Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Anna segir gamansögu af þýskum bátsfélaga

„Hlátra­sköllin í borð­salnum sögðu allt um það er Walter Wachenfeld birt­ist í borð­salnum nýklipptur og sætur að eigin áliti.“

Anna segir gamansögu af þýskum bátsfélaga
Anna Krist­jáns­dóttir Senni­lega er Anna fyndn­asti vél­stjóri lands­ins Mynd: Trausti Hafsteinsson

Anna Krist­jáns­dóttir rifj­ast upp afar skraut­legan karakter sem hún kynnt­ist á sjónum í den tid.

Vél­stjór­inn og húmorist­inn Anna Krist­jáns­dóttir hefur margar fjör­urnar sopið í gegnum ævina og er dug­leg að segja frá skemmti­legum minn­ingum í dag­bók­ar­færslum sínum á Facebook, les­endum til mik­illar ánægju.

Í nýj­ustu færsl­unni segir hún frá Þjóð­verja sem hún kynnt­ist á sjónum.

„Dagur 2176 – Þjóð­verjar.

Við skruppum saman á bar­inn, nánar til­tekið Sandy´s bar, ég, Val­mundur og Björg og kjöft­uðum saman um allt á milli him­ins og jarðar og brátt kom að því að við hófum að segja frá við­kynnum okkar við Þjóð­verja og þar vant­aði ekki minn­ing­arnar. Hann hafði af ýmsu að segja, en svo rifj­uð­ust upp minn­ingar mínar af Walter Wachenfeld, þýskum stýri­manni á flutn­inga­skip­inu Skóga­foss meðan það var í leigu hjá Eimskip, áður en það komst í eigu Eim­skipa­fé­lags­ins vorið 1985 og fékk þá íslenska áhöfn. Walter Wachenfeld var einn sá kostug­leg­asti kara­ker sem ég hefi kom­ist í kynni við í ferðum mínum til sjós.“

Þannig hefst dag­bók­ar­færsla Önnu en því næst segir hann frá barni sem Walter eign­að­ist með eig­in­konu sinni, þrátt fyrir að hafa verið á sjó þegar getn­að­ur­inn átti sé stað.

„Að sögn áhafn­ar­innar hafði hann kvænst stúlku einni, en hélt svo til hafs. Er hann kom aftur til heima­hafnar átján mán­uðum síðar tók eig­in­konan á móti honum með sex mán­aða gam­alt barn þeirra og hann fagn­aði barn­inu ógur­lega. Eig­in­konan var hins­vegar ekki alveg til­búin til að sam­þykkja hann og af varð skiln­aður.“

Þá segir Anna einnig frá því þegar Walter kvart­aði yfir pen­inga­leysi en hann hafði viljað láta klippa sig í Horsens í Dana­veldi.

„Þegar ég kynnt­ist Walter Wachenfeld var skipið í leigu hjá Eimskip og túr­inn áður en ég fór með skip­inu, ætl­aði hann að láta klippa sig í Horsens í Danmörku. Hann kom til baka óklipptur og kvart­aði sáran yfir að klipp­ingin kost­aði sjö dönskum krónum meira en hann var með í budd­unni. Jón Guðnason heit­inn og góður vinur vor sem var lest­un­ar­stjóri (supercargó) um borð gaf honum þá þessar fáeinu krónur sem upp á vant­aði. Walter Wachenfeld þakk­aði kær­lega fyrir sig, stakk krón­unum í vas­ann og klippti sig síðan sjálfur. Það varð alls­herjar hlátur í borð­salnum er hann mætti þangað nýklipptur, enda ljóst að vand­virkn­inni hafði ekki verið fyrir að fara.“

Anna rifjar einnig upp eina skemmti­leg­ustu sjó­ferð lífs hennar en þá kom þýsk kona um borð, sem Walter vildi að klippti sig.

„Túrinn á eftir var ég um borð. Þá var kom­inn nýr 2. stýri­maður, þýsk kona sem kunni ýmis­legt fyrir sér, en þrátt fyrir ítrekuð til­mæli yfir­stýri­manns­ins, harð­neit­aði hún að skera hár hans, hún væri stýri­maður en ekki hár­skeri. Þetta var ein­hver skemmti­leg­asta ferð mín til sjós og hann hélt áfram að nuða i henni að klippa sig, hún væri jú kona og konur kunna að klippa menn.“

Konan lét þó undan að end­ingu en hafði víst engu logið um kunn­áttu sína með skærin.

„Að lokum lét hún undan og á leið­inni frá Hamborg til Íslands tók hún að sér að klippa hár Walters Wachenfeld. Það verður að segj­ast eins og er að hún laug engu er hún sagð­ist ekki kunna að klippa.

Hlátra­sköllin í borð­salnum sögðu allt um það er Walter Wachenfeld birt­ist í borð­salnum nýklipptur og sætur að eigin áliti.“

Að lokum seg­ist Anna ekki vita hvað hafi orðið um hinn þýska Walter en að minn­ingin lifi.

„Síðan þá eru liðnir fjórir ára­tugir og ég hefi ekki hug­mynd um hvort að Walter Wachenfeld sé lífs eða lið­inn, en minn­ingin um hann er samt bráð­skemti­leg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina