Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kínverskt gervihunang flæðir inn í Evrópu

Svika­hrappar ger­ast æ kræfari í svikum sínum

Kínverskt gervihunang flæðir inn í Evrópu
Hunang? Nærri helm­ingur inn­flutts hun­angs til Evrópu er svika­vara Mynd: Valentyn Volkov/Shutterstock

Rann­sóknir benda til þess að allt að helm­ingur þess hun­angs sem flutt er inn til Evrópu sé falsað. Svik í hun­angs­fram­leiðslu eru sögð valda verð­falli, veikja stöðu býflugna­rækt­unar og grafa undan verndun býflugna á heims­vísu. Þetta kemur fram í frétt Bænda­blaðs­ins.

Stærstur hluti svikna hun­angs­ins kemur frá Kína, þar sem bæði er selt inn­an­lands og flutt út í gríð­ar­legu magni. Þriðj­ungur alls útflutts hun­angs í heim­inum er kín­verskur, en einnig er bent á Tyrkland og Víetnam sem upp­sprettur svika. Talið er að þetta hun­ang lendi víða í stór­mörk­uðum sem ódýr­ara „blöndu­hun­ang“.

Óhreinindi og eiturefni

Franskur rann­sókn­ar­hópur sem skoð­aði kín­verskt hun­ang í mat­vöru­versl­unum fann í mörgum til­fellum sykur, maís­síróp, rófu­melassa og jafn­vel dýra­leifar, auk efna og eit­ur­efna. Vatns­magn var hátt og í sumum til­vikum hafði hun­angið verið tekið of snemma, áður en það náði fullum þroska.

Svipuð nið­ur­staða fékkst í rann­sóknum í Ástralíu, Banda­ríkj­unum, Kanada, Bret­landi, á Spáni og á Indlandi, sem öll eru stór inn­flutn­ings­lönd kín­versks hun­angs.

Frakkar í fararbroddi

Frakk­land á sér sterka hefð í hun­angs­fram­leiðslu, en neyt­endur þar hafa lengi kvartað yfir röngum upp­runa­merk­ingum. Svik hafa meðal ann­ars falist í því að kín­verskt eða spænskt hun­ang er selt sem franskt, eða að ódýr blandað hun­ang er merkt sem akasíu­hun­ang.

Le Monde greindi frá því að sam­kvæmt úttekt fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins frá 2023 reynd­ist allt að helm­ingur inn­flutts hun­angs til Evrópu falsað. Í um 74% til­fella kín­versks hun­angs og nær öllum tyrk­neskum sýnum komu í ljós vöru­svik.

Vaxandi vandamál

Samkvæmt nýj­ustu tölum er næstum helm­ingur hun­angs sem fluttur er inn til Evrópu utan álf­unnar bland­aður með syk­ur­sírópi úr hrís­grjónum, hveiti eða syk­ur­rófum. Í sýna­töku á 320 lotum reynd­ust 46% fals­aðar. Árið 2015 var hlut­fallið aðeins 14%, sem sýnir að vand­inn hefur stór­auk­ist.

Evrópa er næst­stærsti inn­flytj­andi hun­angs í heim­inum, með um 175 þús­und tonn á ári. Á Íslandi var flutt inn tæp­lega hálft tonn á árunum 2023 til júní 2025, þar af rúm 69 tonn frá Kína, eða um 16%.

Svikaraðferðir sífellt útsmognari

Honey Authenticity Network (HAN) segir að svik­arar hafi þróað tækn­ina hraðar en hefð­bundnar grein­ing­ar­að­ferðir ráði við. Algengt sé að bæta maís­sírópi eða syk­ur­reyr í hun­ang, en nýjar aðferðir gera einnig mögu­legt að fela síróp úr hrís­grjónum og hveiti.

Frjókorn, ensím og amínó­sýrur sem ættu að vera í hun­angi eru jafn­vel bætt í til­búnar blöndur til að villa um fyrir próf­unum. Þar sem tonnið af hreinu hun­angi kostar um 3.000 Banda­ríkja­dali en síróp sex sinnum minna, er svikin afar arð­bær við­skipti.

Aðgerðir Evrópusambandsins

Þrátt fyrir aukið eft­ir­lit hefur ekki tek­ist að stöðva inn­flutn­ing fals­aðs hun­angs. Nýjar reglur tóku gildi í nóv­em­ber 2024 sem kveða á um strang­ara skrán­ingar- og eft­ir­lits­ferli fyrir inn­flutn­ing frá ríkjum utan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Á Íslandi hefur Neyt­enda­sam­tök­unum ekki borist form­legar kvart­anir um svikið hun­ang, en samt er ljóst að vanda­málið er alþjóð­legt og aðgengi­legt ódýrt hun­ang getur sett álag á mark­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco