Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gunnar Smári finnur fyrir létti en uppgjöri er ólokið

Bolað út úr stjórn Sós­í­alista­flokks­ins, en situr sem rit­stjóri í sama hús­næði í Bolholti.

Gunnar Smári finnur fyrir létti en uppgjöri er ólokið
Gunnar Smári Egilsson Var helsta drif­fjöðrin í stofnun Sós­í­alista­flokks Íslands og Sam­stöðv­ar­innar. Hér er hann ásamt flokks­mönum fyrir utan aðal­fund­inn að Bolholti 6 í Reykja­vík á laug­ar­dag. Mynd: Golli

Gunnari Smára Egils­syni, for­manni fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, hefur nú verið bolað út úr fram­kvæmda­stjórn­inni, en í hús­næði flokks­ins í Bolholti 6 hefur Sam­stöðin aðsetur, þar sem Gunnar Smári er rit­stjóri.

Eftir harða umræðu síð­ustu mán­uði í kjöl­far ásk­ana Karl Héðins Krist­jáns­sonar á hendur Gunnari Smára, lá fyrir eftir aðal­fund flokks­ins í Bolholti í gær að meiri­hluti næð­ist utan um breyt­ingar á Sós­í­alista­flokknum. Gunnar Smári náði þar ekki kjöri, en hóp­arnir tveir lögðu fram lista. Svokölluð „upp­risu­deild“ flokks­ins fór með sigur af hólmi.

Leið­bein­ingar upp­risu­deildarHópurinn sem vildi bylta Sós­í­alista­flokki Íslands setti fram leið­bein­inga­skjal fyrir kosn­ingar á aðal­fundi í gær.

„Ég hef sterka til­finn­ingu fyrir að þessi dagur sé upp­haf að ein­hverju heilla­væn­legu,“ segir Gunnar Smári á Facebook. „Ég finn fyrir létti og eft­ir­vænt­ingu, eins og eitt­hvað áhuga­vert og spenn­andi sé framundan.“

Enn á þó eftir að leysa úr tengslum Sós­í­alista­flokks­ins, Sam­stöðv­ar­innar, Alþýðu­fé­lags­ins og svo Vor­stjörn­unnar, sem rekur hús­næðið að Bolholti 6.

„Ég finn fyrir létti og eft­ir­vænt­ingu“
Gunnar Smári Egilsson

Sam­stöðin ehf. er í 100% eigu Alþýðu­fé­lags­ins, sem er rekið með fjár­fram­lagi þeirra sem hafa skráð sig sem félaga. Í Alþýðu­fé­lag­inu er önnur stjórn en í Sós­í­alista­flokki Íslands. Þó hefur Sós­í­alista­flokk­ur­inn lánað til rekst­urs Sam­stöðv­ar­innar. Ef marka má stöð­una í árs­lok í fyrra skuldar Sam­stöðin Sós­í­alista­flokki Íslands hátt í 20 millj­ónir króna, en flokk­ur­inn hefur haldið áfram að styrkja rekstur fjöl­mið­ils­ins. Sumir af þeim sem studdu upp­risu­list­ann gegn Gunnari Smára og stuðn­ings­fólki hans höfðu starfað sem blaða­menn á Sam­stöð­inni.

Gunnar Smári greindi frá því í fyrra að lán Sós­í­alista­flokks­ins til Sam­stöðv­ar­innar mætti síðan „breyta í hlutafé“. Ekki hefur orðið að því sam­kvæmt gild­andi skrán­ingu hjá Fjöl­miðla­nefnd.

Eitt af því sem Karl Héðinn Krist­jáns­son gagn­rýndi í umræðu um mál­efni Sós­í­alista­flokk­inn er einmitt þessi flækja. „„Þegar ég var í fram­kvæmda­stjórn og var að reyna að tala um mál­efni fjár­muna flokks­ins – það er að segja að þeir fari eig­in­lega allir inn í Vor­stjörn­una og Alþýðu­fé­lagið – þá er manni sagt að þetta sé ekki vett­vang­ur­inn til að ræða um mál­efni Vor­stjörn­unnar eða Alþýðu­fé­lags­ins og Sam­stöðv­ar­innar,“ sagði hann í sam­tali við Heim­ild­ina. Óánægju­hóp­ur­inn, sem nú hefur náð yfir­hönd­inni í Sós­í­alista­flokknum, hefur haldið því fram að Vor­stjörn­unni sé í reynd stýrt af Gunnari Smára og félögum.

Loks er Gunnar Smári stofn­andi Facebook-hóps­ins sem heldur utan um sam­skipti Sós­í­alista. Hópurinn, sem heitir Rauði þráð­ur­inn, var upp­haf­lega stofn­aður utan um hug­mynd Gunnars Smára um að Ísland yrði 20. fylki Noregs. Stjórn­endur hóps­ins eru Gunnar Smári, Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi, Sara Stef Hildar, sem styður Gunnar Smára, og svo facebook-síða Sam­stöðv­ar­innar, sem er í eigu Alþýðu­fé­lags­ins.

Því virð­ist óljóst hvort nýir stjórn­endur Sós­í­alista­flokks Íslands hafi yfir að ráða því sem fylgt hefur flokknum fram að þessu.

Fjöldi fólks hefur til­kynnt um úrsögn sína úr Sós­í­alista­flokknum eftir nið­ur­stöð­una. Einn úr upp­risu­hópnum, Tjörvi Schiöth, tók því fálega þegar flokks­maður til­kynnti á Rauða þræð­inum að hann hefði skilað inn úrsögn úr flokknum. „Þetta er ekki flug­völlur, þú þarft ekki að til­kynna brott­för.“

Gunnar Smári vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað og beindi spurn­ingum að nýrri fram­kvæmda­stjórn.

Hann hefur síðan aug­lýst eftir styrkj­endum að Sam­stöð­inni, í gegnum Alþýðu­fé­lagið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð