn­ars­dóttir, einnig þekkt sem Soffía vill­ingur. Soffía sem er þriggja barna móðir úr Breið­holt­inu fór yfir sögu sína og áföll en hún ólst upp með föður sínum til tíu ára ald­urs sem beitti hana og móður hennar ólýs­an­legu ofbeldi, and­legu, lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu. Viðtalið markar árs­af­mæli Þvotta­húss­ins og er þátt­ur­inn númer 66. Gunnar tók við­talið einn í þetta skiptið sökum þess að Davíð var vant við látin í ein­angrun sökum greinds Covid smits.

Þessi reynsla sem Soffía fór yfir í þessu við­tali hefur haft ómæl­an­leg áhrif á hana á flestum sviðum. Hún lýsir því hvernig kyn­ferð­is­legt ofbeldi sem faðir hennar beitti hana frá því að hún var unga­barn hefur mótað hana og hennar getu til að viðthalda heil­brigðum sam­skiptum, hvort sem um er að ræða í platónskum sam­böndum eða nánum ást­ar­sam­böndum.

Soffía lýsir því í þessu við­tali hvernig Gunnar faðir hennar byrj­aði aðeins að und­ir­búa (e. grooming) hana sem unga­barn með óvið­eig­andi strokum og snert­ingum heldur mjög fljót­lega fór hann að taka hana með sér til vina sinna þar sem hún var ein­fald­lega lánuð til svo­kall­aðra vina föður hennar.

„Menn­irnir sem sóttu í að vera með mér þegar ég var krakki. Pabbi minn fór með mig heim til vina sinna og, and you can only imagine what that means,” sagði Soffía.

Enn þann dag í dag geta ákveðin sam­skipti við karl­menn kveikt á end­ur­minn­ingum eða „flashback“ og stundum er eitt­hvað allt annað sem vekur upp þessar minn­ingar.

„Það er eins og ein­hver komi til mín og segi, „Hey, pabbi þinn kom inn til þín á næt­urnar”, og ég bara „já, þess vegna svaf ég ekki á næt­urnar, þess vegna fór mér að ganga illa í skól­anum”. Já, ég man, þessi maður mis­not­aði mig í þessum bíl og hann fór lengra yfir lín­una heldur en ég hafði nokkurn tíman upp­lifað, það var sárs­auki sem fylgdi þess­ari til­finn­ingu, þess­ari minn­ingu, ég gat ekki andað, ógeðs­legt, svona hrylli­legt trauma,” sagði Soffía um minn­ingu sem hún hefur af atburði er faðir hennar skildi hana með­vitað eftir í bíl með vini hans með sæl­gætis­poka í fang­inu.

Þessi við­brögð hennar og upp­lif­anir hafa reynst henni erfið í sam­böndum sínum við menn sem á mis­mun­andi hátt og kannski óaf­vitað færa sig of nálægt þeim mörkum sem Soffía hefur sett sér ómeð­vitað sjálfri sér til sjálfs­verndar.

„Heilinn á mér þekkir trauma­bond­ing, það er það sem er honum eðli­legt, trauma­bond­ing eru sam­skipti þar sem ég fer inn í sam­skipti sem eru erfið, óþægi­leg og áfalla­tengd og í staðin fyrir að bakka út og segja wowow þetta er komið of mikið, ég get ekki meir þá fer míns bara að gefa í,“ sagði Soffía við Gunnar.

Fljót­lega eftir að Soffía komst á ung­lings­ald­ur­inn fór hún að með­höndla þessi áföll með áfengi og öðrum hug­ar­fars­breyt­andi efnum. Hún fann doð­ann sem til þurfti í neyslu, doð­ann sem þurfti því undir engum kringu­stæðum var hún til­búin að horfast í augu við sárin sem hún bar innra með sér.

Neyslan tók auð­vitað sinn toll og mark­aði hana enn frekar en um tví­tugt náði hún að verða edrú með hjálp 12 spora sam­taka og upp frá því öðl­að­ist hún getu til að leita uppi verk­færin sem til þurfti í þeim til­gangi að leysa upp þessar djúpu áfalla­eindir sem hverfa bara ekk­ert af sjálfum sér þótt það sé það sem margir ein­lægt vilja trúa, að tím­inn lækni öll sár, það er víst ekk­ert alltaf raunin.

Soffía hefur lagt gríð­ar­lega vinnu í að heila sjálfið og er stendur sú vinna ávalt yfir en hún hefur kom­ist langt á þeim tæpu tutt­ugu árum hún hefur unnið með þessi áföll með hjálp Stíga­móta, þerapista og 12 spora vinnu. Soffía ber innra með sér þá ein­lægu ósk að geta verið nýtur sam­fé­lags­þegn og nefnir í því sam­hengi að geta einn dag­inn kom­ist út á vinnu­mark­að­inn sem og deilt fullu sam­eig­in­legu for­ræði yfir stelp­unum sínum þremur sem í augna­blik­inu eru í for­sjá feðra sinna en hún er eins og er, eins­konar helg­ar­mamma.

„Ég get alveg lofað þér því Gunnar að ef að ég væri ennþá í neyslu þá hefði ég orðið ein­hver svona kókaín drottn­ing sem að myndi bara smala til sín svona barn­a­níð­ingum og kyn­ferð­is­af­brota­mönnum og svo myndi ég bara fá ein­hverja hand­rukk­ara til að taka þá niður og henda þeim út í hraun,“ sagði Soffía og bætti svo við: „Og ég hefði lík­lega bara ekk­ert sam­visku­bit yfir því.“

Soffía segir að það sé í raun ótrú­legt að hún hafi náð bata því ofbeldið var svo hrotta­legt. „Flestar konur með mína sögu, lifðu þetta ekki af.“ Til­gangur Soffíu með að segja sögu sína á þennan hátt er ein­lægur. Hún óskar þess inni­lega að mann­eskjur óhað kynjum sjái mögu­lega eitt­hvað í sögu sinni sem þau geti speglað sig í. Þaðan von­ast hún til að þau sem það gera, sjái að um von er að ræða hvað varðar úrvinnslu áfalla­einda sem sitja í lík­am­anum eins og gam­alt kenn­aratyggjó. Það eru leiðir sem leiða að sátt og frið og finnst henni mik­il­vægt að koma þess­ari sögu út í kosmósið, sögu sem inni­heldur allt þetta við­ur­styggi­lega ofbeldi en einnig upp­risu og sýn á mögu­leika manns­ins til að rísa upp úr ein­hverju sem lítur úr fyrir að vera óyf­ir­stíg­an­legt en er það svo raun­veru­lega ekki. 

„Fyr­ir­gefn­ingin í þessu sam­hengi hjá mér er bara, þetta er allt brennt, fyr­ir­gefn­ingin er að núna klippum við þetta í burtu, öll aðstoðin sem ég er að fá, allt sem ég er að gera mun búa til nýtt cover. Fyr­ir­gefn­ing þýðir eig­in­lega bara að klippa í þessu sam­hengi, ég þarf ekki að hafa samúð með honum, þarf ekki að skilja hann og ég þarf ekki að þvinga mig eitt­hvað með „Þetta er nú einu sinni pabbi þinn“, fokk­ing kjaftæði!“ sagði Soffía og bætir svo við.

„Það er bara alvar­leg með­virkni, einu sinni reyndi ég að fara inn í eitt­hvað svona með hann væri nú bara sært barn og blabla og var eitt­hvað að biðja fyrir honum og innra barn­inu hans og svo hitti ég hann í strætó óvart og sagði eitt­hvað við hann „Ég elska þig pabbi“ sem var nátt­úru­lega bara kjaftæði því ég elskaði hann ekki rass­gat.“

Í lokin segir Soffía. „Já, við búum öll yfir mannúð, við erum öll búin til úr ljósi og við erum öll hérna til að deila þessu wonders of life og því meira sem þú fattar um sjálfan þig, hvaðan þú ert að koma því meiri ástúð og umhuggju getur þú sýnt barn­inu í sjálfum þér og þar af leið­andi verður þú betra for­eldri, þó að það sé ekki nema bara að vera for­eldrið þitt.“

Það skal sagt að lýs­ing­arnar sem koma fram í við­tal­inu eru mögu­lega ekki fyrir við­kvæma.

Viðtal þetta birt­ist fyrst hjá Mannlíf í jan­úar á þessu ári en datt út þegar brot­ist var inn á rit­stjórn­ar­skrifs­stofu Mannlífs eins og frægt er orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu