Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Trump leyfir fiskveiðar á verndarsvæði

Segist ætla að tryggja „yfir­burði Banda­ríkj­anna í sjáv­ar­fangi“.

Trump leyfir fiskveiðar á verndarsvæði
Trump leyfir veiðar Full­trúar frá Kyrra­haf­inu voru við­staddir þegar Donald Trump und­ir­rit­aði for­seta­til­skipun sem aflétti vernd af risa­stóru svæði vestur af Hawaii. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, gaf á fimmtu­dag út til­skipun um að opna Pacific Islands Heritage Marine National Monument, eitt stærsta haf­svæði heims sem verndað hefur verið, fyrir iðn­að­ar­veiðum. Svæðið, sem nær yfir tæp­lega 1,3 millj­ónir fer­kíló­metra í Kyrra­hafi um 1.200 kíló­metrum vestur af Hawaii, var stofnað af George W. Bush árið 2009 og stækkað veru­lega af Barack Obama árið 2014.

Til­skipun Trumps kveður einnig á um að við­skipta­ráðu­neytið dragi úr reglum sem taldar eru hamla banda­rískum sjáv­ar­út­vegi, fisk­eldi og fisk­vinnslu. Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu var jafn­framt falið að end­ur­skoða önnur haf­vernd­ar­svæði með það að mark­miði að kanna hvort þau megi opna fyrir fisk­veiðum.

„Banda­ríkin ættu að vera leið­andi í sjáv­ar­út­vegi í heim­inum,“ sagði Trump þegar hann und­ir­rit­aði til­skip­un­ina. For­set­inn lýsti því sem „hræði­legu og heimsku­legu“ að fiski­menn á Kyrra­hafs­eyjum væru neyddir til að ferð­ast í allt að sjö daga til fjar­lægra fiski­miða vegna frið­un­ar­svæða.

Ákvörðun for­set­ans hefur mætt gagn­rýni umhverf­is­vernd­ar­sinna sem segja að þetta muni stofna við­kvæmu vist­kerfi svæð­is­ins, þar sem finna má kór­al­rif, sjald­gæfar sjáv­ar­skjald­bökur og hvali, í mikla hættu.

Maxx Phillips, fram­kvæmda­stjóri hjá Center for Biological Diversity, Miðstöð líf­fræði­legrar fjöl­breytni, á Hawaii og Kyrra­hafs­eyjum, sagði í sam­tali við New York Times þetta vera „gjöf til iðn­að­ar­veiði­flot­ans og van­virð­ingu gagn­vart vís­indum og íbúum Kyrra­hafs­eyja sem lengi hafa kallað eftir auk­inni vernd þess­ara heilögu haf­svæða.“

Haf­svæðiðVernd­ar­svæðið liggur vestur af Hawaii og er markað með fjólu­bláum lit. Trump vill aflétta vernd á fleiri svæðum.
Græn skjald­bakaSjáv­ar­skjald­bakan er skil­greind sem teg­und í hættu, meðal ann­ars vegna þess að hún fest­ist í netum.

Þingmenn Repúblikana­flokks­ins hafa hins vegar hrósað ákvörð­un­inni og segja hana skapa mik­il­væga atvinnu- og efna­hag­s­tæki­færi fyrir íbúa Kyrra­hafs­eyja og Hawaii. Aumua Amata Coleman Radewagen, full­trúi Amerísku Samóa á Banda­ríkja­þingi, þakk­aði for­set­anum sér­stak­lega fyrir ákvörð­un­ina sem hún sagði vera lyk­il­at­riði fyrir fram­tíð atvinnu­lífs eyj­anna.

Umhverf­is­sinnar segj­ast ætla að höfða mál gegn ákvörð­un­inni. Þá segja þeir að lög um vernd teg­unda í útrým­ing­ar­hættu og lög um hreint vatn myndu ekki nægja til að verja líf­ríki sjávar til lengri tíma.

Robert H. Richmond, fiski­fræð­ingur við Háskól­ann í Hawaii, segir að vernd­ar­svæðið virki sem banki fyrir önnur veiði­svæði sem ýti undir nýliðun fiski­stofna. „Þetta eru raun­veru­lega banka­reikn­ingar þar sem fisk­arnir eru höf­uð­stóll­inn og æxlun þeirra eru vext­irnir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Flug­velli í Póllandi lokað eftir sprengju­hótun

Annað sambærilegt atvik á skömmum tíma
Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Heimur

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla