Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segir íslensku vera erfitt mál að læra Vill að stjórn­völd hjálpi til við íslensku­kennslu Mynd: Aðsend

Segir margar hindranir á vegi innflytjenda hér á landi

Ian McDonald er inn­flytj­andi og verka­maður sem hefur búið á Íslandi í fjölda ára. Hann vill breyt­ingar frá stjórn­völdum er snúa að íslensku­kennslu og segir margt hægt að gera fyrir inn­flytj­endur

Ian McDonald, sem er inn­flytj­andi og verka­maður og hefur búið hér á landi í fjölda ára. Hann vill breyt­ingar frá stjórn­völdum er snúa að íslensku­kennslu.

Ian segir að hann biðj­ist „ekki afsök­unar á lélegri íslensku minni því það und­ir­strikar atriðið mitt.“

Hann segir að hann vildi tjá sig „vegna nið­ur­staðna nýlegrar skýrslu OECD sem gagn­rýndi íslenska menntun með til­liti til þess að börn inn­flytj­enda tala ekki íslensku.“ Ian segir að íslenska sé almennt talin eitt erf­ið­asta tungu­mál í heimi til að læra og að mál­vís­inda­fólk við­ur­kenni það, kenn­arar við­ur­kenni það og Íslend­ingar við­ur­kenni það ein­fald­lega sjálfir:

„Mál­fræðin er flókin, fram­burð­ur­inn fram­andi fyrir flesta og leiðin að tökum á mál­inu er löng og brött,“ segir hann og bætir því við að „samt virð­ist sem við gerum þá kröfu að inn­flytj­endur eigi að læra hana hratt, full­kom­lega og einir og sér“ og að í raun og veru höfum „við skapað kerfi sem gerir fólki ókleift að læra íslensku og síðan gagn­rýnum við það fyrir að mis­takast.“ 

Eitt dýrasta land í heimi

Hann segir Ísland vera eitt dýrasta land í heimi og að nýkomnir inn­flytj­endur, hvort sem þeir koma hingað til að vinna, sam­ein­ast fjöl­skyldu sinni eða flýja óör­yggi, þurfi að glíma við him­in­háan hús­næð­is­kostnað, krefj­andi vinnu­markað og lífs­kostnað sem er erf­iður jafn­vel fyrir heima­menn:

„Og ofan á það allt gerum við ráð fyrir að þau hafi tíma og fjár­magn til að læra eitt erf­ið­asta tungu­mál í heimi.“

Ian segir að margir inn­flytj­endur þurfi að „vinna í heilt ár eða meira áður en þeir hafa efni á eða tæki­færi til að sækja tungu­mála­nám­skeið“ og það er ein­göngu „ef þeir búa nálægt skóla, hafa aðgang að sam­göngum, geta fundið byrj­enda­nám­skeið og eru ekki þegar örmagna eftir erf­iðan vinnu­dag,“ segir hann og bætir þessu við: 

„Við skulum vera hrein­skilin. Að læra íslensku í núver­andi kerfi er ekki raun­hæfur kostur fyrir marga. Þetta snýst ekki um vilja heldur um aðgengi. Ef okkur er alvara með félags­lega sam­heldni, sam­þætt­ingu og gagn­kvæma virð­ingu, þá verðum við að þjóð­nýta íslensku­nám, gera það algjör­lega gjald­frjálst og aðgengi­legt frá fyrsta degi. Það þýðir að kennslan þarf að vera ókeypis. Það þýðir að fólk á að fá greitt frí frá vinnu til að læra. Það þýðir að við þurfum að byggja upp raun­veru­legt inn­viði, ekki bara tala um það í ræðum. Því þegar við gerum það ekki, þá ein­angrum við fólk.“

Að mati Ian leiðir ein­angrun „til gremju, bæði hjá inn­flytj­endum og inn­fæddum og við getum ekki kvartað yfir því að fólk læri ekki íslensku ef við gerum það fjár­hags­lega og tím­an­lega ómögu­legt.“

Hefur lagt mikið á sig

Hann segir ein­fald­lega að það sé ekki hægt að gagn­rýna „fólk fyrir að sam­lag­ast ekki ef við bjóðum ekki upp á þau úrræði sem sam­lögun krefst.“ 

Ian segir að hann hafi lagt „meira en 400 klukku­stundir í íslensku­nám, það eru yfir 50 heilir vinnu­dagar af lífi mínu, helg­aðir ein­göngu því að læra tungu­málið“ og allt þetta gerði hann „í eigin frí­tíma og á eigin kostnað, með því hug­ar­fari að þetta væri lyk­ill­inn að því að verða virkur, sam­þættur þátt­tak­andi í íslensku sam félagi. Ég fór á kvöld­nám­skeið eftir langa vinnu­daga, lærði um helgar og greiddi sjálfur fyrir hvert ein­asta nám­skeið. Ég tók þetta alvar­lega. Ég trúði því að það væri það sem íslensk stjórn­völd vildu, að fólk sýndi vilja og frum­kvæði.“

Ian seg­ist hafa verið mætt með kulda og van­virð­ingu „þegar kom að því að sækja um rík­is­borg­ara­rétt og þrátt fyrir alla þessa vinnu var mér sagt að þessi yfir­grips­mikla menntun dygði ekki til að sýna fram á íslensku­kunn­áttu“ og hann segir að þau við­brögð hafi verið „eins og að fá miðju­fingur frá kerf­inu.“

Ian sem hefur búið hér á landi í „meira en ára­tug, þar sem ég hef þurft að fylgja hverri ein­ustu reglu í smæstu smá­at­riðum, miklu strang­ari en margir inn­fæddir þurfa nokkru sinni að hugsa um“ leið eins og að hann væri enn ekki tal­inn nógu „góður“ til að til­heyra form­lega íslensku sam­fé­lagi:

„Þetta var ekki aðeins sárt. Þetta var nið­ur­lægj­andi og opin­berar einmitt þá tvö­feldni sem margir upp­lifa: Að inn­flytj­endur eigi að vera full­komnir, þög­ulir, reglu­f­astir og þakk­látir, en samt er þeim aldrei veittur raun­veru­legur aðgangur. Þeir mega vinna, borga skatta, halda sam­fé­lag­inu gang­andi, en þegar kemur að því að öðl­ast við­ur­kenn­ingu eða rétt­indi, þá er alltaf annar þrösk­uldur, önnur afsökun, annar veggur.“

Snýst ekki um tungumálið

Hann segir tím­ana sem við lifum á vera afar óstöðuga og hættur leyn­ist víða - bæði hér heima sem og erlendis - í tengslum við kyn­þátta­for­dóma, hat­urs­orð­ræðu og útlend­inga­andúð:

„Við lifum á tímum þar sem ras­istar og þjóð­ern­is­sinnar eru stöðugt að leita að leiðum til að skipta sam­fé­lag­inu í „við“ og „hin“. Aftur og aftur grípa þeir til sama fra­s­ans: „Þau tala ekki einu sinni tungu­málið.“ Þetta er vopn sem þeir nota til að slá á inn­flytj­endur, til að efast um vilja þeirra til að til­heyra, til að úti­loka þau og smætta.“

En Ian segir að þetta snú­ist „aldrei raun­veru­lega um tungu­málið. Þetta snýst um að stjórna, að aðgreina og að hræða. Þetta snýst um að halda fólki fyrir utan, sama hversu lengi það hefur búið hér eða hversu mikið það leggur af mörkum. Og því fleiri hindr­anir sem við setjum upp fyrir fólk að læra íslensku, því meira vald gefum við þessum röddum.“

Og bætir því við að „í hvert sinn sem við hunsum þetta í fjár­lögum, í hvert sinn sem við neitum að byggja upp aðgengi að íslensku­námi, þá styrkjum við mál­flutn­ing þeirra sem vilja sundra sam­fé­lag­inu.“

Hann vill meina að ef stjórn­völd vilji í alvöru standa gegn upp­gangi hat­urs­orð­ræðu og öfga­stefnu þá hefj­ist and­spyrnan ekki með álykt­unum og yfir­lýs­ingum heldur með aðgerðum og stefnu:

„Ein áhrifa­rík­asta leiðin til að slökkva á þess­ari hættu­legu orð­ræðu er að gera það raun­veru­lega mögu­legt fyrir fólk að læra íslensku“ og það „frá fyrsta degi. Án þess að það sé fjár­hags­legt álag eða tíma­taka sem brýtur fólk niður“ og segir einnig að „þar vinnum við bar­átt­una, eða töpum henni. Ekki bara á Alþingi, heldur í hverju sam­fé­lags­mið­stöð, á hverjum vinnu­stað, í hverjum skóla­stofu sem annað hvort er til staðar eða ekki.“

Hann bendir á að í hvert skipti sem inn­flytj­anda sé boðið að taka þátt í íslensku­námi, og í hvert skipti sem hann er úti­lok­aður „þá erum við að ákveða hvort við viljum sam­eina sam­fé­lagið eða skipta því.“ Sterkt, sann­gjarnt og vel fjár­magnað íslensku­nám sé því „ekki aðeins fjár­fest­ing í menntun og sam­þætt­ingu, það eru sam­fé­lags­legar örygg­is­ráð­staf­anir. Það er hvernig við verndum þá hug­mynd að sam­fé­lag sé sam­eig­in­legt. Það er hvernig við byggjum upp traust. Það er hvernig við skiljum engan eftir.“

Ian segir að fólkið sem flytur hingað vilji læra og að það vilji „taka þátt. Það vill tala. Það skortir ekki vilja heldur stuðn­ing stjórn­valda. Íslensk stjórn­völd þurfa að ákveða hvað þau raun­veru­lega vilja. Sjá þau inn­flytj­endur aðeins sem ódýrt vinnu­afl, sem bráða­birgða­lausn fyrir ferða­þjón­ust­una, eða sem mann­eskjur sem vert er að fjár­festa í, bæði með tíma og fjár­magni? Þetta er lyk­il­spurn­ing sem mun móta allt: frá sam­fé­lags­stefnu til mennt­unar, frá því hvernig við byggjum sam­fé­lög til þess hvernig við sjáum fyrir okkur fram­tíð­ina. Ef svarið er hið fyrra, þá mun núver­andi ástand hald­ast óbreytt. En ef svarið er hið síð­ara, þá verður að fylgja því eftir með raun­veru­legri fjár­fest­ingu í tungu­mála­námi og sam­þætt­ingu, og það verður að byrja núna.“

Að hans mati beri stjórn­völd ábyrgð „á að skapa skil­yrði fyrir sam­þætt­ingu, félags­legt traust og jafn­ræði. Því gildi eru ekki bara orð. Þau birt­ast í fjár­lögum, í ákvörð­unum, í því sem við veljum að fjár­festa í.“

Ian seg­ist oft heyra „að inn­flytj­endur eigi að aðlag­ast og mæta sam­fé­lag­inu - en í sam­fé­lagi sem neitar fólki um tíma, fjár­muni og aðgang til að læra tungu­málið, þá er engin leið. Bara veggur.“

Að lokum nefnir hann að „ef við viljum raun­veru­lega sam­fé­lag þar sem allir tala íslensku, þá verðum við að byggja upp kerfi sem gerir það mögu­legt fyrir alla. Gjald­frjálst nám og raun­veru­legt aðgengi frá fyrsta degi. Því þar til það ger­ist, þá er vanda­málið ekki fólkið sem vill læra, það er kerfið sem stöðvar það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð