Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Biskup Þjóðkirkjunnar setur Kastljósþáttinn í samhengi við sjálfsvíg“

Sigríður Á. Andersen tjáir sig um hið fræga við­tal þar sem Snorri Másson lét vaða á súðum og vakti þjóð­ar­at­hygli

„Biskup Þjóðkirkjunnar setur Kastljósþáttinn í samhengi við sjálfsvíg“
Sigríður Á Andersen Líkaði vel mál­flutn­ingur Snorra Mássonar Mynd: Víkingur

Mið­flokks­konan Sigríður Á. Andersen tjáir sig um hið fræga við­tal þar sem Snorri Másson lét vaða á súðum og vakti þjóð­ar­at­hygli.

Sigríður ver mál­stað Snorra og spyr hvort það sé ekki í lagi að viðra skoð­anir sínar, sama hverjar þær eru:

„Snorri Másson þing­maður átti orða­stað við verk­efna­stjóra Sam­tak­anna 78, Þor­björgu Þor­valds­dóttur, í Kast­ljósi í vik­unni“ segir Sigríður og bætir því við að til­efnið var „færsla hennar um mál­flutn­ing Snorra um hinsegin mál­efni og hið svo­kall­aða bakslag sem sumir telja að orðið hafi á Íslandi í þessum málum.“

Sigríður telur að bæði Snorri og Þorbjörg hafi komið sjón­ar­miðum sínum með sóma á fram­færi, „að því marki sem þáttur sem þessi leyfir. Það sem eftir situr er að Snorri og Þorbjörg eru ósam­mála um til­tekna nálgun í umræðu um þessi mál. Snorri lýsti þeirri skoðun sinni að umræða um fjölda kynja væri hluti af til­tek­inni hug­mynda­fræði, án þess að gef­ast tæki­færi til að skýra það nánar. Þorbjörg lýsti þeirri skoðun sinni að engin hug­mynda­fræði væri á ferð í umræð­unni heldur bara mann­rétt­indi, án þess að gef­ast tæki­færi til þess að skýra það nánar.“

Bætir við:

„Kannski eru þau ósam­mála um hversu mörg kynin „eru“. Kannski eru þau það ekki. Það kom ekki fram. Bæði voru sam­mála um að allir hefðu rétt til að lifa sínu lífi eins og þeir kjósa. Bæði voru sam­mála um að hatur og ofbeldi í garð náung­ans væri ófor­svar­an­legt. Þótt Snorri hafi einn lýst því skil­merki­lega yfir að hann hataði engan þá leyfi ég mér að ganga út frá því að Þorbjörg hati ekki heldur nokkurn mann.“

Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins

Hún spyr hvernig það megi vera að hávær hópur nýti sér nú sam­fé­lags­miðl­ana og frétta­tíma RÚV til þess að vega að Snorra fyrir ákveðin ummæli og hat­urs­fulla orð­ræðu.

„Og „gam­al­dags“ hefur líka verið slengt fram sem hnjóðs­yrði. Talsmenn í mála­flokknum og áhuga­menn hafa enga þol­in­mæði fyrir „umræð­unni“. Það er ekk­ert nýtt. Meira að segja gagn­rýni á opin­berar fjár­veit­ingar í mála­flokk­inn hefur verið lýst sem „hatur“.“

Sigríður færir í tal að „nokkrum und­ar­legum spilum var spilað út í gær. Biskup Þjóð­kirkj­unnar setur Kast­ljós­þátt­inn í sam­hengi við sjálfs­víg og reynir þannig að varpa ábyrgð á þátta­stjórn­anda og Snorra í þeim efnum. Kristi­legur kær­leikur í nýrri mynd úr þeim ranni. Land­læknir er dreg­inn á flot í frétta­tíma RÚV til þess að renna stoðum undir aðför­ina að Snorra. Úr var und­ar­leg sam­suða yfir­lýs­inga sem engu skil­aði til mál­efna­legrar umræðu en vöktu upp því mun fleiri spurn­ingar hjá þeim sem gætu hafa fengið áhuga á þessum mála­flokki eftir við­talið við land­lækni.“

Sigríður veltir því fyrir sér hvað land­læknir telji kynin vera mörg.

Spyr:

„Hvað segja sann­reynd gögn um hitt og þetta í þessum efnum? Er þekk­ing sér­fræð­inga óbrigðul? Er ekki krafa vís­ind­anna að spyrja spurn­inga, ræða málin? Ætlar land­læknir að svara þessum spurn­ingum? Og svo voru það stjórn­mála­menn­irnir sem hafa átt betri daga og ættu að mínu mati að hugsa sinn gang. Hanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra vísar til þing­manns­ins sem „gelt­andi kjána“. Einar Þor­steins­son borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins leggur fram ályktun gegn Snorra Mássyni þing­manni, í borg­ar­stjórn! Þegar fram­an­greint er skoðað af yfir­vegun þá kemst maður ekki hjá því að velta því fyrir sér hverjir þeir eru raun­veru­lega sem hafa horn í síðu til­tek­inna hópa.“

Og hún nefnir einnig að „um þennan mála­flokk almennt hef ég hins vegar sagt og tel ekki eftir mér að end­ur­taka að Ísland er best í heimi hvernig sem á þessi mál er litið. Ísland er ítrekað meðal fremstu þjóða hvað varðar rétt­indi trans­fólks og sam­kyn­hneigðra.

Guðrún Karls Helgu­dóttir, biskup Íslands

Fjölmörg „skor­kort“ sýna fram á það. Íslend­ingar eru í 1. sæti á Tgue-rétt­inda­korti trans­fólks í Evrópu og í 3. sæti á Regn­boga­korti ILGA Europe, rétt­inda­sam­taka hinsegin fólks í Evrópu og Mið-Asíu.

Þá voru lög um kyn­rænt sjálf­ræði sam­þykkt árið 2019.“

Sigríður efast um að mörg lönd búi yfir slíkri lög­gjöf og finnst henni allt tal um bakslag vera í besta falli ósann­gjarnt.

„Það hefur líka komið fram í könnun Fjöl­miðla­nefndar að andúð í garð sam­kyn­hneigðra (1,9%) eða trans­fólks (5,6%) er lítil hér á landi. Að minnsta kosti í sam­an­burði við andúð fólks á Alþing­is­mönnum (9,8%), íhalds­mönnum (15,8%), stuðn­ings­mönnum Mið­flokks­ins (25%), lofts­lagsaf­neit­un­ar­sinnum (52,3%) eða and­stæð­ingum bólu­setn­inga sem er sá hópur sem mestri andúð sætir (58%).“

Sigríður færir í tal að lokum að „fjöl­miðla­nefnd neit­aði að upp­lýsa um hvaða hópar það eru (t.d. kjós­endur hvaða flokka) sem helst eru fullir af svona mik­illi andúð. Hverjir skyldu það nú vera? Og hví þessi óskap­lega andúð í garð sjón­ar­miða, skoð­ana?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð