Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Með því að vefur RÚV er ekki prófarkalesinn eru brotin lög“

Próf­arka­les­ar­inn Hermann Stef­áns­son er eigi sáttur við að RÚV sé ekki með próf­arka­les­ara á sínum snærum til að yfir­fara villur í greinum er birt­ast á vefnum

„Með því að vefur RÚV er ekki prófarkalesinn eru brotin lög“
Hermann Stef­áns­son er ósáttur Telur RÚV ekki fara eftir lögum Mynd: Víkingur

Hermann Stef­áns­son próf­arka­les­ari ritar grein er ber yfir­skrift­ina „Hristir í stoðum“ RÚV?

Grein hans er opið bréf til útvarps­ráðs og mennta- og barna­mála­ráð­herra og hefur Hermann pistil­inn á þessum orðum:

Flúði menn­ing­arnótt

„Til þess að flýja menn­ing­arnótt, sem mér er ekki mikið um, ók ég áleiðis úr bænum með vini mínum og vini hans. Að vísu var menn­ing­arnóttin ekki jafn slæm og oft áður, skipu­lagið betra, en það borgar sig að reyna að koma sér sem lengst burt frá þessu árlega myrkri um mið­deg­is­bil vegna alls þess umferð­ar­öng­þveitis og allrar þeirrar mann­mergðar sem það hefur í för með sér, fyrir þá sem ekki hugn­ast slíkt almennt.“

Hermann bætir því við að „á leið­inni um og burt frá Reykja­vík dund­uðum við okkur við að búa til götu­heiti úr heitum líf­færa. „Melt­ing­ar­veg“ bar á góma, „Önd­un­ar­vegur“ var nefndur, en eftir því sem ég best veit er orðið „botn­langi“ það eina þar sem þessir tveir flokkar orða skar­ast. Það mætti bæta úr því. Götu­heiti bera sum hver vott um húmor, svo sem í Hvarfa­hverf­inu, en heitið „Skraut­hvörf“ hefur enn ekki litið dags­ins ljós, jafn þarft og það væri, og „Geðhvörf“ eru engin.“

Kyndugt orða­lag

Hermann segir að vinur hans hafi haft á orði að hann hefði rekið sig - einu sinni sem oftar - á kynd­ugt orða­lag á vef RÚV, þar sem gat að líta eft­ir­far­andi setn­ingu í frétt um hol­lensk stjórn­mál:

„Afsögn ráð­herr­ans hristir enn í feysknum stoðum hol­lensku stjórn­ar­innar, sem er starfs­stjórn eftir að harð­línu­flokkur Geerts Wilders dró sig úr stjórn­inni í júní.“

Hermann spyr:

„Hvað merkir þetta? Er hægt að „hrista í stoðum“? Eða er ein­fald­lega verið að rugla saman tveimur orða­til­tækjum, að „hrista upp“ í ein­hverju og þegar „hriktir í stoðum“ ein­hvers? Þekkja frétta­menn­irnir ekki sögn­ina að „hrikta“ og vita ekki hvað hún merkir og hver föst teng­ing hennar við „stoðir“ er?“

Hann færir sjálfan sig inn í grein­ina og efnið og segir að „venju­legur og starfi sínu vax­inn próf­arka­les­ari hefði umsvifa­laust lagt til að setn­ingin yrði svo­felld:

„Með afsögn ráð­herr­ans hriktir enn í feysknum stoðum hol­lensku stjórn­ar­innar, sem er starfs­stjórn eftir að harð­línu­flokkur Geerts Wilders dró sig úr stjórn­inni í júní.“

Og spyr aftur:

„Hver hefði tapað á því?“

Heldur áfram:

„Getur verið að íslensk tunga hefði grætt agn­ar­ögn á því? Getur ekki verið að RÚV sé lögum sam­kvæmt hrein­lega skuld­bundið til að sinna íslenskri tungu?“

Ríkjandi skoð­anir

Hermann pælir í því hvort orð hans séu ekki bara „ótta­legt nöldur í mér og „linnu­laust væl“ um rétt mál­far, eins og Helgi Hrafn Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, komst nýlega að orði?“

Segir einnig þetta:

„Varla stendur Helgi Hrafn í þeirri trú að mál­flutn­ingur af því tagi sem hann ástundar sé nokkur nýlunda eða til marks um rót­tæka og ferska hugsun?“

Færir í tal að þetta sé „ríkj­andi skoðun, að það sé svo hund­leið­in­legt að hlusta á fólk færa það í orð að til sé rétt mál­far og rangt mál­far og setja út á orð­færi mennta­mála­ráð­herra sem segir „mér langar“ og „ég vill“. En hvað er svona leið­in­legt við það?“

Hann spyr „hvaða mál­efna­legu rök standa til þess að áhugi almenn­ings á íslenskri tungu sé væl, fremur en að ástæða sé til að kalla svör þeirra sem verður fóta­skortur á tung­unni í fjöl­miðlum ekk­ert annað en ein­skært hel­vítis sífur?“

Hann talar aftur um Helga Hrafn:

„Nú er Helgi Hrafn fjör­legur og frjór náungi og í ofaná­lag fremur mál­efna­legur og til í að hlusta með opnum huga á hvaða mál­flutn­ing sem er, sama hvaðan hann kemur. Ætti ekki að vera ein­kenn­is­merki fyrir þannig mann að geta tekið því af stóískri ró og mögl­un­ar­laust þótt ein­hver álíti mál­far hans fólks rangt? Er ekki menntun einmitt í því fólgin að geta tekið gagn­rýni? Þarf Helgi Hrafn, eða hver sem er, að kippa sér nokkurn hlut upp við að ein­hver álíti að mál­fari hans eða ann­arra sé ábóta­vant? Varla er umburð­ar­lyndið, eða óum­burð­ar­lynd­isum­burð­ar­leysið, ég man ekki hvort, svo mikið að jafnt gangi yfir allt, ekk­ert sé til sem heiti „rétt“ og „rangt“ í einu eða neinu? Að öll við­horf (ég flutti nýverið úr Viðhorfi 17 yfir í Frá­hvarfa­hverfi) skuli vera svo eins­leit að okkur beri bein­línis skylda til að álíta „eðli­lega mál­þróun“ að það hrein­lega „hristi“ í stoðum alls og á sama tíma sam­þykkja, vænt­an­lega, mögl­un­ar­laust að það sé „eðli­leg þróun“ að fólk í alræð­is­ríkjum úti í heimi ein­fald­lega hverfi stöðugt oftar eða sé sprengt í tætlur í flug­vélum, fremur en að það hrapi fram af svölum eins og áður gerð­ist um stjórn­leys­ingj­ana, þótt það búi ekki við þá ágæt­lega nefndu götu Álf­konu­hvarf?“

Hug­myndin um málótta

Hermann segir að það geti varla verið neinum til meins að vita hvaða hug­mynd­irnar sem við­kom­andi viðrar eru komnar, hver upp­runi þeirra og rætur eru og hver saga, fremur en að sagan gufi spor­laust upp, líkt og álf­kona í hvarfi í Hvarfa­hverfi, og svo skjóti hug­myndir upp koll­inum og lát­ist vera splunku­nýjar:

„Hug­myndin um „málótta“ er komin til ára sinna. Hún felur í sér að við eilíft nöldur og skammir um mál­far verði fólk hrætt við að nota tungu­mál sitt, fyllist svoköll­uðum „málótta“. Hugtakið birt­ist fyrst í íslenskum fjöl­miðli árið 1971 og það var um þær mundir sem hug­myndin um hversu skelfi­legt athæfi það væri að leið­rétta fólk festi rætur. Stefnan, sem var upp­nefnd „Reiða­reks­stefnan“, var eðli­legt and­svar við „mál­hreins­un­ar­stefn­unni“ og hún hefur fyrir margt löngu orðið ríkj­andi. Þarna á árinu 1973 birt­ist í ljóða­bók­inni Kvæði, ákvæði og önnur sér­at­kvæði eftir Regínald Hrossdal úr Syðri Heykvísl eft­ir­far­andi fer­skeytla:

Ég er bara að ljúga

Ég er svo hrylli­lega hræddur við að tala að það hristir í stoðum lífs míns. Á brag mínum bruna- er útsala og mér bregður í kút vegna máls þíns.

Eða nei ann­ars. Það birt­ist ekk­ert slíkt kvæði, ég er bara að ljúga.“

Hermann segir að það sé „ekk­ert til sem heitir „málótti“ lengur, spurn­ing hvort mætti ekki end­ur­vekja ögn af honum og sleppa þeirri leiðu tuggu að það sé í eðli sínu slæmt að leið­rétta mál­far fólks, mál­far barna sinna, mál­far fólks í fjöl­miðlum, mál­far ráð­herra, mál­far allra, fyrst enn tórir áhugi almenn­ings á íslenskri tungu. Það er ekki bara raun­hæf stað­reynd heldur frekar lík­legt og jafn­vel aðeins tíma­spurs­mál hvenær íslenska hverfur af sjón­ar­svið­inu.“

Hugsar, skrifar:

„Hvaða afstöðu við tökum til þess fer eftir heims­mynd­inni. Reiða­rek­spölur 18, Einn af þeim helstu sem hefur með réttu eða röngu verið kall­aður „reiða­reks­maður“ í mál­farsefnum er Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor emer­ítus í íslenskri mál­fræði. Eins og sést á nýlegum pistli hans er þetta þó ekki ein­hlítt. Þegar gengur fram af þeim allra opn­ustu í mál­fars­legum efnum er aug­ljós­lega eitt­hvað að. Athuga­semd Eiríks er skýr og skor­in­orð og lauk­rétt. Það er ólög­legt að birta aug­lýs­ingar á ensku á skjá RÚV. Það á ekki að líð­ast. Og af hverju eru ekki til lög sem skylda eig­endur veit­inga­húsa, kaffi­húsa og kráa til þess að sjá til þess að starfs­fólkið læri nægi­lega mikla íslensku til þess að geta afgreitt á þeirri tungu?“

Erfiðara að læra finnsku en íslensku

Hann nefnir Spán sem dæmi:

„Nú er það ekki svo til dæmis á Spáni að tyrk­neskur þjónn sé til þjón­ustu reiðu­bú­inn á ein­hverju öðru tungu­máli en spænsku. Nei, þar talar allt þjón­ustu­fólk spænsku. Þá kemur gjarnan klisjan um að það sé svo ofboðs­lega erfitt að læra íslensku, hún sé svo snúið tungu­mál. Það er bull. Það er miklu erf­ið­ara að læra finnsku en íslensku.“

Færir í tal að á spænsku séu „ótal mynd­bönd á Youtube þar sem þjónar geta lært að afgreiða á spænsku. Á Íslandi þykir jafn sjálf­sagt og að gefa börnum í skó­inn að það sé kúnn­inn sem skipti yfir ensku, einkum í ljósi þess að Íslend­ingar séu svo góðir í ensku að eig­in­lega sé það til skammar fyrir ensku­mæl­andi þjóðir hversu mjög enska leiki á tungu Íslend­inga og þeir tali tung­una langtum betur en þeir sem hafa ensku að móð­ur­máli. Það er della. Íslend­ingar eru ekk­ert sér­stak­lega góðir í ensku.“

Inn­flytj­endur tala góða íslensku

Hann nefnir líka að það megi „lengi japla á því að eig­in­lega jafn­gildi það ras­isma að vilja fá þjón­ustu á íslensku. Hvílík ekkisens þvæla! Fólk kjamsar á nýyrð­inu „inn­gild­ing“, sem í mínum eyrum hljómar eins og orð yfir íslenskt-þýskt kyn­lífs­leik­fang. En hvaða fjand­ans „inn­gild­ing“ er það að tönnlast á því við fólk sem hefur ekki íslensku að móð­ur­máli að það sé eig­in­lega ekki hægt að læra tungu­málið? Það er vel hægt. Ég hef rætt við fjöl­marga inn­flytj­endur sem tala ágæta íslensku.“

Hann ljær máls á því að „inn­gild­inga­hverfið“ í grennd við Geld­inga­holt gæti haft rauðar götur, bláar götur og gular götur og haft Geld­inga­hnappa að afleggj­urum svo tryggt yrði að fólk villt­ist þar.“

Segir einnig að ef ein­hver hefur „misst þráð­inn er sá sem hér skrifar staddur í bíltúr til þess að reyna að flýja menn­ing­arnótt og var rétt í þessu að þeysa fram­hjá Þarma­hverf­inu, en þar eru ýmis götu­heiti til mik­illar prýði, þótt þeir hefðu getað sleppt nafn­inu á einum botn­lang­anum eða blind­göt­unni, sem ekki er við hæfi að nefna hér.“

Íslenska tungan

Hann segir að við séum að ræða „ýmis­legt um íslenska tungu. Auðvitað er ekki hægt að próf­arka­lesa útvarp, þar ríkir tal­málið, og ekki heldur sjón­varp, nema þegar les­inn er upp rit­aður texti. En svo vill til að eitt form RÚV er nákvæm­lega eins og dag­blað, að öðru leyti en því að ekki er prentað á pappír heldur birt á net­inu. Er sá hluti próf­arka­les­inn? Nei.“

„Það getur verið vandi að aka“ segir Hermann og bætir því við að „vand­inn minnkar ekki þegar ég og ferða­fé­lag­arnir dælum upp úr okkur götu­heitum sem eru ekki til og það eru áhöld um hvort nokkuð skáni þótt maður stilli leið­sögu­tækið á íslensku. Sú sem þar hefur orðið talar nefni­lega um „afleggjara“ þegar rétt­ara væri að tala um „afrein“ og þegar hún vill að maður beygi talar hún um að „byggja til hægri“ og „byggja til vinstri“. Að vísu væri ekki van­þörf á allri þess­ari bygg­ing­ar­starf­semi en maður veltir fyrir sér hvort ein­hver skilji hvað hún á við. Blokk­irnar skjót­ast upp og allar þessar götur sem rísa sam­hliða akstr­inum kalla á ný heiti. Það er svo sem ekki vand­inn. Frá Skjá­hverf­inu yfir í Arka­hverfi Í Skjáa­hverf­inu, rétt við Útvarps­ráð­hús­torgið, kennir margra skjáa. Þar er meðal ann­ars Skjá­sætið, maður situr í því þegar maður les af skjá.“

Bíl­ferðin langa

Og bíl­ferð­inni er ekki lokið:

„Þessi bíl­ferð mun taka óra­tíma, ég er ekki einu sinni kom­inn út fyrir borg­ar­mörkin eftir þrjá klukku­tíma“ og nefnir einnig að hann haldi að hann sjálfur „hafi lært mest í íslensku af próf­arka­lesurum. Þeir eru að vísu mis­jafnir. Sumir eru sletti­rekur og skilja ekki að þeir eru í þjón­ustu­hlut­verki, ekki ein­ræð­is­herrar tungu­máls­ins sem þiggja vald sitt frá æðri mátt­ar­völdum, né heldur áhrifa­valdar sem erfa glæsi­leika sinn og hlut­verk sitt frá gömlum sögum um álfa. Ég gæti nefnt nokkra fram­úr­skar­andi próf­arka­les­ara. Einn þeirra sat þarna með mér í bílnum. Ég er sjálfur próf­arka­les­ari. Hver ein­asta aug­lýs­inga­stofa með sjálfs­virð­ingu er með próf­arka­les­ara. Öll bóka­for­lög nota próf­arka­les­ara. Allar helstu stofn­anir lands­ins eru með próf­arka­les­ara. Hver ein­asta ræða á Alþingi er próf­arka­lesin marg­sinnis. Það er ekki þar með sagt að próf­arka­les­arar séu hálf­guðir sem aldrei geri villur sjálfir og hafi alltaf á réttu að standa. Þeir eru mennskir, vinna við það sem mætti kalla afskipta­semi, getur orðið á í mess­unni eins og öllum öðrum, því allir gera villur, og þeir bestu hreykja sér ekki af störfum sínum heldur vilja vera ósýni­legir.“

Morg­un­blaðið er próf­arka­lesið

Hann minn­ist á að prent­uðum dag­blöðum hefur farið fækk­andi á „Íslandi, eins og víðar. Þetta væri eðli­leg þróun ef það vinnu­lag sem tíðkast á prent­miðlum erfð­ist yfir á netið. Þannig er Morg­un­blaðið próf­arka­lesið. Nú má fólk skatt­yrð­ast út í Morg­un­blaðið að vild mín vegna en stað­reyndin er óneit­an­lega sú að miðað við vef RÚV er staðan í próf­arka­lestri tíu-núll fyrir Morg­un­blað­inu.“

Spyr enn á ný:

„Af hverju ætli þetta sé?“

Spyr & svarar:

„Af hverju „hristir í stoðum“ RÚV? Hugs­an­lega er ástæðan sú að vefur RÚV á engar rætur í prent­uðu máli, hann er vef­út­gáfa miðla sem að miklu leyti eru tal­mál en ekki rit­mál. Enda þótt það sé óvenju spaugi­leg villa að það „hristi“ svona í stoðum RÚV er langt frá því að hún sé eins­dæmi. Suma daga má lesa allar fréttir á RÚV-vefnum og hver ein­asta þeirra er með villum, sumar með mörgum. Ég hirði ekki um þann sparða­tín­ing sem þyrfti til að sanna mál mitt, það hafa aðrir marg­sinnis gert og sömu­leiðis ég sjálfur. Vill­urnar á vef RÚV eru slíkur mýgrútur að engu tali tekur. Eitt sinn spurð­ist ég fyrir og var sagt með nokkrum þjósti að vef­ur­inn væri víst próf­arka­les­inn, sem breytt­ist síðan yfir í að hann væri próf­arka­les­inn eftir á.“

Spyr á nýjan leik:

„Til hvers?“

Og bætir við:

„Er það ekki svo­lítið eins og að fara í reið­túr og söðla svo hrossið á eftir? Gæða sér á lamba­hrygg og slátra því næst lamb­inu? Það blasir við að vef­ur­inn er ekki próf­arka­les­inn fyrir fimm aura. Sú stað­reynd er ein­fald­lega smán­ar­leg. Eins og segir í mál­stefnu RÚV, sem Eiríkur Rögn­valds­son getur um í pistl­inum sem vísað er til hér að ofan, hefur RÚV „ríkar skyldur við íslenskt mál og því ber, sam­kvæmt lögum um Rík­is­út­varpið nr. 23/2013, að leggja rækt við íslenska tungu.“ Með því að vefur RÚV er ekki próf­arka­les­inn eru brotin lög. Það hriktir í raun og veru í sjálfum stoðum RÚV.“

Nýyrði um kynsegin fólk

Hann talar (skrifar) um að eitt það lúa­leg­asta sem fyrir ber og notað er til „varnar ríkj­andi ástandi er að beita fyrir sig kynjapóli­tískum atriðum íslensk­unnar og segja þá sem and­mæla slæ­legri frammi­stöðu RÚV í mál­efnum íslensk­unnar bara ekki vilja nota kyn­hlut­laust orð­færi á borð við „öll vel­komin“, nýyrði um kynsegin fólk og þvíum­líkt. Þannig er allri hugsun um íslenska tungu þröngvað inn í litla kompu í Skot­grafa­hverf­inu.“

Segir einnig að „álita­mál af þessum toga eru örfá pró­sent af þeim villu­kræs­ingum sem RÚV ber á borð á vef sínum. Lítið þýðir að bera umkvart­anir og nöldur undir mál­fars­ráðu­naut RÚV, því í þeirri sömu mál­stefnu og getið er um hér að ofan segir að mál­fars­ráðu­nautur fari „með aðgeng­is­mál í miðlum RÚV“. Nú hef ég að vísu ekki minnstu hug­mynd um hvað því orði er ætla að merkja, ef nokkuð, en í öllu falli er það vel að ein­hver sinni „aðgengi“ og jafn­vel „aðgeng­is­málum“ við Efsta­leiti. Alltof víða eru tröppur ófærar öðrum en þeim sem geta notað tröppur, og í öllu falli er ljóst að mál­fars­ráðu­nautur sér ekki um próf­arka­lestur.“

Segir líka að það komi „kjarna máls ekk­ert við þótt margt frjótt ger­ist á kynjapóli­tísku sviði tungu­máls­ins. Eitt af þeim orðum sem þaðan eru sprottin er hug­takið „regn­boga­þvottur“. Það er góð og gild þýð­ing á ensku orði um þá til­hneig­ingu gjarnan vafa­samra fyr­ir­tækja að þvo sig upp úr samúð með rétt­inda­bar­áttu minni­hluta­hópa, gagn­gert í því skyni að tor­velda gagn­rýni á fram­ferði fyr­ir­tæk­is­ins almennt, því ekk­ert vott­orð er til um hvort innan fyr­ir­tækja grass­eri ójafn­rétti, hatur og mis­munun. Ódýrari þvott er ekki hægt að fá því regn­boga­þvottur er ókeypis og fyr­ir­bærið getur verið með öllu inni­stæðu­laust.“

Mál­stefna RÚV

Hermann segir að mál­stefna RÚV beri „merki um ákveðna bjart­sýni — eða eigum við að segja oftrú? — á að þeim sem er í nöp við minni­hluta­hópa sé ger­sam­lega fyr­ir­munað að finna upp ný orð sem tjái hatur þeirra á sam­kyn­hneigðum, eða hverjum sem vera vill. Líklega stendur mál­fars­ráðu­nautur í þeirri trú að ef hún útrými orðum á borð við „homma­tittur“ sé málið leyst. Svo er ekki.“

Hann segir einnig að það séu engin tak­mörk fyrir því hvaða orð megi „við­hafa til að tjá hug sinn og það eina sem mál­fars­stefna af þessu tagi áorkar er nýsköpun í tungu­mál­inu úr hinni átt­inni. „Hann býr í fokkíng Kyn­hverf­inu,“ getur fólk allt eins sagt, eða: „Hann er hel­vítis Kyn­hverf­ingur“, og fært sér þannig í nyt gamla og mislukk­aða til­raun til að færa homma undir hlut­laust orð með því horfna nýyrði „kyn­hverfur“. „Kyn­hverfir“ náði aldrei flugi sem orð, hommar ákváðu að nota hið niðr­andi orð „hommi“ og breyta merk­ingu þess. Sjaldan hefur betri ákvörðun verið tekin.“

Og bætir því við að „ekki aðeins er slík málp­óli­tísk stefna vita von­laus, hún er algert auka­at­riði í villu­bunk­anum sem snýst um venju­lega og gam­al­dags nýlendu­stefnu stórra tungu­mála. „Á horni Bayswater Road og Lækj­ar­götu“ Lang­flestar vill­urnar eru af einni og sömu rót­inni sprottnar: Innrás eins tungu­mál inn í annað. Það er að segja inn­rás ensk­unnar í íslensk­una. Þetta er ekki nýtt og ekki sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri, stór tungu­mál hafa alla tíð ráð­ist á önnur smærri og oft­sinnis útrýmt þeim. Þau und­an­brögð að heim­færa allt upp á málp­óli­tík eru hjá­rænu­leg því það er eng­inn stjórn­mála­flokkur til á Íslandi sem er and­vígur því að reynt sé að sporna við áhrifum ensku á íslensku. Við ambögum, inn­slátt­ar­villum, enskri setn­ing­ar­gerð, bein­þýð­ingum á enskum orða­til­tækjum, mis­skiln­ingi á íslensku máli, kunn­áttu­leysi sem stafar ekki af neinu nema skorti á ein­stak­lingum sem geta frætt og upp­lýst. Það sem ger­ist þegar próf­arka­les­ari starfar hjá miðli er að þekk­ing kyn­slóð­anna erf­ist. Ef eng­inn próf­arka­les­ari starfar hjá miðli er engin von til þess að ungir frétta­menn læri eitt eða neitt.“ og segir líka að þar með „lærir íslenska þjóðin ekki neitt og fyrr en varir er farið að „hrista“ í stoðum íslenskrar tungu. Er það ekki allt í lagi? Jú, svo sem, íslensk tunga deyr út fyrr eða síðar, en valið stendur um að tapa þeirri orr­ustu með reisn eða alls­endis án nokk­urrar tignar. Þeir sem hafa yfir­leitt nokk­urt gild­is­mat vilja halda reisn sinni fram að bana­stund­inni.“

Ferða­sagan sem ger­ist í bíl

Svo man Hermann að hann var víst í „miðri ferða­sögu. Hún hófst á því að það tók mig einn og hálfan klukku­tíma að kom­ast úr Laug­ar­dalnum vestur í bæ vegna umferð­ar­teppu hinna menn­ing­ar­sinn­uðu. Síðan þá gerðum við víð­reist um byggð og óbyggð hverfi Reykja­víkur en stefnan var tekin austur yfir Fjall. Senni­lega hef ég ekki vitnað í ljóð­línur Braga Ólafs­sonar um horn Bayswater Road og Lækj­ar­götu, enda er hæpið að hún hafi nokkuð með íslenska mál­stefnu að gera, það er engin tungu­mála­leg vand­læt­ing í þess­ari ljóð­línu heldur aðeins hið óvænta sjón­ar­horn á til­ver­una sem ein­kennir góð ljóð. Enda er ég sjálfur heldur eng­inn eng­ill, stundum gleður mig hrein­lega að heyra ensku­slettur. Íslensk tunga er lif­andi og verður ekki varð­veitt í forma­líni. Það merkir ekki að rétt­ast af öllu sé að hafa enga stefnu og enga skoðun, því stefnu­leysi er líka stefna. Stefnan er sett rak­leiðis út í skurð.“

Svo. Lauk. Bíl­ferð­inni. Ekki. Á. Vegi. Skurður. Varð. Á. Vegi.

„Það var einmitt úti í skurði sem við end­uðum bíl­ferð­ina, ekki lengur akandi. Af ýmsum ástæðum varð mér villu­gjarnt, og ég ók langt fram­hjá þeim við­burði sem við höfðum sett kúr­s­inn á, kannski vegna þess að ég hafði á til­finn­ing­unni að þar yrði síst minna fjöl­menni en á menn­ing­arnótt í Reykja­vík og þótt ég sé kannski „marg­menni“, eins og Þórarinn Eldjárn orð­aði ein­hverju sinni það ástand að vera margir menn í senn, er ég lítt gef­inn fyrir fjöl­menni. Í hug­anum setti ég saman kröfu­gerð í tveimur liðum: Und­ir­rit­aður krefst þess að útvarps­ráð sjái til þess að vefur RÚV verði próf­arka­les­inn. Und­ir­rit­aður krefst þess að barna- og mennta­mála­ráð­herra setji lög um að öllum þjón­ustu­stöðvum, svo sem veit­inga­húsum og kaffi­húsum, verði gert skylt að sjá til þess að þjón­ustu­að­ilar fái full­nægj­andi nám í íslensku, á eigin kostnað en með full­tingi stjórn­valda.“

Hermann segir þetta ekki galið heldur sjálf­sagt:

„Af gúgli sé ég að í útvarps­ráði situr Stefán Jón Hafstein og síð­ast þegar ég vissi til var hann mjög vel máli far­inn, með reynslu af fjöl­miðlum og áhuga­samur um íslenska tungu“ og um barna- og mennta­mála­ráð­herra, Guðmund Inga Krist­munds­son, er „eft­ir­far­andi að segja:

Ráðherra pantar kaffi

Ráð­herr­anum er senni­lega fyr­ir­munað að panta sér kaffi á íslensku kaffi­húsi því hann talar ekki ensku, eins og fram hefur komið.“

Og segir að aug­ljós­lega séu það „hags­munir hans að geta pantað kaffi á íslensku, þótt íslensku­kunn­áttan sé kannski ekki upp á marga fiska. Þetta eru skil­yrð­is­lausar kröfur mínar. Ég krefst umsvifa­lausra við­bragða frá útvarps­ráði og mennta­mála­ráð­herra. Ef engin verða er aldrei að vita hverju ég tek upp á. Ég er ekki yfir hryðju­verk haf­inn og ekki heldur eru mót­mæli, þrungin mögu­leik­anum á ofbeldi, neðan minnar virð­ingar.“

Hermann nefnir að „þótt það kunni að koma íslenskum smá­borg­urum á óvart eru til þjóðir og þjóð­ar­brot, land­fræði­lega örskammt frá Íslandi, þar sem tungu­málið þykir þess vert að efnt sé til mót­mæla til að and­æfa aðgerðum sem gera tung­unni lægra undir höfði. Ég hef búið á þannig land­svæði á Spáni. Og nei, þetta eru ekki þjóð­ern­is­fas­istar heldur ósköp venju­legt fólk, sumt hvert meira til vinstri en hægri í stjórn­málum og annað knúið áfram af nokkru sem kalla má ást á tungu og upp­runa, ef slíkt inni­heldur ekki of miklar fín­essur til þess að nefndir smá­borg­arar botni neitt í því. Það er samt ekki flókið.“

Heldur áfram:

Hægð­ar­leikur að leið­rétta verstu ambög­urnar

„Fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag er aldrei án árekstra og þegar diktuð eru upp orð eins og „inn­gild­ing“ merkir það ekki neitt. Það fyr­ir­finn­ast nokkrir próf­arka­les­arar á Íslandi sem yrði ekki skota­skuld úr því að próf­arka­lesa vef RÚV jafn­óðum. Um leið og fréttir birt­ast má hæg­lega hafa for­birt­ingu og einum manni — einu stöðu­gildi — væri hægð­ar­leikur að leið­rétta verstu ambög­urnar, frétta­menn eru ekki of góðir til að renna yfir það fyrir end­an­lega birt­ingu og allir myndu græða á þessu.“

Hann segir að einn þess­ara „próf­arka­les­ara var á ferð með mér austur yfir Fjall. Að vísu end­aði ferðin að heita má ofan í skurði. Sam­ferða­maður okkar sat þar fastur, ég hafði rokið áfram og skilið þá tvo eftir en það var nokkrum vand­kvæðum bundið að kom­ast yfir skurð­inn, eða upp úr honum, þótt ég sjálfur hefði rokið áfram og skilið sam­ferða­menn mína eftir fasta í skurði. Að lokum var skurð­ur­inn sigr­aður og upp úr honum kom­ist. Þetta redd­að­ist allt. Það gerir það alltaf. Ekki síst ef vilji er til. En það dugir ekki að fara að eins og útvarps­ráð og mennta­mála­ráð­herra og aðhaf­ast nákvæm­lega ekki neitt. Íslenskan situr föst í skurði. Það „hristir í stoðum“ RÚV. Hvað á að gera í því?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu