Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Frænka Halldóru fékk ekki að nota kannabis í dauðastríðinu: „Bara ótrúlega ljót framkoma“

Frænka Halldóru fékk ekki að nota kannabis í dauðastríðinu: „Bara ótrúlega ljót framkoma“
Halldóra við vinnu­stað sinn. Mynd: Aðsend

Hamp­fé­lagið stendur á bak­við HAMPKASTIÐ sem eru umræðu­þættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálf­sögðu um HAMP. Þátta­stjórn­endur eru stjórn­ar­menn Hamp­fé­lags­ins Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs. Gunnar Dan Wiium sér um úrvinnslu og frétt­ar­skrif og Sigfús Ótt­ars­son um tækni­mál. Gestir þátt­ar­ins verða bæði íslenskir og erlendir sér­fræð­ingar á sínu sviði um nýt­ingu hamps. 

Nýjasti gestur Hamp­kasts­ins er þing­kona Pírata, Halldóra Mogensen. Halldóra er mikil bar­áttu­mann­eskja fyrir hamp­inn enda mikil nátt­úru­mann­eskja. Móðir hennar starfar sem grasa­læknir og nála­stungu­sér­fræð­ingur og því má segja að Halldóra alist upp við óhefð­bundnar og nátt­úr­legar lækn­ingar frá blautu barns­beini. Þar að auki ólst hún upp í sveitum Bret­lands og segir að þar hafi þótt eðli­legt að fólk reykti Kannabis. Hún segir að þar hafi kanna­bis ekki verið eins mikið tabú og hún upp­lifði svo á Íslandi.

Halldóra í Alþing­is­hús­inu.

Fékk ekki að lina sárs­auk­ann

Frænka Halldóru greind­ist með krabba­mein sem svo dró hana síðar til dauða en hún not­aði einmitt kanna­bis til að lina kvalir sínar á meðan á með­ferð stóð. Hún not­aði olíu sem hjálp­aði henni gríð­ar­lega en lög­reglan tók af henni olí­una og segir Halldóra að henni hafi fund­ist það svo gríð­ar­lega ljótt að upp­lifa að eitt­hvað sem var að auka lífs­gæði frænku sinnar á erf­iðum tímum, væri svo bara tekið af henni í nafni ómann­eskju­legs reglu­verks.

„Þessi jurt hjálp­aði henni mjög mikið. Hún var með olíu. En auð­vitað var þetta alveg kolólög­legt hér heima og erfitt fyrir hana að fá þetta og annað. En þetta aðstoð­aði hana alveg gríð­ar­lega að líða betur. Lífs­gæðin hennar voru að aukast. Þetta aðstoð­aði hana við að líða betur á meðan á erf­ið­asta tím­anum stóð. En svo fékk hún þetta ekki, lög­reglan tók þetta af henni og annað og mér fannst þetta vera svo gríð­ar­lega ljótt. Að koma fram við mann­eskju sem er að berj­ast fyrir lífi sínu, þú ert að að reyna að auka lífs­gæðin þín og hvað, þú mátt ekki nota það meðal sem aðstoðar þig að líða betur í veik­ind­unum þínum. Á sama tíma er ekk­ert sem læknar geta boðið henni sem er að aðstoða hana á þann hátt sem hún er að sækj­ast eftir. Þannig að mig lang­aði til að leggja fram mál til að leið­rétta þetta því mér fannst þetta bara ótrú­lega ljót fram­koma og ég veit að það er mikið af fólki hér á Íslandi sem að sæk­ist í þetta til að aðstoða þau í þeirra veik­indum út af því að þetta er að bjóða upp á eitt­hvað sem hefð­bundin lyf geta ekki boðið.“

Að verða vitni að þessu órétt­læti sem frænka hennar varð fyrir gerði það að verkum að Halldóra ákvað að gera allt sem hún gæti til að leggja sitt á voga­skál­arnar í bar­átt­unni við að lög­leiða kanna­bis.

Kerfið innra með okkur

„Þetta er partur af því hver við erum, þetta allt í kringum okkur, inn í lík­am­anum okkar, í heil­anum okkar og í raun bara ótrú­legt að segja að þessi planta sem er búið að rann­saka svona mikið sé bara ólög­leg og að við megum ekki hafa aðgang að henni,“ segir Halldóra og er þá að vísa í ECS kerfið sem stendur fyrir Endocannabinoid system. 

Kerfið sem um ræðir eru mót­tak­arar sem taka við kannabínóð­unum og eru í öllum aðal líf­færum okkar og hafa stjórn á ýmissi starf­semi í manns­lík­am­anum. Starf­semi á borð við  svefn, lund, mat­ar­lyst og melt­ingu, minni, bólgu­myndun, húð­vanda­mál, end­ur­heimt og frjó­semi. 

Kerfið var upp­götvað af tékk­neskum vís­inda­manni árið 1992 í Ísrael og við þessa upp­götvun komust vís­inda­menn að því að lík­am­inn fram­leiðir sína eigin kannabínóða í marg­vís­legum til­gangi sem kerfið, ECS er hannað til að taka á móti. 

Sigurður bætir svo við að rann­sóknir sýna að lík­am­inn leit­ast eftir að halda kannabínóðum eins lengi og hægt er eftir inn­töku ólíkt öðrum efnum eins og alka­hól og önnur kemísk efni sem lík­am­inn upp­lifir sem eitur og reynir að fyrir vikið að losa sig við eitrið á eins skömmum tíma og unnt er.

Fordómar sögunnar

Halldóra talar um for­dóma og segir að er maður fer að skoða sögu fíkni­stríðs­ins þá sé það aug­ljóst að það á klár­lega sínar rætur að rekja í ras­isma. Það voru sett lög í þeim til­gangi að hafa stjórn á minni­hluta­hópum sem stjórn­völdum fannst vera til trafala. Allt á þetta rækjur sínar að rekja til Banda­ríkj­anna þar sem þangað komu inn­flytj­endur en það var þá tekið upp á því að banna þau vímu­efni sem þessir hópar voru að nota. Þessir for­dómar beindust mest að Mexíkóum og má segja að orðið mari­ju­ana hafi fengið byr undir vængi í sam­hengi við sam­heitið latur Mexíkói. Bann­stefnan smit­að­ist svo í iðn­að­inn og hags­muna­að­ilar í papp­írs­iðn­aði og bind­indispost­ular settu af stað hreyf­ingu sem svo átti eftir að vinda upp á sig gera hamp­inn ólög­legan. 

Stál­iðn­aður, textíl, plast og pappír komu sterkt inn í bárátt­una sem sterkir hags­mun­ar­að­ilar á móti allri hamp­rækt. Í ára­tugi hefur hamp­ur­inn og hans óend­an­legu mögu­leikar ein­fald­lega legið nán­ast í dvala sökum áróð­ur­her­ferðar hins kap­ít­al­íska iðn­aðar.

Saga hampsins á Íslandi

Sigurður þátta­stjórn­andi fer í við­tal­inu aðeins yfir sögu hamps­ins á Ísland sem er í raun mjög áhuga­verð er skoðuð. Til eru gögn um að land­náms­menn hafi flutt með sér hamp­fræ til Íslands og hafa hamp­fræ fund­ist í vikn­ing­ar­gröfum svo eitt­hvað sé nefnt. Hampur var rækt­aður mikið á Íslandi hér á öldum áður og meðal ann­ars við Bessa­staði. Fyrstu skráðu heim­ild­irnar um ræktun hamps var hann Vísi-Gísli sem sendi syni sínum árið 1670 bréf þar sem hann er lýsa til­raunum sínum á ræktun inn­fluttra plantna og hampur var þar á meðal. Sigurður segir einnig frá Skúla Magn­ús­syni fógeta sem skrifar um hamp­ræktun á átj­ándu öld sem hafi tek­ist mjög vel. Árið 1969 gera stjórn­völd bændum ómögu­legt að kaupa fræ með þeirri aðferða­fræði að til þess að kaupa fræin þurftir þú að hafa sér­stakt leyfi sem svo ekki veitt. Þessi ofbeld­is­fulla kúgun og bæl­ing hélst í rúma þrjá ára­tugi en upp úr 2000 fóru Íslend­ingar að grúska aftur í hamp­ræktun.

Lögleiðing stendur í stað

Á síð­ustu árum er margt búið að breyt­ast og í raun sé staðan sú að ræktun á iðn­að­ar­hampi er lög­leg en Ísland er að bíða eftir ákvörðun frá ES varð­andi það hvort leyfa megi CBD sem fæðu­bóta­efni. Halldóra og Sigurður finnst það báðum skrítið þar sem við séum ekki í Evr­ópu­sam­band­inu og gætum búið til okkar eigin lög­gjöf og staðla í þessum efnum. Ef við horfum til Evrópu sjáum við í málum sem snúa að krabba­meins­með­ferðum hjá þjóðum eins og Þýska­landi þar sem krabba­meins­sjúk­lingum er ávísað kanna­bis sam­hliða hefð­bundnum krabba­meins­með­ferðum með mjög góðum árangri. Þar að auki er staðan þannig í Þýska­landi að ákvörðun um fulla lög­leið­ingu hamps­ins hefur verið tekin og mun sú breyt­ing ganga í gegn á næsta ári sem þykir stórt skref og lýsandi fyrir mögu­leika Íslands hvað varðar frum­kvæði í málum sem snúa að almennri líð­heilsu, umhverf­is­málum og fram­leiðslu af nátt­úr­legu hrá­efni í iðnað.

Halldóra sátt við upp­sker­una.

Hallóra fór yfir það hvaða þings­á­lykt­un­ar­til­lögur hafa verið lagðar fram varð­andi hamp­inn en hún hefur lagt fram tvær þings­á­lykt­anir, aðra um lyfja­hamp sem var kæfð í fæð­ingu og svo hina varð­andi CBD sem varð til þess að mál­efni hamps­ins voru færð frá Heil­brigð­is­ráðu­neyti yfir í Mat­væla­ráðu­neyti sem sem lög­leið­ing CBD stendur föst en Svandís Svav­ars­dóttir ráð­herra hefur tekið afstöðu gegn CBD og því hreyf­ist málið ekki. 

Ásmundur Frið­riks­son lagði svo fram þingslá­lyktun varð­andi lyfja­hamp sem hefur einnig ekki fengið fram­gang í vel­ferð­ar­nefnd.

Vill opið samtal við heilbrigðisstarfsfólk

Halldóra seg­ist finna fyrir miklum for­dómum og þekk­ing­ar­leysi í kringum sig hvað varðar kanna­bis. Hún segir skort á þekk­ingu ekki aðeins ein­kenna ráð­herra og aðra alþing­is­menn heldur líka virð­ist hún einnig vera ein­kenn­andi meðal heil­brigð­is­fólks. Hún segir mikla þörf vera fyrir fag­lega nálgun lækna­stétt­ar­innar í málum sem snúa að eig­in­leikum kanna­bis í með­ferðum við hinum ýmsu kvillum. Þessi skortur á fag­fólki í umræð­unni gerir það á verkum að henni finnst bar­áttan standa svo­lítið í stað og henni finnst erfitt að standa í rök­ræðum við heila lækna­stétt sem byggja mál sitt á því að lítið sé búið að rann­saka plönt­una sem Halldóra veit að sé alls ekki rétt þótt svo að hún sé ekki mann­eskjan sem búi yfir þeirri fag­legu þekk­ingu sem til þarf til þess að rök­ræða við heil­brigð­is­starfs­fólk. 

Halldóra óskar eftir heil­brigð­is­starfs­fólki sem hafa áhuga á að koma að máli við hana og taka opið spjall um gagn­semi kanna­bis til þess að opna fyrir umræð­una og koma henni á hærra stig. 

Þetta upp­lýsandi við­tal má sjá á spil­ar­anum hér fyrir neðan auk þess sem það finnst á öllum helstu streym­isveitum. Þá má einnig benda á að auð­velt er að skrá sig í Hamp­fé­lagið á hamp­felagid.is og fá þar reglu­legar til­kynn­ingar um það sem er að ger­ast í hamp­brans­anum á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu