Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Eins og sakir standa er auð­velt að nýta gervi­greind til að búa til fals­aðar myndir Örar tækni­breyt­ingar á sviði gervi­greindar á síð­ustu árum hafa leitt til sam­fé­lags­breyt­inga sem ekki sér fyrir end­ann á Mynd: Stjórnarráðið

Ráðherra vill koma böndum á djúpfölsun

Örar tækni­breyt­ingar á sviði gervi­greindar á síð­ustu árum hafa leitt til sam­fé­lags­breyt­inga sem ekki sér fyrir end­ann á og til­koma gervi­greindar kallar á breytta lög­gjöf þar sem huga þarf að rétt­indum fólks í staf­rænu umhverfi.

Örar tækni­breyt­ingar á sviði gervi­greindar á síð­ustu árum hafa óneit­an­lega leitt til sam­fé­lags­breyt­inga sem ekki sér fyrir end­ann á, og til­koma gervi­greindar hefur kallað á breytta lög­gjöf, þar sem huga þarf að rétt­indum fólks í staf­rænu umhverfi.

Mörg dæmi er að finna á ver­ald­ar­vefnum þar sem gervi­greind er nýtt til djúp­föls­unar á mynd­skeiðum, og er mark­miðið að láta líta út fyrir að fólk hafi tjáð sig með til­teknum hætti, þótt slík tján­ing hafi aldrei átt sér stað. Þá geta djúp­fals­anir einnig verið not­aðar í blekk­ing­ar­skyni, til dæmis í fjár­hags­legum til­gangi eða til að hafa skoð­ana­mót­andi áhrif á not­endur sam­fé­lags­miðla í aðdrag­anda kosn­inga.

Eins og sakir standa er fremur auð­velt að nýta sér gervi­greind til þess að búa til fals­aðar myndir sem og mynd­bönd og flókið er fyrir ein­stak­linga að leita réttar síns. Þrátt fyrir að frið­helgi einka­lífs njóti stjórn­ar­skrár­verndar og per­sónu­vernd­ar­lög verndi ýmis per­sónu­leg rétt­indi er ekki að finna neitt skil­yrð­is­laust bann við því að nota gervi­greind til að líkja eftir útliti eða rödd fólks í lög­gjöf hér á landi.

Það gæti orðið breyt­ing á þessu því þann 11. júlí síð­ast­lið­inn barst menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra - Loga Ein­ars­syni - erindi nokk­urra félaga­sam­taka, þar sem skorað var á ráð­herra að beita sér fyrir laga­setn­ingu um höf­unda­rétt ein­stak­linga að eigin ásjónu og rödd. Var vísað til áforma dönsku rík­is­stjórn­ar­innar um slíka laga­setn­ingu, sem kynnt voru fyrr í sumar.

Í áður­nef­dri áskorun sam­tak­anna er áhyggjum lýst af því að mis­notkun á per­sónu- og höf­und­ar­ein­kennum, með svoköll­uðum djúp­föls­unum, geti hrein­lega haft veru­legt tjón í för með sér fyrir alla þá ein­stak­linga er verða fyrir slíku - einkum fyrir lista­menn sem margir hafi lifi­brauð af rödd sinni og fram­komu.

Kemur fram í áskor­un­inni að þótt að lög nr. 90/2018, um per­sónu­vernd og vernd per­sónu­upp­lýs­inga, verndi bæði rödd og ásjónu telji áður­nefnd sam­tökin að máls­hraði og máls­með­ferð Per­sónu­verndar sam­ræm­ist ekki þeim alvar­legu afleið­ingum sem djúp­fals­anir geti haft í för með sér. Fyrir slík til­felli verði að vera far­vegur er tryggi skjóta afgreiðslu, auk þess sem nauð­syn­legt sé að fyr­ir­byggja betur að slík mál komi upp, með við­eig­andi við­ur­lögum.

Menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra, Logi Ein­ars­son, tekur heils­hugar undir þær áhyggjur er fram koma í erind­inu.

Að mati Loga er „brýnt að kanna með hvaða hætti styrkja má rétt ein­stak­linga til eigin ímyndar með laga­breyt­ingum, í ljósi þess að dreif­ing fals­aðra mynda og mynd­banda hefur auk­ist til muna vegna fram­þró­unar gervi­greindar.“

Hann segir einnig að það þurfi að „kort­leggja helstu leiðir sem færar eru við slíka laga­setn­ingu, þar á meðal mögu­legar breyt­ingar á höf­unda­lögum, nr. 73/1972, auk ann­arra mögu­legra val­kosta við ein­földun á að gera ein­stak­lingum kleift að leita réttar síns með skjót­ari og skil­virk­ari hætti ef á rétti þeirra er brotið með djúp­fölsun.“

Sem fyrsta skref í þeirri vinnu hefur Logi „óskað eftir því að höf­unda­rétt­ar­nefnd taki málið til athug­unar og taki í kjöl­farið afstöðu til fram­an­greindra álita­efna.“

Einnig mun ráðu­neytið kynna sér frum­varp danskra stjórn­valda um breyt­ingar á höf­und­ar­rétt­ar­lögum þegar það verður lagt „form­lega fram en áætlað er að lögin verði inn­leidd fyrri hluta árs 2026,“ sagði ráð­herra að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ