Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þorbjörg segir kvartanir Snorra út í hött

„Orð hafa áhrif, hvort sem maður vill það eða ekki, og það skiptir máli að velja þau vel,“

Þorbjörg segir kvartanir Snorra út í hött
Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins Hefur verið í bobba síðan hann kom fram í Kast­ljósi. Mynd: Víkingur

Þorbjörg Þor­valds­dóttir, verk­efna­stýra Sam­tak­anna ‘78, hefur tjáð sig í fyrsta skipti eftir sam­skipti sín við Snorra Másson, þing­mann Mið­flokks­ins, í alræmdum Kast­ljós­ar­þætti um mál­efnis trans fólks. Telja sumir að Snorri hafi verið dóna­legur og afneitað til­vist trans fólks meðan aðrir segja að Snorri hafi ekk­ert gert nema að segja sann­leik­ann.

„Stór hluti af mínu starfi hjá Sam­tök­unum ‘78 hefur verið að þjálfa fólk í því að svara for­dóma­fullri umræðu með kær­leika og trú á fólki,“ skrifar Þorbjörg á Facebook.

„Mark­miðið er skaða­minnkun: að for­dóma­full við­horf, afmennskun og fyr­ir­litn­ing nái ekki yfir­hönd­inni í sam­fé­lags­um­ræð­unni. Annar hluti hefur verið að halda utan um til­kynn­ingar um hat­urs­glæpi og eiga sam­skipti við lög­reglu um þær skrán­ingar og örygg­is­mál almennt. Ég hef einnig frá árinu 2018 tekið virkan þátt í (og um tíma leitt) rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks á Íslandi. Ég er sér­fræð­ingur í mál­efnum hinsegin fólks og þá sér­stak­lega í sam­hengi orð­ræðu og ofbeldis. Ég þekki vel birt­ing­ar­myndir og afleið­ingar auk­inna for­dóma, er í sam­skiptum við þolendur, held utan um töl­fræði, les skýrslur og rann­sóknir og fylgist náið með þróun heims­mála.“

Hún segir Mið­flokks­menn nú reyna að sann­færa almenn­ing að flokk­ur­inn verði fyrir þöggun en þeir hafi lýst þessu yfir í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum.Þorbjörg segir hins vegar að tján­ing­ar­frelsi þeirra hafi ekki verið skert en vilji frekar að þeim sé ekki and­mælt þegar þeir fara með stað­reynd­ar­villur.

„Mér hefur aldrei verið sýnd jafn mikil van­virð­ing sem þátt­tak­anda í opin­berri umræðu og á mánu­dag­inn. Það, að Snorri Másson vogi sér síðan að kvarta yfir skoð­ana­kúgun og þöggun í kjöl­farið á því að hafa bein­línis reynt að þagga niður í mér með yfir­gangi, er út í hött,“ heldur hún áfram.

Bendir hún í kjöl­farið á nokkur dæmi um það bakslag sem mynd­ast hefur í umræðum um hinsegin fólk og þá sér­stak­lega trans fólk.

„Fólkið sem sakar Samtökin ‘78 um að beita börn ofbeldi, eyði­leggja sam­fé­lagið, um að við stundum inn­ræt­ingu, úrkynjun, satanískan áróður og talar jafn­vel um að við séum rétt­dræp er sama fólkið og fagnar núna mál­flutn­ingi Snorra Mássonar. Hann ber ekki ábyrgð á þeirra orðum eða gjörðum, en ein­hverra hluta vegna telja þau hann banda­mann sinn. Ég hvet hann, eins og ég reyndar gerði eftir útsend­ing­una á mánu­dag­inn, til þess að velta því fyrir sér hvers vegna,“ skrifar verk­efna­stýran.

Hún seg­ist þekkja áhrif ofbeld­is­hót­ana af eigin reynslu og hefur samúð með Snorra að því leyti. “Við sem vinnum að hinsegin rétt­indum, kven­rétt­indum og rétt­indum flótta­fólks þekkjum þetta sér­stak­lega vel. Margt stjórn­mála­fólk þekkir þetta, lög­reglu­fólk, blaða­menn. Það er hrein­lega ömur­legt að finn­ast öryggi sínu ógnað og ég held að ekk­ert okkar vilji hafa sam­fé­lagið svona.“

Þá telur hún að mörgum sé brugðið að opin­ber umræða geti haft alvöru afleið­ingar. „Ég vona að þetta sama fólk sýni í kjöl­farið hinsegin fólki, sem fær svona hót­anir dag­lega eða verður fyrir til­efn­is­lausri áreitni og ofbeldi, einnig skiln­ing og kalli eftir still­ingu í opin­berri umræðu í okkar garð.

Orð hafa áhrif, hvort sem maður vill það eða ekki, og það skiptir máli að velja þau vel,“ skrifar Þorbjörg að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ