Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lögfræðinemi segir frá niðurlægingu á árshátíð Lögréttu

„Ég var punchline á 300 manna við­burði fyrir nem­endur laga­deild­ar­innar.“

Lögfræðinemi segir frá niðurlægingu á árshátíð Lögréttu
Tinna Rún Jón­as­dóttir Tinna Rún upp­lifði nið­ur­læg­ingu Mynd: Aðsend

Tinna Rún Jón­as­dóttir lög­fræði­nemi birti mynd­band á TikTok þar sem hún segir frá nið­ur­læg­ingu sem hún varð fyrir á árs­há­tíð Lögréttu, félags laga­nema við Háskól­ann í Reykja­vík þann 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í mynd­skeið­inu seg­ist Tinna hafa fengið skila­boð frá sam­nem­anda sínum nokkrum dögum fyrir árs­há­tíð­ina þar sem hún var spurð hvort það mætti sýna eft­ir­far­andi mynd­band á árs­há­tíð­inni. Mynd­bandið sýndi dreng herma eftir TikTok-mynd­bandi Tinnu en hún tók vel í þetta. Það sem hún vissi hins vegar ekki var að þetta yrði eina mynd­bandið sem yrði notað í atrið­inu.

„Það sem ég vissi ekki var það að þetta var eina víd­eóið sem var sýnt og það var ekk­ert meira,“ segir Tinna í mynd­band­inu og heldur áfram: „Þetta var loka­at­riðið í dag­skránni. Ég var eitt­hvað svona punchline á 300 manna við­burði fyrir nem­endur laga­deild­ar­innar.“

Tinna seg­ist hissa á að fólk eigi að hlæja af mynd­bandi sem gerir grín að henni þar sem hún er að vera hún sjálf og hafa gaman.

„Pælið í því að við erum í alvör­unni á þeim stað að vera að rakka niður fólk bara fyrir að vera það sjálft,“ segir Tinna enn­fremur í mynd­band­inu. „Mér finnst þetta bara svo ruglað. Ég hélt í alvör­unni að á þriðja ári í lög­fræð­inni myndi ég ekki lenda í svona public humiliation“.

Mannlíf ræddi við Tinnu Rún um málið en hún seg­ist hafa búist við að grín­mynd­bandið yrði hluti af stærra mynd­bandi með fullt af gríni en raunin hafi verið sú að aðeins þetta mynd­band var sýnt.

Mynd­bandiðHið téða árs­há­tíð­ar­mynd­band

Segir hún að sam­kvæmt vin­konum hennar sem voru á árs­há­tíð­inni hafi mynd­band­inu ekki verið tekið vel af gestum hátíð­ar­innar.

„Samkvæmt vin­konum mínum þá var eig­in­lega dauða­þögn í salnum þegar mynd­bandið var sýnt nema að ein­hverjir úr stjórn­inni hefðu hlegið, ekki veit ég af hverju. Og margir voru bara stuð­aðir. Ég veit alveg um nokkra sem fóru fólki í stjórn Lögréttu og skemmtó og spurðu hvað væri í gangi.“

Tinna seg­ist hafa ekki fengið skila­boð frá for­manni Lögréttu fyrr í gær með „ein­hvers­konar afsök­un­ar­beiðni, þrátt fyrir að margir hafi kvartað beint eftir árs­há­tíð­ina.“ Í afsök­un­ar­beiðn­inni, sem Mannlíf hefur séð, er tekið fram að vegna tækni­legra vand­ræða á árs­há­tíð­inni og því hafi aðeins verið hægt að sýna seinni helm­ing árs­há­tíð­ar­mynd­bands­ins.

Í skrif­legu svari til Mannlífs seg­ist stjórn Lögréttu vera „miður“ sín vegna „upp­lif­unar“ Tinnu.

„Mynd­bandið sem um ræðir var hluti af lengra árs­há­tíð­ar­mynd­bandi og var á engan hátt eina mynd­bandið sem var sýnt. Við erum miður okkar að þetta hafi verið hennar upp­lifun, en við fengum ítrekað og skýrt sam­þykki fyrir birt­ingu mynd­bands­ins. Ætlunin var aldrei að láta neinum líða illa og við höfum komið því á fram­færi við við­kom­andi.“

Þegar Mannlíf bar þessi orð undir Tinnu sagð­ist hún vera hissa, þar sem að sögn vina hennar sem voru á árs­há­tíð­inni, voru nokkrar glærur sýndar með mynd­band­inu af henni. Tinna sendi svo eft­ir­far­andi svar á Mannlíf:

  1. Glæru­kynn­ing er ekki árs­há­tíð­ar­mynd­band.
  2. Ég er ekki með­limur í Lögréttu og þetta fólk er ekki vinir mínir og þau heilsa mér ekki á göng­unum - og ég var ekki á staðnum þegar mynd­bandið var sýnt.
  3. Upp­haf­lega stóð til að hafa "feitan kall" á mynbandinu en þau ákváðu að hafa mig í stað­inn. Þetta er eitt­hvað sem ég fékk að vita eftir á, frá mann­eskju innan úr stjórn­inni.
  4. Ég sam­þykkti ekki að vera með eina vid­eoið heldur að vera partur af árs­há­tíð­ar­víd­eói sem var ekki sýnt.
  5. Þau fóru sér­stak­lega inn á mína miðla til að finna mynd­band af mér sem þeim fannst nógu hall­æris­legt til að birta. Afhverju ég? Afhverju völdu þau mig til að nota í þessu efni?
  6. Það segir alla sög­una að fólk í salnum hafi ekki hlegið og að þau hafi fengið kvart­anir en ekki látið mig vita.
  7. Eina ástæðan fyrir því að ég vissi af þessu var að vinir mínir fóru að tékka á mér af því að þeim var bæði brugðið og mis­boðið og áttu erfitt með að trúa því að ég hefði sam­þykkt svona nið­ur­lægj­andi efni.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum