Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Stjórnarandstaðan skilur ekki að það er ekki hægt að afla fylgis með leiðindum“

Hall­grímur Helgason mát­aði orð Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar um „dimman dag“ í ferð sinni um Norð­ur­land

„Stjórnarandstaðan skilur ekki að það er ekki hægt að afla fylgis með leiðindum“
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Hall­grímur Helgason hæð­ist að stjórn­ar­and­stöð­unni í nýrri Facebook-færslu Mynd: Víkingur

„Vikum saman héldu þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar pontu Alþingis svo eng­inn annar komst að. Og hót­uðu því að tala áfram fram að jólum. "Það er okkar heilaga skylda!" æpti þing­maður fyrir hönd fjöl­skyldu sinnar sem er áskrif­andi að árlegum kvóta­millj­arði austur á landi.“

Þannig hefst Facebook-færsla Hall­gríms Helga­sonar, rit­höf­unds og mál­ara, sem vakið hefur nokkra athygli. Þar hæð­ist Hall­grímur að stjórn­ar­and­stöð­unni sem sló Íslands­met á dög­unum í mál­þófi á Alþingi. Rit­höf­und­ur­inn hélt áfram:

„Vikum og dögum átti þetta fólk sviðið og voru á end­anum orðin þekkt­ari and­lit en sjálfir ráð­herr­arnir í rík­is­stjórn Íslands. Smám saman sveif á þau sú blekk­ing að þau færu enn með nokkur völd. Í gær var tepp­inu kippt undan þeim.“

Sagði Hall­grímur því næst að öllu hafi verið snúið á haus þegar mál­þófið var stöðvað.

„Það var því nokkuð hlá­legt, en þó fyr­ir­sjá­an­legt, að fyrstu við­brögð þeirra yrðu að spila sig sem fórn­ar­lömb, fólkið sem hafði haldið Alþingi í her­kví vikum saman með mál­beldi. Þegar endir var bund­inn á óeðli­legt ástand var það allt í einu aðför að lýð­ræð­inu. Öllu snúið á haus.“

Hall­grímur minn­ist einnig á stjórn­ar­and­stöð­una þegar Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir fór fyrir rík­is­stjórn­inni og lýsir offorsi og að það hafi verið end­ur­tekið nú. Þá segir hann stjórn­ar­and­stöðukarl­ana ekki geta sætt sig við þriggja kvenna stjórn.

„Við munum öll hvernig tapsárir ráð­andi flokkar létu í and­stöðu sinni við rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, það var offors sem aldrei hafði áður sést, og nú skal leik­ur­inn end­ur­tek­inn. Forn­eskju­legur til­karlar sem enn eru pikk­fastir í Thatcher-frös­unum geta bara ekki sætt sig við þriggja kvenna stjórn sem laus er við alla með­virkni.

Þetta fólk þolir ekki að aðrir stjórni. Þann 10. júlí höfðu XD og XB enn ekki sætt sig við kosn­inga­úr­slit frá 30. nóv­em­ber. Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins talar hvað eftir annað eins og hans hug­myndir og til­lögur eigi enn að hafa ein­hverja vigt í sölum Alþingis.

Fróðlegt verður að sjá næstu könnun.“

Í seinni hluta færslu sinnar talar Hall­grímur um ferð sína fyrir norðan um helg­ina en þar hafi ekki verið hægt að sjá að fólkið þar væri miður sín yfir kjarn­orku­á­kvæð­inu.

„Ég þurfti inn á Dalvík í gær og gat ekki annað en mátað orð Guðlaugs Þórs um "dimman dag" við Sam­herja­höll­ina í höfn­inni þar, svo glæst sem hún glitr­aði í sól­skin­inu. Enga sorg fann ég þó í Menn­ing­ar­hús­inu góða þar sem elda­konur reiddu fram stór­kost­lega Thai-súpu og með því.

Akur­eyrsku kon­urnar sem ég hitti á kaj­anum á Árskógs­sandi voru einnig ómyrkar í máli: "Loksins var þetta mál­æði stöðvað, þessi þjóð­ar­skömm." Ég gat ekki annað en for­vitn­ast á móti: "Er þetta stemmn­ingin á Akureyri?" Ekki stóð á svari hjá fal­legri ömmu í fínt pjón­aðri lopa­peysu: "Algjör­lega. Það er öllum alveg mis­boðið, þessi líka vit­leysa!" - "Stendur eng­inn með mál­þóf­inu?" - "Nei, jú … það svona liggur bara í þessum örfáu fjöl­skyldum, auð­vitað".“

Að lokum segir lista­mað­ur­inn frá Sjálf­stæð­is­manni sem hann hitti í Hrísey, sem var síður en svo sáttur við sinn flokk.

„Úti í eyj­unni okkar hitti ég svo gamlan og fróman Sjálf­stæð­is­mann, sem var að reisa kaffi­tjald fyrir Hrís­eyj­ar­há­tíð­ina sem nú stendur yfir: "Ja, ekki man ég eftir neinu mál­þófi eða áhyggjum af okkur hér þegar kvót­inn og frysti­húsið var tekið af okkur um árið og fært yfir á Dalvík. Það var árið 2000 og okkar fólk við völd. Nei nei, en þegar for­stjór­arnir og eig­end­urnir eiga það á hættu að þurfa að selja majo­nesið sitt, þá verður allt vit­laust. Auðvitað snýst þetta aldrei um fólkið, bara pen­ing­ana."

Síðar um kvöldið, fyrir utan ballið í Sæborg, orð­aði okkar skýr­asti maður stöð­una svo: “Stjórn­ar­and­staðan skilur ekki að það er ekki hægt að afla fylgis með leið­indum”.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum