Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Björn Leví veltir fyrir sér atkvæðakaupum í Eurovision

„Það þarf ekki meira en nokkrar millj­ónir“

Björn Leví veltir fyrir sér atkvæðakaupum í Eurovision
Björn Leví Gunn­ars­son Þing­mað­ur­inn fyrr­ver­andi veltir fyrir sér svindli í Eurovision. Mynd: Píratar

Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, vekur athygli á miklum mun á fjölda greiddra atkvæða í Eurovision milli landa, og veltir fyrir sér hvort mögu­legt sé að hag­ræða nið­ur­stöðum keppn­innar með atkvæða­kaupum.

Í ítar­legri færslu á Facebook setur hann fram tölu­legan sam­an­burð sem ýtir undir áleitnar spurn­ingar um gagn­sæi og jafn­ræði í keppn­inni. Við færsl­una birtir hann skjá­skot af frétt spænska El País þar sem segir að spænska rík­is­út­varpið ætli sér að krefj­ast þess að sjá tölu­gögn frá síma­kosn­ing­unni í Eurovision þar í landi. RÚV fjall­aði um málið í morgun.

Björn Leví bendir á að sam­kvæmt opin­berum tölum hafi spænska rík­is­sjón­varpið RTVE fengið alls 142.688 atkvæði í úrslit­unum, þar af 7.283 sím­töl, 23.840 SMS og 111.565 net­at­kvæði. Til sam­an­burðar voru greidd aðeins um 14.000 atkvæði frá Spáni í fyrri und­an­riðli keppn­innar, þegar Ísrael tók ekki þátt.

Björn Leví ber þessar tölur saman við Söngvakeppni RÚV á Íslandi, þar sem greidd voru rúm­lega 28.000 atkvæði í und­ankeppni og 198.330 atkvæði í úrslitum. Þar sigr­aði Hera Björk með 100.835 atkvæðum, á meðan Bashar Murad, palest­ínski lista­mað­ur­inn sem keppti undir íslenskum fána, hlaut 97.495 atkvæði í ein­víg­inu.

Í færsl­unni bendir Björn Leví á að það þurfi ekki háar fjár­hæðir til að hafa áhrif á nið­ur­stöður. Ef þriðj­ungur spænsku atkvæð­anna hafi verið keyptur – um 30.000 atkvæði – gæti það hafa kostað um 4,4 millj­ónir króna, sam­kvæmt Birni Leví.

„Segjum að það hafi verið keypt atkvæði fyrir 5 millj­ónir bara á Spáni.“

Ef slíkt mynstur end­ur­tæki sig í fleiri löndum – og Ísrael fékk 12 stig frá tólf löndum og 10 stig frá sex öðrum, segir Björn, væri kostn­að­ur­inn við umfangs­mikil atkvæða­kaup vel innan seil­ingar. Björn bendir á að Ísra­els­ríki hafi „aðeins meira fjár­magn en BBC“, sem borgar rúm­lega 50 millj­ónir króna árlega til að tryggja Bret­landi fast sæti í keppn­inni.

Hann full­yrðir ekki að svindl hafi átt sér stað en telur eðli­legt að skoða töl­urnar nánar. Ísrael hlaut hæstu stig frá meðal ann­ars Spáni, Frakk­landi, Þýska­landi og Bret­landi, löndum með stóran áhorf­enda­hóp og hátt vægi í atkvæða­greiðslu.

Björn bendir á að Ísrael gæti vel haft aðgang að nákvæmum tölum um atkvæða­mynstur og beint atkvæða­kaupum þangað sem þau skila mestum árangri:

„Já, þetta hljómar eins og sam­sær­is­kenn­ing en þetta er bara til­raun til þess að skoða hversu mikið þyrfti til – ef það ætti að kaupa atkvæði.“

Að lokum leggur hann til að allar tölur um atkvæða­fjölda frá hverju landi verði gerðar opin­berar, ekki aðeins hlut­falls­leg stig, svo hægt sé að skoða hugs­an­leg frá­vik og auka gagn­sæi í keppn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu