Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Móðir Jay Slater fordæmir „sjúkt“ myndband frá manninum sem sá hann síðast á lífi

„Hvað er hann að reyna að gera? Nudda þessu framan í okkur? Af hverju fór hann þangað aftur?“

Móðir Jay Slater fordæmir „sjúkt“ myndband frá manninum sem sá hann síðast á lífi
Skjáskot frá mynd­skeið­inu Rocky hefur fengi yfir sig mikla gagn­rýni vegna mynd­bands­ins Mynd: Trausti Hafsteinsson

Móðir Jay Slater, Debbie Duncan, hefur harð­lega gagn­rýnt nýtt og und­ar­legt mynd­band sem tekið var af Stephen Roccas, einum síð­asta manni sem sá son hennar á lífi. Mynd­bandið var tekið fyrir utan sum­ar­bú­stað­inn þar sem Jay sást síð­ast á lífi og lýsir hún því sem „sjúku“.

Sjá einnig: Lík Jay Slater lík­lega fundið: „Krufning og rétt­ar­rann­sóknir munu fylgja í kjöl­farið“

Mynd­bandið, sem Roccas, betur þekktur sem Rocky, birti á sam­fé­lags­miðlum, hefur vakið mikla reiði. Hann snéri nýlega aftur til Tenerife, þar sem Jay lést í júní 2024, og tók níu sek­úndna mynd­band fyrir utan leigu­húsið í Masca, afskekktu fjalla­svæði á eyj­unni.

MæðgininMóðir Jay er afar ósátt við Rocky

Í mynd­band­inu, þar sem Roccas er í West Ham-treyju, snýr hann mynda­vél­inni að sama fjalla­lands­lagi og hinn 19 ára gamli Jay horfði á rétt áður en hann hvarf. Hann bætti aðeins við text­anum „útsýni“ ásamt tveimur eld-tjáknum og einu fjalla-tjákni. Birt­ingin kemur innan við sex vikum eftir að hann neit­aði að gefa vitn­is­burð við rann­sókn dán­ar­or­sakar Jay, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að um slysa hefði verið að ræða. Nokkrum sinnum var reynt að afhenda honum vitna­stefnu en hann neit­aði að mæta.

Eftir mynd­bands­birt­ing­una hefur Roccas sætt harðri gagn­rýni. Einn not­andi á sam­fé­lags­miðlum skrif­aði: „Hvað ertu að reyna að sanna, Rocky? Þetta er ósmekk­legt,“ en annar bætti við: „Þetta er frekar sjúkt.“

Í sam­tali við fjöl­miðla spurði Debbie Duncan:

„Hvað er hann að reyna að gera? Nudda þessu framan í okkur? Af hverju fór hann þangað aftur? Til hvers? Hvað er hann að reyna að sanna? Ég skil þetta ekki. Ég hefði viljað spyrja hann nokk­urra spurn­inga en get það ekki núna, rann­sókn­inni er lokið. En ég vil virki­lega vita hvers vegna hann fór aftur þangað. Ég vona að fólk fari að spyrja hann spurn­inga. Þetta síð­asta ár hefur verið hel­víti fyrir okkur.“

Síðasta sumar var Jay boðið í Airbnb-húsið af Stephen og Ayub Qassim, 31 árs dæmdum fíkni­efna­sala, og dvaldi þar með þeim. Næsta morgun hvarf Jay, sem var múr­ara­nemi, inn í fjall­lendið. Lík hans fannst tæpum mán­uði síðar í gljúfri þar í grennd eftir mikla leit björg­un­ar­sveita.

Duncan segir nýja mynd­bandið vera nið­ur­lægj­andi fyrir fjöl­skyldu hennar og sýni sama afskekkta lands­lagið þar sem sonur hennar hvarf.

Ólíkt Stephen mætti Ayub Qassim fyrir dóm við rann­sókn­ina í Preston Crown Court. Í tengslum við Stephen sagði dán­ar­dóm­ar­inn Dr. James Adeley:

„Hann gerir þetta af eigin vilja. Þar sem hann er erlendis get ég ekki þvingað hann til að gefa vitn­is­burð.“

Ljóst er að lög­reglan reyndi að afhenda Stephen vitna­stefnu á nokkrum heim­il­is­föngum í Lundúnum og Manchester, en tókst ekki að hafa hendur í hári hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco