Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Trump: „Sársaukinn er að koma“

Banda­ríkja­for­seti hótar að sprengja Írana og Húta í Jemen.

Trump: „Sársaukinn er að koma“
Donald Trump Hefur kynnt sig sem for­seta friðar. Mynd: Shutterstock

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hét því í dag að árásir á Húta í Jemen myndu halda áfram þar til þeir væru ekki lengur ógn við sigl­ingar, og var­aði upp­reisn­ar­menn­ina og íranska bak­hjarla þeirra við „raun­veru­legum sárs­auka“ sem væri í vændum.

Hótun Trumps á sam­fé­lags­miðl­inum Truth Social kemur á sama tíma og stjórnin hans berst við hneyksl­is­mál vegna spjalls milli hátt­sett­ara banda­rískra emb­ætt­is­manna um árás­irnar á Jemen sem lak óvart til blaða­manns.

Þetta ger­ist einnig á sama tíma og orð­ræða Trumps gagn­vart Teheran harðnar, en for­set­inn hótar því að „það verði sprengju­árásir“ ef Íran nær ekki sam­komu­lagi um kjarn­orku­á­ætlun sína.

„Valið fyrir Húta er skýrt: Hættið að skjóta á banda­rísk skip og við munum hætta að skjóta á ykkur. Annars erum við rétt að byrja og raun­veru­legi sárs­auk­inn er að koma, bæði fyrir Húta og bak­hjarla þeirra í Íran,“ sagði Trump.

„Annars erum við rétt að byrja og raun­veru­legi sárs­auk­inn er að koma“
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti

Trump bætti við að Hútar hefðu verið „gjör­eyði­lagðir“ af „mis­kunn­ar­lausum“ árásum síðan 15. mars og sagði að banda­rískir herir „létu höggin dynja á þá á hverjum degi — fastar og fastar.“

„Árásir okkar munu halda áfram þar til þeir eru ekki lengur ógn við sigl­inga­frelsi,“ sagði hann á sam­fé­lags­miðli sínum.

Und­an­farna daga hefur Trump ítrekað lagt áherslu á það sem hann kallar árangur banda­rískra árása á Húta í hvert skipti sem hann er spurður um svo­kallað „Signal­gate“ hneyksl­is­mál sem hefur skekið stjórn hans.

Tíma­ritið The Atlantic greindi frá því í síð­ustu viku að rit­stjóra þess hefði fyrir mis­tök verið bætt í spjall á hinum almennt aðgengi­lega Signal-smá­forrit­inu þar sem hátt­settir emb­ætt­is­menn ræddu árás­irnar á Jemen.

Emb­ætt­is­menn­irnir, þar á meðal Mike Waltz, þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Trumps, og Pete Hegseth, varn­ar­mála­ráð­herra, afhjúp­uðu upp­lýs­ingar um tíma­setn­ingar loft­árása og aðrar leyni­legar upp­lýs­ingar.

Trump hefur hafnað kröfum um að reka Waltz eða Hegseth og kallað hneyksl­is­málið „norn­ar­veiðar“.

„Þessu máli hefur verið lokað hér í Hvíta hús­inu að því er okkur varðar,“ sagði Karoline Leavitt, fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, við blaða­menn í dag.

Bæði Waltz og Hegseth end­ur­birtu skila­boð Trumps á Truth Social um Húta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco