Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Treystir Gunnari Smára frekar með sér á eyðieyju

„Já, það yrði á margan hátt óþol­andi“

Treystir Gunnari Smára frekar með sér á eyðieyju
Gunnar Smári Egilsson Sós­í­alista­for­ing­inn mynda plumma sig vel á eyði­eyju, sam­kvæmt heim­spek­ingnum Mynd: Sósíalistaflokkurinn

Haukur Már Helgason seg­ist treysta Gunnari Smára Egils­syni betur en ung­liða­hreyf­ingu Sós­í­alista­flokks­ins sem félags­skap á eyði­eyju.

Heim­spek­ing­ur­inn og rit­höf­und­ur­inn Haukur Már Helgason skrif­aði spaugi­lega færslu á Facebook þar sem hann veltir vöngum yfir deil­una innan Sós­í­alista­flokks­ins sem hefur farið fram fyrir opnum tjöldum á Facebook síð­ustu daga.

„Deil­urnar í sós­í­alista­flokknum, deilur um skipu­lag flokks­starfs­ins og svo fram­vegis, koma mér ekki við frekar en öðrum sem ekki eru í flokknum, og hljóta að leys­ast í ein­hverjum þartil­gerðum far­vegi inn­an­húss. Aðfinnslur sem beint er að Gunnari Smára per­sónu­lega, hins vegar, á fag­legum vett­vangi, koma mér við að því leyti sem ég hef starfað með honum á sama vett­vangi, en hann var yfir­maður minn á Sam­stöð­inni í svolitla stund. Svo ég hef reynt að fylgj­ast eitt­hvað með þessu og átta mig.“ Þannig hefst færsla Hauks Más.

Haukur Már segir síðan að honum finn­ist tal hinna tveggja póla, Gunnars Smára og ung­liða­hreyf­ing­ar­innar, furðu­legt og veltir því fyrir sér hvort það sé kyn­slóða­bundið.

„Eiríkur Örn sagði í nýlegri blogg­færslu að sér þætti allir tala furðu­lega um þessar mundir. Ég get tekið undir það. Hann vís­aði ekki í þessa deilu sér­stak­lega en hún ein­kenn­ist þó af furðu­legu tali. Er furðan kyn­slóða­bundin? Áreið­an­lega. Ungt fólk talar um til­finn­ingar, eldra fólk vísar þeim ein­arð­lega á bug. Ég fædd­ist á milli þess­ara kyn­slóða og fóta mig í hvor­ugu tal­inu, finnst hvort tveggja svo­lítið furðu­legt. Í ofaná­lag finnst mér furðu­legt að tala um kyn­slóðir yfir­leitt og geri það greini­lega samt. Þannig stend ég mig að því að tala sjálfur furðu­lega. Mér finnst ég hálf­part­inn knú­inn til að segja eitt­hvað, en vissi ekki vel hvað eða hvernig fyrr en rann upp fyrir mér þetta ljós, að skásta leiðin til að svara furðu­legu tali er lík­lega með asna­legu tali. Kannski er veg­ferð heims­ins þannig að héðan í frá muni ég ein­göngu tala asna­lega, eða fyrst og fremst. Ég áskil mér alla­vega rétt til þess. Að því sögðu kemur hér mitt asna­lega inn­legg í þessa bjálfa­legu deilu:”

Innlegg heim­spek­ing­ins í þess­ari deilu er nokkuð spaugi­leg en þar ímyndar hann sér að vera fastur á eyði­eyju og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að senni­lega treysti hann Gunnari Smára betur til þess að dúsa með honum á eyj­unni, þó það „yrði á margan hátt óþol­andi.“:

„Eftir að horfa á við­talið sem bróðir Gunnars Smára tók við hann á Sam­stöð­inni, ann­ars vegar, og innra sam­tal ung­liða­hreyf­ing­ar­innar sem þykir vænt um alla, hins vegar, þá hef ég kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, hvað sem öðru líður, að ef ég þyrfti að dúsa á eyði­eyju með öðrum hvorum aðilum deil­unnar, Gunnari Smára eða ung­liða­hreyf­ing­unni, þá hlyti ég að velja Gunnar Smára. Já, það yrði á margan hátt óþol­andi. Ég myndi óska þess að björg­un­ar­að­ilar hefðu hraðar hendur og fyndu okkur sem fyrst. Miðað við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar myndi ég þó treysta honum til að leggja sitt af mörkum, gera það sem þyrfti og koma hlutum í verk – rigga upp kofa, tálga spjót, veiða fisk, útbúa reyk­merki og hvað það væri – án þess að leggj­ast í mannát. Kannski er það rangt mat, en það kæmi mér þá í opna skjöldu, ég myndi að því leyti sofa vel allt þar til ég yrði þá, mér að óvörum, étinn. Ung­lið­arnir yrðu áreið­an­lega glað­lynd­ari félags­skapur og á margan hátt skiln­ings­rík­ari. Vitandi af þeim í grennd­inni kæmi mér þó varla blundur á brá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina