Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir að samkvæmt sýknudómi Landsréttar „afsali allir blaðamenn sér réttinum til einkalífs“

Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands veltir vand­lega fyrir sér sýknu­dómi Lands­réttar í meið­yrða­máli Aðal­steins Kjart­ans­sonar blaða­manns gegn blogg­ar­anum Páli Vil­hjálms­syni

Segir að samkvæmt sýknudómi Landsréttar „afsali allir blaðamenn sér réttinum til einkalífs“
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands Afar ósátt yfir dómi sem féll í Lands­rétti er varðar blaða­menn og blaða­mennsku hér á landi Mynd: Blaðamannafélag Íslands

„Má berja blaða­menn?“ spyr for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, og veltir fyrir sér sýknu­dómi Lands­réttar í meið­yrða­máli Aðal­steins Kjart­ans­sonar blaða­manns gegn Páli Vil­hjálms­syni blogg­ara, en dóm­ur­inn féll þann 26. júní síð­ast­lið­inn og er að mati Sigríðar Daggar „áfell­is­dómur yfir dóms­kerf­inu sem skortir grund­vall­ar­skiln­ing á hlut­verki blaða­manna og fjöl­miðla.“

Það er þungt yfir Sigríði Dögg og mögu­lega ein­hverjum blaða­mönnum og öðrum sem starfa beint eða óbeint og með einum eða öðrum hætti að blaða­mennsku hér á landi eftir þennan sýkn­dóm sem að hennar mati grefur undan frelsi fjöl­miðla.

Og það kemur fljótt fram í máli Sigríðar Daggar að það sé ekk­ert annað en deg­inum ljós­ara að dóm­ur­inn grafi hrein­lega undan fjöl­miðla­frels­inu sem og lýð­ræð­is­legu hlut­verki allra þeirra fjöl­miðla er starf­ræktir eru hér á landi með því að veita hrein­lega skot­leyfi á þá blaða­menn, sem sam­kvæmt dómnum - sem nú hefur litið dags­ins ljós - eiga ein­fald­lega að þurfa að þola það að það sé hrein­lega og opin­ber­lega logið upp á þá alvar­legri sem og refsi­verðri hátt­semi fyrir það eitt að vinna vinn­una sína:

„Slíkar árásir á orð­spor og starfs­heiður blaða­manna eru ekki aðeins til þess fallnar að fæla þá frá því að fjalla um til­tekin mál, heldur ætlað að beina athygli frá efni umfjöll­un­ar­innar og grafa þannig undan blaða­mennsku og lýð­ræði“segir Sigríður Dögg og bætir því við að ekki hafi verið „deilt um það fyrir dómi hvort ummæli Páls um Aðal­stein hafi verið sönn. Þau voru það ekki. Þvert á móti voru þau upp­login og féllu vel að ófræg­ing­ar­her­ferð sem Samherji hefur um margra ára skeið háð gegn blaða­mönn­unum Aðal­steini og Helga Seljan sem árið 2019 sviptu hul­unni af því er virð­ast vera stór­felldar mútu­greiðslur Samherja til namibískra stjórn­mála­manna, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti.“

Vildu veikja til­trú almenn­ings

Hún nefnir það að í fram­haldi af þeim frétta­flutn­ingi hafi Samherji hafið vel skipu­lagða aðför að þeim Aðal­steini og Helga, er hafði þann eina til­gang og engan annan, en að grafa með með­vit­uðum og skipu­lögðum hætti undan æru þeirra sem og starfs­heiðri, og einnig að „veikja til­trú almenn­ings á þeim upp­lýs­ingum“ er fram komu í fréttum af meintri refsi­verðri hátt­semi Samherja.

Segir Sigríður Dögg að þau „ummæli Páls Vil­hjálms­sonar, sem Aðal­steinn kærði, voru alvar­leg aðför að æru Aðal­steins“ og vill hún meina að þau hafi verið ein­fald­lega verið „sett fram til að draga athygli almenn­ings frá hátt­semi Samherja í Namibíu og þaul­skipu­lagðri aðför útgerð­ar­innar gegn blaða­mönnum sem fjöl­miðlar upp­lýstu um í umfjöllun um Skæru­liða­málið svo­kall­aða árið 2021.“

Dómur byggður á van­þekk­ingu

Í máli Sigríðar Daggar kemur það fram að Páll hafi skrifað mörg hund­ruð blogg­færslur um þá Aðal­stein og Helga, og ekki bara þá tvo, heldur einnig um nokkra aðra blaða­menn sem hafa opin­ber­lega - í fjöl­miðlum - fjallað um fyr­ir­tækið Samherja á Akureyri. Þeirra á meðal eru þeir Þórður Snær Júl­í­us­son og Arnar Þór Ing­ólfs­son, sem einnig töp­uðu meið­yrða­máli gegn Páli í Lands­rétti.

Segir Sigríður Dögg með ákveðnum hætti að „sá dómur“ sé „líkt og þessi, byggður á van­þekk­ingu dóm­ara á hlut­verki og stöðu blaða­manna.“

Í ljósi stöð­unnar sem nú sé komin upp í fjöl­miðla­lands­lag­inu hér á landi eftir þennan sýknu­dóm er það mik­il­vægt að mati Sigríðar Daggar að „hnykkja á örfáum stað­reyndum um Skæru­liða­málið: Vorið 2021 birtu fjöl­miðlar fréttir um Skæru­liða­deild Samherja. Frétt­irnar voru unnar upp úr gögnum sem blaða­mönnum hafði borist og komið hefur fram að voru sam­bæri­leg gögnum sem finna mátti í síma Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra hjá Samherja. Í þeim voru upp­lýs­ingar um hvernig starfs­fólk Samherja hafði lagt á ráðin um hvernig reka skyldi áróð­urs­stríð gegn Aðal­steini og Helga, fyrst og fremst, sem þá hafði þegar staðið í 18 mán­uði og ætlað var að grafa undan trú­verð­ug­leika og æru þeirra.“ Segir Sigríður Dögg að „frétt­irnar vöktu reiði gegn Samherja í sam­fé­lag­inu enda var almenn­ingi mis­boðið að sjá svart á hvítu hvers konar níð­ings­hætti starfs­fólk útgerð­ar­ris­ans varð upp­víst að gegn blaða­mönnum. Samherji baðst að lokum opin­ber­lega afsök­unar á fram­ferði sínu.“

Blaða­menn gefa ekki upp heim­ild­ar­menn

Það kemur einnig fram í máli Sigríðar Daggar að ekk­ert af því sem fjöl­miðlar hafi birt um hátt­semi Samherja, hvort sem er í Namibíu eða gegn íslenskum blaða­mönnum, hafi Samherji sýnt fram á að sé rangt. Hvergi hefur verið upp­lýst um - enda gefa blaða­menn ekki upp heim­ild­ar­menn - né er þeim það heim­ilt sam­kvæmt lögum - hvaðan blaða­menn­irnir, sem skrif­uðu fréttir um Skæru­liða­málið, fengu heim­ildir sínar:

„Lög­reglan hefur engar upp­lýs­ingar um það hvaðan blaða­menn fengu gögn sín. Það að eig­in­kona Páls hafi mögu­lega tekið gögnin í leyf­is­leysi úr síma hans, líkt og Páll heldur fram, stað­festir ekki þar með að hún sé heim­ild­ar­maður blaða­mann­anna.“

Ekkert af þessu er satt

Sigríður Dögg færir í tal að á meðal þeirra ummæla Páls Vil­hjálms­sonar sem Aðal­steinn krafð­ist fyrir dómi að yrðu dæmd dauð og ómerk voru „æru­meið­andi, ósannar full­yrð­ingar um að Aðal­steinn hefði átt beina eða óbeina aðild að byrlun Páls skip­stjóra og stuldi á síma hans; að hann og fleiri blaða­menn hafi tekið þátt í að skipu­leggja til­ræði gegn Páli“ og að þeir hafi „vís­vit­andi framið alvar­legt refsi­vert brot og lagt sig fram við að eyða sönn­un­ar­gögnum um það. Ekkert af þessu er satt. Engin af þessum full­yrð­ingum á stoð í gögnum lög­reglu. Það veit Páll Vil­hjálms­son mæta­vel - hann hefur sjálfur sagt á bloggi sínu að hann sé með öll gögn máls­ins. Samt lýgur hann alvar­legum lög­brotum upp á nafn­greinda blaða­menn.“

Hættuleg nið­ur­staða

Það er und­ir­liggj­andi áhyggju­tónn í orðum for­manns Blaða­manna­fé­lags Íslands og í máli hennar kemur fram að dómur Lands­réttar hafi kom­ist að þeirri „hættu­legu nið­ur­stöðu að það megi hann gera án afleið­inga. Í meið­yrða­málum er almennt tek­ist á um það hvort vegi þyngra ann­ars vegar réttur ein­stak­lings til að tjá sig eða frið­helgi einka­lífs ein­stak­lings sem tján­ingin bein­ist að. Heimilt er sam­kvæmt lögum að tak­marka tján­ing­ar­frelsi manna til verndar mann­orði ein­stak­linga.“

Segir Sigríður Dögg að almennt sé ekki heim­ilt að refsa fyrir sönn ummæli, en ósannar æru­meið­ingar kunna að varða ábyrgð og er þá „gerður grein­ar­munur á gild­is­dómum sem ekki er hægt að sanna og stað­hæf­ingum um stað­reyndir sem unnt á að vera að sann­reyna“ og þá þurfi að meta hvort „mál­efnið sem tek­ist er á um eigi erindi við almenn­ing og hafi almenna þýð­ingu. Lands­réttur kemst að þeirri nið­ur­stöðu að þó svo að Páll saki Aðal­stein og fleiri blaða­menn um að hafa lagt á ráðin um byrlun á Sam­herj­a­skip­stjóra og stuld á síma - hvor­ugt er rétt - þurfi Páll ekki að færa sönnur á mál sitt - sem hann gerir raunar enga til­raun til.“

Allar full­yrð­ingar upp­lognar

Fram kemur í máli Sigríðar Daggar að í full­yrð­ing­unum sé „visst svig­rúm til túlk­unar“, líkt og segir orð­rétt í dómnum, og að Páll hafi verið „í góðri trú um sann­leiks­gildi þeirra“. Hvernig má það vera?“ spyr hún og heldur áfram:

„Páll hefur sjálfur sagt frá því opin­ber­lega að hann hafi öll gögn máls­ins. Þar er stað­reyndir máls­ins að finna, sem sýna svart á hvítu að allar full­yrð­ingar hans eru upp­lognar eða í besta falli teknar úr sam­hengi með það að mark­miði að grafa undan trú­verð­ug­leika og æru Aðal­steins.“

Sigríður Dögg segir að í dómnum að hafi Aðal­steinn haft „stöðu sak­born­ings og sætti rann­sókn lög­reglu þegar þau [ummælin] féllu“ og nefnir um leið rann­sókn lög­reglu á meintum brotum gegn laga­greinum sem Aðal­steinn var alls ekk­ert grun­aður um, né heldur aðrir blaða­menn sem höfðu rétt­ar­stöðu sak­born­inga í mál­inu. Með dómnum veitir Lands­réttur nið­ur­felldri lög­reglu­rann­sókn tals­vert vægi við mat sitt“ og það þrátt fyrir þær „alvar­legu athuga­semdir sem gerðar höfðu verið við rann­sókn­ina á fyrri stigum“ og segir Sigriur Dögg að slíkt sé „veru­lega alvar­legt í sjálfu sér að veita slíkt svig­rúm til að brigsla mönnum um refsi­verða hátt­semi sem ekki hefur sann­ast með dómi.“

Til­efn­is­laus lög­reglu­rann­sókn

Að mati Sigríðar Daggar er það enn alvar­legra þegar „lög­reglu­rann­sóknin var til­efn­is­laus og ósam­rým­an­leg tján­ing­ar­frelsi hlut­að­eig­andi blaða­manna“ eins og Blaða­manna­fé­lag Íslands „hefur bent á og með því var í reynd aukið á íþyngj­andi áhrif lög­reglu­rann­sókn­ar­innar og þar með þá órétt­mætu skerð­ingu tján­ing­ar­frelsis sem blaða­menn­irnir sættu af völdum hennar“ og þar að auki hefur það hingað til ekki haft „áhrif í meið­yrða­málum að sá sem telur sig hafa orðið fyrir æru­meið­ingum hafi rétt­ar­stöðu sak­born­ings.“

Kemur fram að dóm­stólar hafa til þessa ekki talið aukið svig­rúm til að meiða æru manna sem eru sak­born­ingar enda væri þá verið að leggja til grund­vallar að sak­born­ingur, sem þó telst sam­kvæmt stjórn­ar­skrá sak­laus uns sekt er sönnuð, njóti minni frið­helgi en ella af þeirri ástæðu einni að hann sæti rann­sókn.

Skot­leyfi gefin út

„Nið­ur­staða Lands­réttar í máli Aðal­steins er að þessu leyti þver­öfug við það sem til þessa hefur tíðkast“ og segir Sigríður Dögg að það geti haft þær afar alvar­legu afleið­ingar að nú sé „skot­leyfi á alla þá sem fá rétt­ar­stöðu sak­born­ings í málum sem eru til rann­sóknar hjá lög­reglu og leyfi­legt sé að saka þá um alvar­lega glæpi, hvort sem þeir séu grun­aðir um að hafa framið þá eða aðrir sak­born­ingar í sama máli.“

Sigríður Dögg spyr hvar Lands­réttur muni draga lín­una og hvort það verði í tengslum „við æru­meið­ingar? Eða má mögu­lega ganga lengra í árásum á blaða­menn? Má berja blaða­mann sem hefur rétt­ar­stöðu sak­born­ings í lög­reglu­rann­sókn ef sá sem beitir ofbeld­inu telur að blaða­mað­ur­inn hafi til þess unnið?“

Staða blaða­manna í nútíma sam­fé­lagi

Hún veltir því fyrir sér stöðu blaða­manna sem hafa ekki rétt­ar­stöðu sak­born­ings:

„Má hafa æruna af honum? Þetta þarf Hæsti­réttur að skera úr um“ segir Sigríður Dögg og bætir því við að „blaða­menn eiga að njóta sömu verndar gegn meið­yrðum og aðrir“ og í „dómnum er það sér­stak­lega tekið fram að vegna þess að Aðal­steinn „er þekktur blaða­maður sem nýtur rúms tján­ing­ar­frelsis [...] þurfi hann að vera undir það bú[inn] að þola óþægi­lega og hvassa gagn­rýni og aðfinnslur við störf sín.“ Þetta er sam­hljóða ályktun og í fyrr­nefndum dómi í meið­yrða­máli Þórðar og Arnars gegn Páli.“

Hún segir hins vegar ein­fald­lega:

„Álykt­unin er hins vegar röng.“

Bætir því við að ekk­ert af þeim ummælum er deilt var um í þessum tveimur málum varða „gagn­rýni eða aðfinnslur við störf blaða­mann­anna. Þau eru ein­fald­lega atlaga að æru þeirra“ og einnig ekk­ert annað en „upp­spuni, lygar og útúr­snún­ingur Páls Vil­hjálms­sonar“ og segir hún að það sé „hættu­legt for­dæmi að leyfi­legt sé að segja nán­ast hvað sem er um fólk svo lengi sem það er skil­greint sem opin­berar per­sónur.“

Afsala sér rétt­inum til einka­lífs

Sigríði Dögg finnst það í besta falli mjög „hæpin ályktun dóms­ins að blaða­menn verði sjálf­krafa opin­berar per­sónur“ vegna þess eins að þeir „skrifa fréttir undir nafni“ og að hennar mati þýðir þetta ein­fald­lega að sam­kvæmt „þessum dómi afsali allir blaða­menn sér rétt­inum til einka­lífs um leið og frétt birt­ist undir þeirra nafni. Þetta þarf Hæsti­réttur líka að skera úr um.“

Í áður­nefndum dómi segir að Páll Vil­hjálms­son sé „ötull blogg­ari og pistla­höf­undur [sem] hefur aflað sér mennt­unar á sviði blaða- og frétta­mennsku“. Jafn­framt segir að hann hafi „með umdeildum færslum sínum [verið] þátt­tak­andi í almennri umræðu um mik­il­væg sam­fé­lags­leg mál­efni sem erindi áttu við almenn­ing og naut af þeim sökum rúms tján­ing­ar­frelsis“.

Sigríður Dögg telur að af þessum for­sendum megi „skilja að blogg­ar­inn Páll Vil­hjálms­son fái rýmri heim­ild til æru­meið­inga vegna þess að bloggskrif hans séu mik­il­væg fyrir almenn­ing.“

Tján­ing­ar­frelsið í hættu

Telur hún að aukin vernd tján­ing­ar­frelsis sé almennt ætluð blaða­mönnum svo þeir hafi nauð­syn­legt svig­rúm við störf sín og einnig til að vernda þá gegn mál­sóknum og kærum er hafa það að mark­miði að koma í veg fyrir umfjöllun þeirra um sam­fé­lags­lega mik­il­væg mál­efni:

„Blaða­mönnum ber hins vegar að fara að siða­reglum í sínum störfum, ólíkt Páli“ en í siða­reglum íslenskra blaða­manna segir meðal ann­ars að þeir „hafi sann­leik­ann að leið­ar­ljósi og setji upp­lýs­ingar fram á heið­ar­legan og sann­gjarnan hátt, hag­ræði ekki stað­reyndum og setji ekki fram órök­studdar ásak­anir.“ Segir í siða­reglum að blaða­maður geri „grein­ar­mun á stað­reyndum og skoð­unum og gangi úr skugga um áreið­an­leika upp­lýs­inga.“

Hún nefnir einnig að „Lands­réttur gerir hins vegar ekki sömu kröfur á Pál Vil­hjálms­son, svo sem um að hann segi satt eða rétt frá, heldur veitir honum „svig­rúm til túlk­unar“ og „álykt­ana“ sem sýnt hefur verið fram á að séu rangar og fela í sér alvar­lega atlögu að starfs­heiðri og æru Aðal­steins.“

Segir Sigríður Dögg að það sé röng ályktun að hann [Páll Vil­hjálms­son, inn­skot blm] „skuli hafa aukið svig­rúm“ til slíkrar tján­ingar fyrir þær „sakir einar“ að hann heldur „úti bloggi.

Blogg ekki það sama og blaða­mennska

Hún nefnir að blogg sé ekki sjálf­krafa blaða­mennska þó svo að sá sem það skrifar kalli sig blaða­mann eða hafi lært blaða­mennsku:

„Blaða­maður vinnur sam­kvæmt siða­reglum blaða­manna og í þágu almenn­ings. Þá ber að nefna að Lands­réttur komst að þver­öf­ugri nið­ur­stöðu í máli gegn Frétta­blað­inu árið 2019, þar sem fram kom í rök­stuðn­ingi Lands­réttar að skort hafi á að upp­fylltar væru kröfur um hlut­læg og nákvæm vinnu­brögð blaða­manns­ins, sem leiddi til þess að ummæli töld­ust ósönnnuð og æru­meið­andi.“

Segir Sigríður Dögg að þessi krafa hafi hins­vegar „ekki“ verið gerð „á Pál, þótt verið sé að veita honum rýmkað tján­ing­ar­frelsi. Dóm­stólar hafa við úrlausn meið­yrða­mála gert ríkar kröfur á blaða­menn um hlut­læg og nákvæm vinnu­brögð og gert kröfu um að þeir sýni fram á að ummæli hafi stuðst við áreið­an­leg gögn og upp­lýs­ingar. Það þurfti Páll ekki að gera, sam­kvæmt dómnum.“

Meið­yrða­lög­gjöf­inni snúið á haus

Hún segir líka að dóm­ur­inn virð­ist reyndar „taka undir það að ein­hverju leyti að Páll hafi með ummælum sínum skaðað mann­orð Aðal­steins — skað­inn hafi hins vegar ekki verið „að því marki að hann hafi með þeim bakað sér skyldu til greiðslu miska­bóta honum til handa“. Lands­réttur snýr þannig á haus meið­yrða­lög­gjöf­inni og vernd tján­ing­ar­frelsis sem hefur meðal ann­ars þann til­gang að vernda blaða­menn fyrir órétt­látum árásum sem hafa það að mark­miði að hafa af þeim mann­orðið. Sem er nákvæm­lega það sem Páll stefndi að — og getur nú haldið áfram við — með stuðn­ingi Lands­réttar.“

Að mati Sigríðar Daggar þrengir dóm­ur­inn að rétt­indum blaða­manna og bendir á í þessu sam­hengi að hinum æru­meið­andi ummælum Páls um Aðal­stein, Þórð og Arnar Þór hafi ekki aðeins verið ætlað að draga úr trú­verð­ug­leika blaða­mann­anna og umfjöll­unar þeirra og leiða athygli almenn­ings frá hátt­semi Samherja heldur voru ummæli Páls til þess fallin að fæla aðra blaða­menn frá því að fjalla um mál tengd Samherja:

„Fyrir vikið voru ummælin miklu frekar þess vald­andi að draga úr fremur en stuðla að umræðu um sam­fé­lags­lega mik­il­væg mál­efni“ og þar af leið­andi „veikir þessi dómur frekar en styrkir stöðu blaða­manna við umfjöllun þeirra um sam­fé­lags­lega mik­il­væg mál — og þar með lýð­ræð­is­legt hlut­verk blaða­manna.“

Þrengt að rétt­indum blaða­manna

Hún segir að af því leiði að raun­veru­legt for­dæm­is­gildi dóms­ins sé fremur til þess fallið að þrengja að rétt­indum blaða­manna á Íslandi en rýmka þau:

„Þótt nið­ur­staða dóms­ins sé að formi til sú að tján­ing­ar­frelsið hafi í þessu til­viki“ vegið þyngra en frið­helgi einka­lífs er nið­ur­staða „dóms­ins efn­is­lega sú að heim­ilt hafi verið að veit­ast opin­ber­lega að blaða­mönnum vegna frétta­skrifa þeirra með ósönn­uðum stað­hæf­ingum um alvar­lega refsi­verða hátt­semi af þeirra hálfu.“

Að hennar mati þá felur efn­is­lega dóm­ur­inn því í sér að heim­ilt sé að bregð­ast við rétt­mætri umfjöllun blaða­manna, um sam­fé­lags­lega mik­il­væg mál­efni sem byggð er á traustum heim­ildum, með alvar­legum og órök­studdum árásum á orð­spor þeirra og starfs­heiður:

„Slíkar árásir eru ekki aðeins til þess fallnar að fæla“ blaða­menn frá því að fjalla um „mál þar sem búast má við við­brögðum sem þessum heldur jafn­framt til þess fallnar að draga úr trú­verð­ug­leika blaða­manna“ og einnig fjöl­miðla almennt og beina þannig athygli frá efni fjöl­miðlaum­fjöll­unar og að per­sónum þeirra blaða­manna sem í hlut eiga.“

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu næsta skrefið

Hún nefnir að for­dæmi þess efnis að við­brögð af þessu tagi við störfum blaða­manna séu lög­mæt er ekki til þess fallið að tryggja tján­ing­ar­frelsi blaða­manna heldur þvert á móti til þess fallið að draga úr því og með því grafa undan blaða­mennsku og lýð­ræði og að „það er grund­vall­ar­at­riði fyrir stöðu blaða­manna, og þar með lýð­ræðis í land­inu, að Hæsti­réttur taki þetta mál fyrir og skeri úr um það hvort blaða­menn njóti ekki lengur verndar gegn upp­lognum árásum sem ætlað er að grafa undan trú­verð­ug­leika þeirra og starfs­heiðri.“

Sigríður Dögg segir að lokum að ef „Hæsti­réttur gerir það ekki þá þarf að fara með málið fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Svo miklir hags­munir eru í húfi - fyrir alla blaða­menn - en ekki síður almenn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum