Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir stjórnarandstöðuna vanvirða lýðræðið hér á landi

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir þing­maður Flokks fólks­ins í NV kjör­dæmi segir að mörg þjóð­þrifa­mál bíði afgreiðslu Alþingis, ekki aðeins auð­linda­gjaldið.

Segir stjórnarandstöðuna vanvirða lýðræðið hér á landi
Lilja Rafney Magn­ús­dóttir þing­kona Segir mörg mik­il­væg mál bíða í þing­inu Mynd: Víkingur

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir þing­maður Flokks fólks­ins í NV kjör­dæmi segir að mörg þjóð­þrifa­mál bíði afgreiðslu Alþingis.

Hún segir að „mest hefur verið rætt um frum­varp um að þjóðin fái sann­gjarna auð­lind­arentu af sam­eig­in­legri sjáv­ar­auð­lind“ en að einnig bíði „mál um bætt kjör aldr­aðra og öryrkja, efl­ingu strand­veiða og grá­slepp­una úr kvóta til varnar veikum sjáv­ar­byggðum, hús­næð­is­ör­yggi, fjár­mála­á­ætlun og fjár­auka­frum­varp svo eitt­hvað sé nefnt.“

Lilja Rafney telur að þetta séu „allt mál sem meiri­hluti þjóð­ar­innar styður. Mál sem stjórn­ar­flokk­arnir settu í for­gang í síð­ustu kosn­ingum. Málin end­ur­spegla því nið­ur­stöðu lýð­ræð­is­legra kosn­inga en stjórn­ar­and­staðan hefur lagst í mikla bar­áttu gegn.“

Lilja færir í tal að þeir sem missi völdin finn­ist það nú ansi óþægi­legt, sér­stak­lega ef að valda­tím­inn hafi verið langur:

„Það er alltaf súrt að missa völdin, tala nú ekki um þegar flokkar hafa verið í stjórn­ar­meiri­hluta lungan af síð­ustu ára­tugum og telja sig rétt­borna hand­hafa valds­ins“ og hún bætir því við að „þegar svo vill til að gömlu valda­flokk­arnir missa valdataumana fyrir ein­hvern mis­skiln­ing kjós­enda eins og eftir hið „svo­kall­aða hrun„ er öllu til fórnað til að kom­ast aftur til valda“ jafn­vel þó að „styðj­ast þurfi tíma­bundið við vinstri­flokk sem hverfur síðan á braut.“

Hún segir að stjórn­ar­and­staðan virði ekki lýð­ræðið hér á landi í þing­legri með­ferð mála „með því að ljúka þeim með atkvæða­greiðslu að loknum eðli­legum umræðum þar sem allir geta komið sýnum sjón­ar­miðum á fram­færi í atkvæða­skýr­ingum.“

Lilja Rafney segir það sem stjórn­ar­and­staðan ástundi þessi dægrin í kringum veiði­leyfagjaldið sé mál­þóf og ekk­ert annað skal það „þótt það fyr­ir­bæri hafi verið kallað ólýð­ræð­is­legt þegar gömlu valda­flokk­arnir héldu um valdataumana“ og segir að lokum að núna sé „mál­þóf ekki bara talið gott og gilt heldur ígildi neit­un­ar­valds þeirra sem telja sig fædd til valda“ og hún segir líka að þetta geti ekki „talist mál­efna­leg og vönduð vinnu­brögð heldur atlaga gegn lýð­ræð­is­legum vilja þjóðar og meiri­hluta þings.“

Að mati Lilju Raf­n­eyjar er virð­ing Alþingis mik­il­væg og að hennar mati hefur sú virð­ing verið brot­hætt allt frá efna­hags­hrun­inu árið 2008:

„Þjóðinni fannst hún eði­lega svikin þegar stjórn­völd gættu ekki hags­muna almenn­ings og mok­uðu undir fjár­mála­öflin fyrir Hrun.“

Hún segir að „síðan þá hefur verið ríkur vilji til að Alþingi öðlist aftur það traust og virð­ingu sem er nauð­syn­legt í öllum lýð­ræð­is­ríkjum. Til þess að svo megi verða þarf þing­heimur allur að finna til ábyrgðar.“

Lilja Rafney vill að við horfum til nágranna­ríkja okkar í Skand­in­avíu „þar sem margt er til fyr­ir­myndar. Þar má til dæmis horfa á umgjörð þeirra um þing­lega með­ferð mála, lengd umræðu og umfjöllun í þing­legri með­ferð sem lýkur með lýð­ræð­is­legri atkvæða­greiðslu á til­settum tíma“ og hún til­tekur að við verðum að „breyta okkar þing­sköpum í þessa veru og sýna sjálfum okkur og þjóð­inni þá virð­ingu sem lýð­ræðið á skilið.“

Hún segir að hlut­verk stjórn­ar­and­stöðu hverju sinni sé mik­il­vægt í öllum lýð­ræð­is­ríkjum og þar sé Ísland engin und­an­tekn­ing:

„Upp­byggi­leg stjórn­ar­and­staða veitir stjórn­völdum aðhald og á að hafa svig­rúm til að koma sínum málum og sjón­ar­miðum á fram­færi“ og hafa þannig „áhrif á laga­setn­ingu í þing­legri með­ferð“ en að það sé hins­vegar ekki hlut­verk stjórn­ar­and­stöð­unnar „að gjald­fella lýð­ræðið með skrum­skæl­ingu þing­skapa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum