Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Segir komubann tveggja ráðherra Ísraels í takt við aðgerðir annarra þjóða

Benjamin Net­anyahu ekki settur í slíkt bann

Segir komubann tveggja ráðherra Ísraels í takt við aðgerðir annarra þjóða
Þor­gerður Katrín og Kristrún Frá blaða­manna­fund­inum í morgun Mynd: Víkingur

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra segir að ákvörðun hennar um að setja tvo ráð­herra Ísra­els­stjórnar í komu­bann til Íslands, hafa verið tekin með aðgerðir ann­arra þjóða í huga. Segir hún ekki enn búið að leggj­ast yfir það hvernig hægt verði að fram­fylgja banni á ferða­lagi ráð­herr­anna tveggja um íslenska loft­helgi.

Rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur hélt blaða­manna­fund í morgun þar sem farið var yfir þing­mála­skrá kom­andi þing­vetrar.

Blaða­maður Mannlífs spurði Þorgerði Katrínu út í þær refsi­að­gerðir sem hún ætlar að leggj­ast í gagn­vart Ísrael vegna þjóð­ar­morðs­ins á Gaza og fram­gangi yfir­valda á Vest­ur­bakk­anum. Meðal þess sem utan­rík­is­ráð­herr­ann kynnti sem aðgerð er að setja tvo ráð­herra rík­is­stjórnar Benja­mins Net­anyahu, þá Itamar Ben-Gvir, þjóðar­ör­ygg­is­ráð­herra, og Bezalel Smotrich, fjár­mála­ráð­herra Ísraels, í komu­bann til Íslands. Þá verður þeim ekki leyft að fljúga í loft­helgi Íslands.

Aðspurð hvers vegna ekki standi til að Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels verði einnig settur í komu­bann til Íslands, sagð­ist Þor­gerður Katrín hafa haft aðgerðir ann­arra þjóða að leið­ar­ljósi en bæði Spánn og Noregur hafa lagt komu­bann á þá Ben-Gvis og Smotrich.

„Varðandi þessa tvo ráð­herra sem við höfum sett í far­bann eða munum setja í far­bann, þá byggir það meðal ann­ars á aðgerðum ann­arra þjóða,“ sagði Þor­gerður Katrín og hélt áfram. „Og ég hef alveg verið skýr með það, við erum ekki að fara ein­hverjar ótroðnar slóðir í þessu. Við erum ekki að taka upp ein­hliða aðgerðir , alla vega ekki að þessu sinni, þegar kemur að þessu stóral­var­lega máli. Þannig að við erum að byggja meðal ann­ars á reynslu Norð­manna, sem hafa sett þá í far­bann sam­kvæmt útlend­inga­lögum.“

Mannlíf spurði einnig út í loft­helg­ina og hvernig yfir­völd hér á landi hyggð­ust fram­fylgja banni á ferða­lögum ráð­herr­anna tveggja í loft­helgi lands­ins. Þor­gerður Katrín svar­aði:

„Varðandi loft­helg­ina, það er eitt­hvað sem er að koma til álita núna og skoð­unar og ég get ekki sagt meira um það en við sjáum það hvað Spán­verjar meðal ann­ars eru að gera, bæði hafn­bann og loft­ferðir en það teng­ist líka hvar Spánn er ein­fald­lega stað­settur í heims­mynd­inni í Evrópu. En við tókum ákveðin skref í gær, við erum vak­andi og það þarf að gera allt til þess að tryggja það að það kom­ist á vopna­hlé fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs og á Gazasvæðinu um leið og við setjum fram skýra kröfu um það að gíslar verði settir lausir og Hamas komi ekki nálægt upp­bygg­ingu Palest­ínu.“

Þess má gera að Alþjóð­legi saka­mála­dóm­stóll­inn í Haag, ICC, gaf út í nóv­em­ber 2024, hand­töku­skipun á hendur Benjamin Net­anyahu for­sæt­is­ráð­herra Ísraels og Yoav Gallant, fyrrum varn­ar­mála­ráð­herra, vegna stríðs­glæpa sem og þriggja Hamas-liða.

Þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Íslands, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir sagði í við­tali við RÚV að íslensk stjórn­völd virði hand­töku­skipun ICC á hendur Net­anyahu og Gallant.

„Íslensk stjórn­völd virða sjálf­stæði og ákvarð­anir Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stóls­ins. Við leggjum traust okkar á að alþjóð­legir dóm­stólar fram­fylgi alþjóða­lögum og virðum nið­ur­stöður dóm­stóls­ins óháð því hvaða ein­stak­lingar eiga í hlut,“ sagði Þórdís Kolbrún í sam­tali við RÚV á sínum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum