Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Bleika sæta kaffihúsið á Akureyri: „Þeim fannst þetta fáránleg hugmynd“

Bleika sæta kaffihúsið á Akureyri: „Þeim fannst þetta fáránleg hugmynd“
Strák­arnir gúff­uðu í sig gúmmelað­inu á Syk­ur­verki.

Þær eru þrjár mæðgurnar sem reka saman bleika, krútt­lega kaffi­húsið við Ráð­hús­torg í miðbæ Akur­eyrar. Helena Guð­munds­dóttir er móð­irin og sögð brauð- og rjóma­tertu­sér­fræð­ingur, Karolína Hel­enu­dóttir, stóra systir, upp­skrifta­sér­fræð­ingur og köku­lista­maður og svo er það litla systirin, Þórunn Jóna Héð­ins­dóttir, köku­lista­maður og kaffi­barista.

Það er varla að maður vilji skera í þessa, svo fal­leg er hún.

Kaffi­húsið fer varla fram hjá neinum sem á leið um mið­bæ­inn, þar sem bleiku glugg­a­rnir kalla á mann og bók­staf­lega draga mann nær.

Það verður heldur eng­inn svik­inn sem þangað stígur fæti inn, allt bleikt, ó svo fal­legt og hlý­legt. Og þá á eftir að ræða allar veit­ing­arnar. Óhætt er að vara við að val­kvíði mun senni­lega grípa þá sem fara í kaffi, já eða búbblur á Syk­ur­verk, slíkt er úrvalið og eru veit­ing­arnar hver ann­ari girni­legri. En á kaffi­hús­inu er á hverjum degi að finna mikið úrval af girni­legum kökum, makkar­ónum, brauðtertum, beikon­umslög, mar­ens sleikjóar og svona mætti lengi telja.

Syk­ur­verk er með réttu kök­una í barna­af­mæli.

En hver var kveikjan að kaffi­hús­inu?

„Við mæðgur höfum alla tíð brallað mikið saman í eld­hús­inu, hvort sem það er að baka pizzu í kvöld­mat, kanilsnúða með kaff­inu eða jafn­vel búa til ferm­ing­artertur fyrir fjöl­skyld­una,“ segir Karolína og heldur áfram. „Við höfum alltaf unnið mjög vel saman og áttum okkur allar hver sitt hlut­verk.“ Helena, móð­irin, bak­aði kökur og setti saman, Þórunn er snill­ingur að setja syk­ur­massa yfir kökur og hún sjálf sá um skreyt­ing­arnar.

„Nú þegar við erum búnar að vinna saman í þetta langan tíma þá höfum við kennt hvor ann­ari verk­efni hvors ann­ars og vinnum vel saman.“

Fannst þetta fárán­leg hug­mynd

Það var hug­mynd Karolínu að stofna kaffi­hús en hún segir það alltaf hafa verið draumur móður sinnar. „Mömmu lang­aði alltaf að opna kaffi­hús en þeim fannst þetta samt fárán­leg hug­mynd hjá mér fyrst,“ segir hún og skellir upp úr. „En hingað erum við svo komnar,“ segir hún glöð í bragði.

Það er sama hvað til­efnið er, Syk­ur­verk býr til kök­una þína.

Þá segir hún að sjálf hafi hún fyrir alvöru byrjað að æfa sig í köku­skreyt­ingum árið 2016 þegar hún átti von á sínu fyrsta barni. „Mig lang­aði að læra gera fal­legar kökur fyrir kynja­veislur og afmæl­is­veislur fram­tíð­ar­innar eins og mamma gerði alltaf.“ En Karolína sagði sama hvernig afmæliskökur hún hafi beðið um, mamma hennar hafi alltaf orðið við óskinni. „Ég bað meira að segja einu sinni um Silvíu Nótt köku og mamma gerði hana bara,“ segir hún bros­andi.

En ekki nóg með að Karolína hafi farið að æfa sig í köku­skreyt­ingum, þá fór hún líka að gera sínar eigin upp­skriftir. Hún segir að oft á tíðum hafi upp­skrift­irnar ekki alveg verið að gera sig, þannig hún fékk sér krass­bók og fór að fín­pússa og búa til sínar eigin upp­skriftir. En mottó kaffi­húss­ins er, „bragðið skiptir mestu máli!“

Gómsætt brauð­meti er alltaf vin­sælt.

Karolína segir þær mæðgur vera mjög stoltar af því að eiga sínar eigin upp­skriftir og að þeim þyki mjög vænt um þær.

Opnuðu í miðjum far­aldri

Syk­ur­verk opn­aði þann 16. maí í fyrra en ætl­unin var að opna fyrr en vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins þurftu þær að seinka opnun. „Við skrif­uðum undir leigu­samn­ing­inn og tveimur dögum síðar greind­ist fyrsta kór­ónu­veirusmitið á Íslandi.“ Þrátt fyrir þá hindrun segir Karolína að það hafi gengið mjög vel hjá þeim og við­tök­urnar verið frá­bærar. „Við höfum fengið ótrú­lega góðar und­ir­tektir og margir glaðir yfir að kom­inn sé staður á Akureyri sem bjóði upp á svona skemmti­legar afmæliskökur, en tveggja, þriggja hæða kökur hafa ekki verið í sölu hér svo ég viti.“ En Syk­ur­verk heldur úti vef­síð­unni syk­ur­verk.is, þar sem hægt er að panta ýmsar veit­ingar fyrir veisl­una og bjóða þær upp á sér­pant­anir þar sem reynt er að koma til móts við allar óskir um skreyt­ingu og útlit veit­ing­anna.

„Ekkert sem fer úrskeiðis þar“

Aðspurð hvað sé vin­sæl­ast á kaffi­húsin, stendur ekki á svörum. „Coockie dough kakan okkar slær alltaf í gegn og svo beikon­stykkin, þau hafa verið rosa­lega vin­sæl. Það er brauð fyllt með beikoni og osti, ekk­ert sem fer úrskeiðis þar.“

Hvað gæti verið róm­an­tískara en að færa elsk­unni snni svona góð­gæti?

Þá eru þær mæðgur dug­legar að prufa sig áfram með nýjar upp­skriftir, en á Syku­verki er alltaf kaka vik­unnar sem er breyti­leg og má með sanni segja að boðið hafi verið upp á fjöl­breyttar bragð­teg­undir, en má þar nefna Skitles, Lucky Charms, hind­berja, ban­ana og Turkish Pepper.

Eitthvað fyrir alla

Það er óhætt að mæla með Syk­ur­verki fyrir barna­fólk en bæði er stað­ur­inn ævin­týra­lega fal­legur, enda mark­miðið að láta hann líta út eins og „candy land“, að sögn Karolínu, þá eru einnig leik­föng á staðnum og sömu­leiðis veit­ingar í barna­stærðum. „Mamma vann í mörg ár sem dag­mamma og ég er með þrjú lítil börn, þannig barna­teng­ingin er rík og fannst okkur nauð­syn­legt að hafa stað­inn barn­vænan.“ Hún segir það sömu­leiðis vera leið­in­legt að fara á kaffi­hús og þurfa borga kannski 1000 krónur fyrir köku­sneið sem barnið borðar síðan ekki nema helm­ing­inn af. „Þannig okkur fannst nauð­syn­legt að hafa eitt­hvað svona lítið fyrir börnin.“

Hug­mynda­flugið er enda­laust hjá þeim mæðgum í köku­list­inni.

Syk­ur­verk gætir þess svo sann­ar­lega að hafa eitt­hvað fyrir alla ald­urs­hópa, en frá klukkan fimm til átta, alla daga er „happy hour“. „Hér er góður staður til að hitt­ast í bleikar búbblur og makkar­ónur,“ segir Karolína að lokum glöð í bragði enda að lifa draum­inn sinn, að fá borgað fyrir það sem hún elskar að gera, baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur