Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Nígeríska kvikmyndaiðnaðinum hleypt inn í aðalval Cannes í fyrsta sinn

Nígeríska kvikmyndaiðnaðinum hleypt inn í aðalval Cannes í fyrsta sinn
Úr kvik­mynd­inni My Fathers´s Shadow. Nollywood er smá saman að ryðja sér til rúms á alþjóða­vísu. Mynd: imdb.com

Það hefur tekið nærri 80 ár, en í fyrsta skipti verður níger­ísk kvik­mynd sýnd í opin­beru dag­skrár­vali kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Cannes á sunnu­dag.

Eftir ára­tugi þar sem kvik­mynda­iðn­aður Nígeríu, Nollywood, var afskrif­aður fyrir ódýrar og fjörugar afþrey­ing­ar­myndir, nýtur hann nú loks við­ur­kenn­ingar á alþjóða­vett­vangi. Nollywood, sem stað­sett er í Lagos, fram­leiðir allt að fimm kvik­myndir á dag.

Þrátt fyrir að fram­leiða mun fleiri myndir á ári en Hollywood, við­ur­kenna fram­leið­endur þó að þeim hefur gengið illa að ná til áhorf­enda utan Afríku, fyrir utan fólks af afrískum upp­runa í útlöndum.

Nollywood hefur löngum heillað heima­menn með síend­ur­teknum lág­kostn­aðar -drama­myndum um ástir, fátækt, trú­ar­brögð og spill­ingu – oft með yfir­nátt­úru­legum blæ og átökum milli hefðar og nútíma.

Flestar mynd­irnar eru teknar upp með litlum til­kostn­aði og á miklum hraða, og hafa oft verið gagn­rýndar fyrir lakan gæða­staðal. En sú ímynd gæti verið að breyt­ast með kvik­mynd­inni „My Father’s Shadow“, fyrstu níger­ísku mynd­inni sem valin hefur verið í opin­bera dag­skrá Cannes, sem margir líta á sem must­eri art-house kvik­mynda.

„Að kom­ast í keppni í fyrsta sinn sýnir að níger­ísk kvik­mynda­gerð hefur náð full­orð­ins­árum,“ sagði Prince Baba Agba, menn­ing­ar­ráð­gjafi for­seta Nígeríu, Bola Tinubu, sem mættur er til Cannes fyrir frum­sýn­ing­una.

Mikilvægur áfangi

„My Father’s Shadow“, fyrsta leikna kvik­mynd Akinola Davies, ger­ist í kjöl­far valda­ráns­ins í Nígeríu árið 1993, þegar hers­höfð­ing­inn Sani Abacha komst til valda eftir að kosn­ingar voru ógiltar af hernum.

Davies lýsir þessu sem „glöt­uðu tæki­færi“ og segir að það hafi markað þjóð­ina djúpt. Myndin fylgir tveimur drengjum sem elta föður sinn um Lagos á meðan valda­ráns­dag­ur­inn rennur upp.

Sope Dirisu, sem þekktur er úr þátta­röð­inni Gangs of London, fer með aðal­hlut­verk.

Menn­ing­ar­ráð­gjaf­inn Agba lagði áherslu á að þetta væri ekki ein­stakt „ein­hyrn­ings­verk­efni“.

Glæpa­myndin „The Black Book“ eftir Editi Effiong, fór í efstu sæti á Netflix á heims­vísu í fyrra – m.a. í Suður-Kóreu.

„Við höfum sent myndir á stærstu hátíð­irnar og unnið til verð­launa á Sundance,“ sagði Agba og vís­aði til kvik­mynd­ar­innar Shine Your Eyes, sem sló í gegn á Berl­inale.

„Eyimofe (This Is My Desire)“ var valin inn í hið virta streymi- og dreif­ing­ar­net Criterion Collection. Myndin var „algjör­lega tekin upp í Nígeríu með inn­lendri fjár­mögnun og fram­leiðslu“, bætti hann við.

„Við erum enn að fram­leiða gríð­ar­legt magn af myndum – frá 10.000 dala fram­leiðslum upp í milljón doll­ara kvik­myndir – allar með sál, hjarta og anda Nígeríu.“

Von um framþróun með skattalækkunum

Agba segir að nýjar skatta­lækk­anir fyrir kvik­mynda­gerð – sem nú eru í með­förum þings­ins – gætu orðið vendi­punktur fyrir Nollywood. Þær myndu ýta undir útbreiðslu á heims­vísu í gegnum streym­isveitur og sam­fram­leiðslu­verk­efni.

Netflix hóf að kaupa upp nokkrar níger­ískar myndir í heims­far­aldr­inum, eins og Blood Sisters, Man of God og söng­leik­inn Ayinla. Á sama tíma spruttu upp nýjar stað­bundnar streym­isveitur, sér­stak­lega í norð­ur­hluta lands­ins þar sem „Kannywood“ hefur blómstrað (nafnið er dregið af borg­inni Kano).

Áskoranir og tækifæri

Þrátt fyrir þessa upp­sveiflu hefur iðn­að­ur­inn mætt hindr­unum. Amazon lok­aði starf­semi sinni í Afríku í fyrra og Netflix hefur hægt á sér, að sögn heim­ild­ar­manna á hátíð­inni.

Nollywood-fyr­ir­tækið Ebonylife Group ætlar að stofna sína eigin streym­isveitu, og stofn­andi þess, Mo Abudu, hyggst einnig opna menn­ing­ar­setur Nígeríu í Lundúnum síðar á árinu.

„Við ætlum að byrja smátt og byggja okkur upp. Við getum ekki beðið eftir að aðrir geri þetta fyrir okkur,“ sagði Abudu.

Agba við­ur­kennir að tækni­legar og inn­viða­legar áskor­anir séu miklar, einkum vegna þess að flestir horfa á kvik­myndir í sím­anum og netteng­ing er oft slök.

„Við von­umst til að tvö­falda fjölda kvik­mynda­húsa í land­inu – við erum með 300, en Brasilía, með sam­bæri­lega íbúa­tölu, er með yfir 3.000.“

Nollywood, ásamt tón­list­ar­stefn­unni Afro­beats, er nú ein helsta menn­ing­ar­út­flutn­ings­vara Nígeríu.

Eitt merki um ört vax­andi áhrif Nollywood er að Mo Abudu var í efsta sæti á lista The Hollywood Reporter yfir 40 áhrifa­mestu konur alþjóð­legrar kvik­mynda­gerðar – kynntum fyrir hátíð­ina í Cannes.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu