Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bryndís viðrar hugmyndir um norrænan her

Bryndís Har­alds­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að í kjöl­far svars utan­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn hennar um her­þjón­ustu íslenskra rík­is­borg­ara vakna spurn­ingar er varða örygg­is­stefnu Íslands og stöðu lands­ins innan alþjóð­legs varn­ar­sam­starfs

Bryndís viðrar hugmyndir um norrænan her
Bryndís Har­alds­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins Vill sam­vinnu er varðar öryggis- og varn­ar­mál Íslands Mynd: Norrænt samstarf.

Bryndís segir að í kjöl­far svars utan­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn hennar um her­þjón­ustu íslenskra rík­is­borg­ara vakni upp spurn­ingar er varða bæði örygg­is­stefnu Íslands og stöðu lands­ins innan alþjóð­legs varn­ar­sam­starfs:

„Í ljós kemur að íslensk stjórn­völd hafa nær enga yfir­sýn yfir þátt­töku íslenskra rík­is­borg­ara í her­þjálfun og her­þjón­ustu erlendis. Ráðu­neytið býr aðeins yfir gögnum um fjölda umsókna í norskan her­skóla, þar sem umsækj­endur senda gögnin í gegnum utan­rík­is­ráðu­neytið.“

Bryndís segir að þegar þeim umsóknum hefur verið komið áfram, fer allt fram­hald, hvort umsækj­andi fær inn­göngu og hvaða starf­semi á sér stað eftir það, alfarið fram milli ein­stak­lings­ins og við­töku­lands­ins, án frek­ari aðkomu eða vit­neskju íslenskra stjórn­valda:

„Þá hefur ráðu­neytið enga vit­neskju um hversu margir Íslend­ingar hafa tekið þátt í her­þjón­ustu á átaka­svæðum eða sinnt slíkri þjón­ustu erlendis almennt,“ segir Bryndís og bætir því við að Ísland hafi því enga heild­stæða yfir­sýn yfir þá ein­stak­linga er hafa aflað sér mennt­unar og reynslu á sviði öryggis- og varn­ar­mála:

„Ég tel það veik­leika“ segir Bryndís og nefnir að þrátt fyrir að Ísland sé her­laus þjóð hafi landið alþjóð­legar skuld­bind­ingar, meðal ann­ars innan NATO, og þá „stöndum við frammi fyrir ört breyti­legum örygg­is­á­skor­unum á borð við netógnir, nátt­úru­ham­farir, almanna­varnir og loft­helg­is­gæslu.“

Bryndís er klár á því að þekk­ing og reynsla ein­stak­linga er hafa starfað innan nor­rænna eða ann­arra vest­rænna herja geti verið afar dýr­mæt, hvort sem um er að ræða stefnu­mótun, við­bún­aði eða sam­starfi við aðrar þjóðir:

„Það er ein­fald­lega ekki skyn­sam­legt að slíkir ein­stak­lingar séu með engum hætti á rat­sjá stjórn­valda eða að upp­lýs­ingar um þátt­töku þeirra liggi hvergi fyrir.“

Bryndís seg­ist hafa talað lengi „fyrir auknu nor­rænu sam­starfi á sviði öryggis- og varn­ar­mála, og viðrað hug­mynd­ina um nor­rænan her byggðan á sam­eig­in­legri ábyrgð og sam­starfi – í takt við sam­eig­in­leg gildi og trausta sam­vinnu Norð­ur­landa.“

Bryndís segir að slíkt sam­starf verði að byggja á ábyrgð og heil­indum enda ekki lítið mál, flókið og við­kvæmt, enda hefur Ísland ekki átt her og allt tal um slíkt hefur ekki enn sem komið er náð nokkru flugi. Hins vegar er ástandið víða í heim­inum afar óstöðugt vegna stríðs­á­taka, til dæmis í Úkraínu, á Gaza og svo ástandið á milli Íran ann­ars vegar og Ísrael og Banda­ríkj­anna hins vegar.

Segir Bryndís að til þess að Ísland „geti tekið þátt í slíku sam­starfi af ábyrgð og heil­indum, verðum við að byggja upp eigin þekk­ingu og nýta þann mannauð sem þegar er til staðar. Skref í rétta átt væri að koma á yfir­liti yfir íslenska rík­is­borg­ara sem hafa lokið varn­ar­tengdu námi eða starfi erlendis og móta far­veg fyrir sam­ráð og tengsl við þá.“

Hún segir að lokum að sú yfir­sýn myndi styrkja inn­lendan mannauð í varn­ar­málum og treysta stöðu Íslands í alþjóð­legu örygg­is­sam­starfi:

„Í öryggis- og varn­ar­málum getum við ekki leyft okkur að vera óupp­lýst eða óund­ir­búin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum