Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fimm úr tálbeituhópi dæmdir fyrir alvarlega líkamsárás

Einn þeirra var einnig dæmdur fyrir barnaklám

Fimm úr tálbeituhópi dæmdir fyrir alvarlega líkamsárás
Tveir ofbeld­is­mann­anna Allir voru sak­felldir fyrir sinn part í árásinni Mynd: Sænska lögreglan

Fimm ungir menn hafa nú verið sak­felldir í máli fyrir alvar­lega lík­ams­árás en þeir voru allir með­limir í tál­beitu­hópi í Svíþjóð. Einn þeirra var einnig sak­felldur fyrir barnaklám.

Í febr­úar voru fimm­menn­ing­arnir hand­teknir grun­aðir um lík­ams­árás og að hafa afhjúpað mann sem barn­a­níð­ing í Örnsköld­svik í Norður-Svíþjóð.

Aðeins nokkrum dögum áður höfðu þeir sótt um að ganga til liðs við hinn ofbeld­is­fulla tál­beitu­hóp „Pedo Hunting Sweden“ sem á íslensku gæti útleggst sem Barn­a­níð­ings­sveiðar í Svíþjóð.

Við rann­sókn máls­ins komu þó upp grun­semdir gagn­vart einum árás­armann­anna. Hann var grun­aður um að hafa tekið upp mynd­bönd af nokkrum stúlkum í sturtu­klefa í skóla þar sem hann starf­aði.

„Það var aug­ljóst að það hafði verið myndað í leyf­is­leysi. Á mynd­bönd­unum sáust ungar stúlkur, yngri en 15 ára,“ segir lög­reglu­mað­ur­inn Robin Govik sem vann að rann­sókn­inni.

Úr sturtu­klef­anumMaðurinn var sak­felldur fyrir að taka ljós­myndir af ungum stúlkum í sturtu­klefa grunn­skóla

Upp­tök­urnar reynd­ust hafa verið teknar sex mán­uðum eftir að hann sótti um að ganga í Pedo Hunting Sweden.

Nú hefur hann verið sak­felldur fyrir nokkur brot tengd lík­ams­árásum sem og fyrir barnaklám og ósið­sama ljós­myndun. Hann var dæmdur í þrjú ár og þrjá mán­uði í fang­elsi.

Allir sakfelldir

Málið hófst í lok maí á síð­asta ári þegar maður var beittur ofbeldi á flug­stöð í Örnsköld­svik.

Ger­end­urnir, sem von­uð­ust til að verða teknir inn í „Pedo Hunting Sweden“, tóku árás­ina upp og opin­ber­uðu mann­inn sem barn­a­níð­ing á sam­fé­lags­miðlum.

Tál­beit­urnarMenn­irnir hlutu 1-2 ára fang­els­is­dóma fyrir lík­ams­árás­ina

Þegar þeir voru hand­teknir nokkrum mán­uðum síðar kom í ljós að þetta voru fimm ungir menn úr sama vina­hópi. Samkvæmt lög­reglu komu nokkrir þeirra úr ofbeld­isum­hverfi.

„Þeir hafa tengsl við ofbeld­is­menn­ingu á meðal stuðn­ings­manna­hópa og hafa tekið þátt í skipu­lögðum slags­málum,“ segir í rann­sókn­ar­gögnum.

Fjórir sak­born­ing­anna voru nú dæmdir fyrir alvar­lega lík­ams­árás og hljóta þeir fang­els­is­refs­ingar á bil­inu eitt ár til rúm­lega tvö ár. Sá yngsti, 17 ára drengur, var sak­felldur fyrir að hafa afhjúpað mann­inn á sam­fé­lags­miðlum og verður lát­inn taka út refs­ingu á ung­linga­heim­ili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco