Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son þing­maður og fyrrum sjón­varps­maður Segir frá því að yngsta dóttir hans hóf háskóla­nám í vik­unni sem leið Mynd: Víkingur

„Samfélagið hafði ekki efni á fjölfötluðu barni“

Sig­mundur Ernir ber saman háskóla­nám dætra sinna

Þing­mað­ur­inn Sig­mundur Ernir Rún­ars­son segir frá því í grein að yngsta dóttir hans hóf háskóla­nám í vik­unni sem leið.

„Það var henni auð­sótt mál“ segir Sig­mundur Ernir og bætir við að ferlið hafi verið ein­falt:

„Hún skráði sig til leiks og var sam­þykkt um hæl. Og fram­tíðin er hennar.“

Hann færir í tal að „við trúum því stundum að sam­fé­lagið sé svona ein­falt. Það hafi allir aðgang að því – og inn um einar og sömu dyrnar sé að fara. Þær standi öllum opnar.“

Svo hefur ekki alltaf verið í fjöl­skyldu Sig­mundar Ernis og segir hann dyrnar hafa verið lok­aðar „þegar elsta dóttirin á heim­il­inu hugð­ist sækja sér fram­halds­nám um og upp úr alda­mót­unum.“

Sig­mundur Ernir nefnir að „inn­ganga í fjöl­braut­ar­skóla var í besta falli hlaðin óvissu fyrir hana og þátt­taka í háskóla­sam­fé­lagi með öllu von­laus. Þar fyrir utan var mögu­leiki á sjálf­stæðri búsetu fjarri öllum raun­veru­leika, og lík­urnar á atvinnu­þátt­töku svo litlar að ekki tók því að kanna þær. Í raun og sann var hún kostn­aður. Opinber fjár­laga­liður. Frum­burður minn. Sem mátti allt eins skera niður með einu penna­striki.“

Hann segir ein­fald­lega að íslenskt sam­fé­lag „afskráði þennan íbúa hennar sem afgangs­stærð sem ekki væru efni til að sinna af sann­girni og mannúð. Þjóð­fé­lagið væri vissu­lega í fullum færum til að rækja mann­rétt­indi, en þau ættu sér enn þá tak­mörk. Altso jafn réttur fólks væri ekki fyrir hendi. Boð­skap­ur­inn gat ekki verið skýr­ari. Sam­fé­lagið hafði ekki efni á fjöl­fötl­uðu barni.“

Það var ekki gert ráð fyrir því að það ætti sér fram­tíð „á borð við jafn­aldra sína. Dóttir mín gekk sum sé inn í Háskóla í vik­unni. Aldrei hvarfl­aði það að mér að það væri kostn­aður.“

„Þegar ég horfði á eftir yngstu dóttur minni ganga hnar­reista inn um ganga Háskóla Íslands á mánu­dag – og mikil ósköp sem ég var stoltur af henni – varð mér vita­skuld hugsað til allra fatl­aðra á hennar reki sem enn þá koma að luktum dyrum, ald­ar­fjórð­ungi frá því elsta systir hennar byrj­aði að upp­lifa álíka úti­lokun.“

Og þá varð Sigmundi Erni jafn­framt hugsað til þess hversu „ótrú­lega þægi­legt og sjálf­sagt það er að vera heil­brigður partur af þessu sam­fé­lagi okkar. Maður bara labbar inn, án umhugs­unar, því sá hinn sami á rétt á því að honum sé sinnt. Annað væri það nú. Hann fær þjón­ustu. Skil­yrð­is­laust.“

Hann spyr hver verði „skila­boðin til hinna. Og þess­ara til­tölu­lega fáu ein­stak­linga sem íslenskt sam­fé­lag hefur ekki efni á á hverju hausti. Því þau skila­boð eru ein­föld. Og þau eru hörð. Það er ekki pláss fyrir ykkur, hvort heldur það varðar lið­veislu, hús­næði við hæfi, atvinnu með stuðn­ingi og nám á enda skóla­kerf­is­ins. Þið eruð kostn­aður! Og því miður er ekki enn þá hægt að mæta honum!“

Sig­mundur Ernir segir að þetta sé „einmitt við­kvæðið enn þann dag í dag þegar ald­ar­fjórð­ungur er lið­inn af nýrri öld. Mála­flokkur fatl­aðs fólks er ekki þjón­usta. Hann er kostn­aður. Og það er hægt skera hann niður eins og nýbakað brauð úr næstu búð. Vita­skuld kjökra ein­hverjir for­eldrar og aðrir aðstand­endur æmta, en taka verður til­lit til þess að rekst­ur­inn er kerf­inu ofviða. Það hljóti menn að skilja“ segir hann og bætir því við að „dóttir mín gekk sumsé inn í Háskóla í vik­unni“ og aldrei hvarfl­aði að honum að það væri kostn­aður.“

Sig­mundur Ernir sá miklu frekar alla fjár­fest­ing­una í því sem för hennar fylgdi.

„Og ég sá líka alla fram­tíð­ina sem bíður hennar. Við sjáum aftur á móti ekki alla mynd­ina. Einhvers staðar út til jaðr­anna eru enn þá ung­menni sem fá ekki svona fram­tíð, heldur for­tíð­ina eina, af ástæðu sem rekja má til þess að sam­fé­lagið sjálft er fatlað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð