Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Eykur getu Íslands til að axla byrðar innan Atlantshafsbandalagsins“

Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins átti fund með Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra á örygg­is­svæð­inu í Keflavík í vinnu­heim­sókn hennar til lands­ins.

„Eykur getu Íslands til að axla byrðar innan Atlantshafsbandalagsins“
Ferð­uð­ust um í þyrlu Gerðu svo varn­ar­samn­ing Mynd: Stjórnarráðið

Ursula von der Leyen átti fund með Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra á örygg­is­svæð­inu í Keflavík.

Kemur fram að í heim­sókn­inni voru örygg­is­mál í víðum skiln­ingi til umræðu, til að mynda almanna­varnir og áfalla­þol, auk öryggis- og varn­ar­mála á Íslandi og Norður-Atl­ants­hafs­svæð­inu sem og fram­lag Íslands til sam­eig­in­legra varna Atl­ants­hafs­banda­lags­ins.

Kynnti for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar­innar sér aðstæður við leit og björgun á hálendi Íslands í boði Land­helg­is­gæsl­unnar og þær krefj­andi nátt­úru­að­stæður og nátt­úruvá sem Íslend­ingar búa við. Fékk hún einnig að sjá frá fyrstu hendi áhrif eldsum­brot­anna á Reykja­nesskaga og kynnti sér þær miklu áskor­anir sem Grind­vík­ingar og aðrir íbúar á svæð­inu hafa þurft að glíma við und­an­farin miss­eri.

Á fundi for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra með Von der Leyen var ákveðið að hefja við­ræður um gerð sam­starfs­yf­ir­lýs­ingar milli Íslands og ESB um öryggis- og varn­ar­mál með það að mark­miði að ljúka þeim á þessu ári.

Segir Kristrún að fyr­ir­huguð sam­starfs­yf­ir­lýs­ing sé mik­il­væg í ljósi núver­andi stöðu heims­mála, og einnig vegna þeirrar hröðu þró­unar sem orðið hefur á öryggis- og varn­ar­stefnu ESB und­an­farna mán­uði.

Áður­nefnd sam­starfs­yf­ir­lýs­ing mun meðal ann­ars fela í sér nán­ara sam­ráð um öryggis- og varn­ar­mál, upp­lýs­inga­miðlun, sam­starf um öryggi á haf­svæðum, hugs­an­lega þátt­töku Íslands í alþjóð­legum verk­efnum ESB, sam­starf um örygg­is­mál á norð­ur­slóðum og hugs­an­lega mögu­leika á frekara sam­starfi um fjár­fest­ingar í verk­efnum sem hafa bæði borg­ara­legt og hern­að­ar­legt gildi.

Hefur ESB nú þegar gert átta slíka samn­inga við helstu sam­starfs­ríki sín, þar á meðal Noreg, Bretland og Kanada.

Segir Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ákvörð­un­ina vera mikið fagn­að­ar­efni:

„Ísland og ESB eiga nú þegar gott sam­starf á flestum þess­ara sviða en sam­starfs­yf­ir­lýs­ingin mun styrkja sam­starfið enn frekar og fella það í fast­ari skorður“ og telur Kristrún að „þessi yfir­lýs­ing mun auka sýni­leika sam­starfs­ins og und­ir­strika að Ísland sé á meðal nán­ustu sam­starfs­ríkja ESB á sviði öryggis- og varn­ar­mála.“

Hún segir að þetta sé „jafn­framt liður í því að auka getu Íslands til að axla byrðar innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins“ og er þess vegna afar „mik­il­vægur áfangi í að byggja upp okkar eigið áfalla­þol.“

Í máli utan­rík­is­ráð­herra kemur fram að á „fund­inum var einnig hrint af stað fyr­ir­hug­aðri end­ur­skoðun á við­skipta­kjörum Íslands við ESB“ og „það er vissu­lega áfangi fyrir okkur að ráð­ast í þessa end­ur­skoðun því við höfum lengi sótt á um greið­ari mark­aðs­að­gang fyrir sjáv­ar­af­urðir til ESB með var­an­legum hætti í stað tíma­bund­inna toll­frjálsra kvóta eins og nú er samið um með reglu­legu milli­bili“ og þetta er „sann­ar­lega tíma­bært því engin slík heild­stæð end­ur­skoðun hefur farið fram síðan EES-samn­ing­ur­inn tók gildi,“ segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra.

Samhliða var einnig ákveðið að styrkja sam­ráð milli íslenskra stjórn­valda og fram­kvæmd­stjórnar ESB um utan­rík­is­við­skipta­mál og auka upp­lýs­inga­skipti.

Á fund­inum ræddu þær Kristrún og Þor­gerður Katrín við for­seta fram­kvæmda­stjórn­ar­innar um mögu­leik­ana á auknu sam­starfi um mál­efni hafs­ins, þar með talið gerð tví­hliða samn­ings um skipti á veiði­heim­ildum og segir utan­rík­is­ráð­herra að með þessu sé verið að tryggja íslenska hags­muni til lengri og skemmri tíma líkt og með sam­bæri­legum samn­ingum við nágranna­ríki Íslands.

Ísland er nú þegar með samn­inga við Grænland, Noreg og Færeyjar um skipti á fisk­veiði­heim­ildum og „væri sam­komu­lag við ESB mik­il­væg við­bót við þessa samn­inga“ segir Kristrún.

Leið­tog­arnir ræddu ýmis­legt og til tals kom þátt­taka Íslands í áætlun ESB um örugg fjar­skipti í gegnum gervi­hnetti. Gafst á fund­inum færi á að draga upp skýra mynd af þeim áskor­unum sem Íslend­ingar búa við hvað varðar öryggi sæstrengja:

„Þetta sam­starfs­verk­efni er ákaf­lega brýnt fyrir okkur Íslend­inga sem eigum allt okkar undir að tryggja öryggi sæstrengja okkar. Ef þeir rofna þá er það nauð­syn­legt fyrir virkni þjóð­ar­bús­ins að tryggja til fram­búðar aðgengi að hrað­virkum, öruggum og hag­kvæmum fjar­skiptum um gervi­hnetti á heims­vísu. Þessi áætlun fjölgar sam­skipta­leiðum okkar við umheim­inn og eflir fjar­skipta­ör­yggi,“ segr Kristrún.

Málefni Norð­ur­slóða hafa verið í brennid­epli í langan tíma og ásælni Banda­ríkj­anna og fleiri þjóða var rædd og til­kynnti von der Leyen að hafin yrði end­ur­skoðun á norð­ur­slóða­stefnu ESB og lagði hún áherslu á ríkan áhuga sam­bands­ins á að leita eftir sam­starfi við Ísland á þeim grund­velli. Einnig ræddu leið­tog­arnir lofts­lags­mál og leiðir til að styrkja sam­starf Íslands og ESB á sviði lofts­lags­mála fyrir tíma­bilið eftir 2030.

Síðan var haldið í þjóð­garð­inn á Þing­völlum undir leið­sögn þjóð­garðsvarðar, og í vinnu­kvöld­verði í Þing­valla­bænum er á dag­skrá stöða alþjóða­mála, með sér­staka áherslu á stöðu mála fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs og í Úkraínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum