Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kona frá Minnesota telur sig óskilgetna langalangömmubarn Viktoríu drottningar

Vill við­ur­kenn­ingu frá Karli kon­ungi

Kona frá Minnesota telur sig óskilgetna langalangömmubarn Viktoríu drottningar
Angela og Viktoría Er svipur með þeim eða hvað?

Angela Webb-Milinkovich, 47 ára, frá Minnesota í Banda­ríkj­unum, telur sig og systur sína vera afkom­endur ást­ar­sam­bands Viktoríu drottn­ingar og trú­fasts þjóns hennar, John Brown. Hún seg­ist nú ætla að láta fram­kvæma DNA-próf til að sanna kon­ung­lega ætt sína, og að loka­mark­mið hennar sé að fá við­ur­kenn­ingu frá Karli Breta­kon­ungi.

Sagn­fræð­ing­ur­inn Dr. Fern Riddell hefur rann­sakað málið í fjögur ár fyrir nýja bók sína Victoria’s Secret og telur að Angela eigi rætur að rekja til barns sem fæðst hafi í laumi á meðan Viktoría var ekkja. Samkvæmt kenn­ing­unni hafi Mary Ann, langamma Angelu, í raun verið tíunda barn Viktoríu drottn­ingar og John Brown, en á papp­írum sé hún skráð sem barn Hugh, bróður Johns, og konu hans Jessie.

John og ViktoríaSögu­sagnir voru um náið sam­band þeirra

Angela segir að þetta snú­ist ekki um pen­inga, heldur að tryggja að saga fjöl­skyld­unnar fái þá við­ur­kenn­ingu sem hún á skilið.

„Mitt helsta mark­mið er að sagan verði við­ur­kennd, að sam­band þeirra verði opin­ber­lega við­ur­kennt og að kon­ungs­fjöl­skyldan hætti að neita því að það hafi átt sér stað,“ segir hún.

Í nýrri heim­ild­ar­mynd Channel 4 segir Dr. Riddell að Viktoría hefði auð­veld­lega getað falið með­göngu á sjö­unda ára­tug 19. aldar, sent barnið með skipi til Nýja-Sjálands til að forð­ast hneyksli og síðar fengið fjöl­skyld­una heim til Skotlands. Þekkt er að árið 1874 borg­aði drottn­ingin fyrir að þau yrðu flutt til Skotlands og síðar, eftir and­lát John Brown árið 1883, flutti hún þau nær sér í Windsor.

Fjöl­skylda Angelu átti í fórum sínum ara­grúa muna sem tengj­ast Brown og drottn­ing­unni, þar á meðal skart­gripi og hár­lokk. Í ára­tugi höfðu þau grunað að þau væru komin af Viktoríu, en gátu aldrei sannað það. Þegar Dr. Riddell hafði sam­band varð Angela undr­andi.

„Ég trúði fjöl­skyldu­sög­unni, en við höfðum engin sönn­un­ar­gögn. Svo þegar hún sendi mér skila­boðin hugs­aði ég: „Hvur fjár­inn? Getur þetta verið satt“?“

Kenning Riddell styður við ást­ar­sam­band sem stóð í nærri 20 ár, og að Viktoría hafi látið fjar­lægja Brown úr opin­berum sögu­bókum eftir að sonur hennar, Ját­varður VII, tók við krún­unni. Hann lét einnig eyða dag­bókum móður sinnar og fjar­lægja minn­is­varða um John.

Angela segir að hún voni að breska kon­ungs­fjöl­skyldan við­ur­kenni á end­anum sög­una, þó það kunni að taka tíma.

„Ég vil að sagan fái að lifa, að fólk viti að þetta var fal­legt sam­band og annað tæki­færi til ástar fyrir Viktoríu,“ segir hún.

Hún bíður nú eftir nið­ur­stöðum DNA-prófs­ins, sem gæti tekið tíma vegna þess hve langt aftur í ætt­ina þarf að rekja. Hún leggur áherslu á að hún sæk­ist ekki eftir auði:

„Fjármál eru það síð­asta sem mér dettur í hug. Mark­miðið hefur alltaf verið að gefa sög­unni sann­leik­ann sem hún á skilið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco