Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ferðaðist til Bandaríkjanna með það í huga að láta drepa sig

Sonia Exelby er talin hafa séð eftir öllu en það var of seint.

Ferðaðist til Bandaríkjanna með það í huga að láta drepa sig
Sonia Exelby Sonia mætti örlögum sínum í Florida Mynd: Facebook-skjáskot

Bresk kona, sem var myrt, er sögð hafa ferð­ast til Banda­ríkj­anna með þann til­gang að láta karl­mann, sem hún kynnt­ist á blæt­isvef­síðu, drepa sig.

Sonia Exelby, 32 ára, frá Portsmouth, lenti á Gaines­ville-flug­velli í Flórída 10. októ­ber og snéri ekk til baka í heim­flugið þremur dögum síðar. Lík hennar fannst í grunnri gröf í skógi í Marion-sýslu, norð­vestur af Orlando, viku eftir kom­una til Flórída.

Vinur Soníu birti ákall á sam­fé­lags­miðlum og bað hana að koma heim, þar sem ótt­ast var að hún hefði lent „í afar við­kvæmri stöðu“. Í færsl­unni, sem birt var á Instagram, sagði:„Sonia er mjög við­kvæm mann­eskja og á erfitt með and­lega heilsu sína. Við teljum að hún hafi farið í flug á föstu­dag­inn og komið sér til Tallahassee í Flórída frá Bret­landi. Við teljum að hún hafi skipu­lagt að hitta ein­hvern þar og hafi lent í afar við­kvæmri og hættu­legri stöðu. Það er í raun allt sem ég get sagt.“

Bresk yfir­völd höfðu sam­band við Rann­sókn­ar­lög­reglu Flórída í gegnum INTERPOL, alþjóð­legt sam­starf lög­reglu. Samkvæmt rann­sókn­ar­skýrslum töldu þau að Sonia hafi glímt við and­leg veik­indi og verið í sjálfs­vígs­hættu.

Talið er að hún hafi ferð­ast til Flórída til að hitta mann sem að sögn ætl­aði að drepa hana á ofbeld­is­fullan hátt. Rann­sókn­ar­lög­reglan hand­tók Dwain Hall, 53 ára, eftir að hægt var að tengja hann við færslur sem voru sagðar hafa verið gerðar með kredit­kortum Soniu.

Dwain HallHall á yfir höfði sér þungan dóm

Lög­reglan sagði Hall hafa sótt Soniu á flug­völl­inn og farið með hana í Airbnb-íbúð í Reddick. Í skýrslum kemur fram að Hall hafi upp­haf­lega sagt lög­reglu margar mis­mun­andi sögur áður en hann við­ur­kenndi að hafa fyrst haft sam­band við Soniu á blæt­isvef­síðu fyrir tveimur árum.

Hall sagð­ist að sögn hafa vitað að hún væri í sjálfs­vígs­hug­leið­ingum og vildi láta drepa sig. Hann lýsti sjálfum sér sem leið­bein­anda sem ætl­aði að hjálpa henni en ekki drepa hana, sam­kvæmt hand­töku­skýrslu sem sjón­varps­stöðin TV20 fékk.

Sá grun­aði við­ur­kenndi einnig að hafa ofbeld­is­hneigðir. Hann sagð­ist hafa stundað kyn­líf með henni nokkrum sinnum og tekið upp vídeó af henni sem hann eyddi síðar.

Myndband sem lög­regla fékk sýnir Soniu með mar­bletti á lík­ama sínum, þar sem Hall á að hafa spurt hana hvers vegna hún væri þarna. Hall þrýsti á hana til að fá sam­þykki hennar fyrir að verða fyrir meið­ingum.

Rann­sak­endur sögðu að fram­koma Soniu í mynd­band­inu virt­ist hik­andi, hún hafi greini­lega verið stressuð og sorg­mædd, en kinkað kolli.

Í rann­sókn­inni kom einnig fram skila­boð sem Sonia er sögð hafa sent vin­konu sinni í gegnum Discord 11. októ­ber.

Frekari skila­boð frá Soniu sýndu að hún taldi að mis­tök hefðu verið gerð. Rann­sak­endur sögðu að skila­boðin „sýndu að Hall réði yfir henni, að hún væri hrædd og að hún hefði gert mis­tök.“

Hún virð­ist hafa tjáð sig með eft­ir­sjá á meðan hún var í Airbnb:
„Hann gerði ljóst að það væri engin leið út nema að ég skjóti hann. Ég var að efast í gær­kvöldi ... ég hélt að hann myndi gera það fljótt og ekki gefa mér tíma til að hugsa.“

Lík fannst síðar í skógi í Marion-sýslu og fingraför pössuðu við Soniu. Skófla sem fannst í bíl­skúr Hall reynd­ist vera með DNA Soniu.

Krufning leiddi í ljós að Sonia hafði verið stungin fjórum sinnum með hnífi. Rann­sak­endur komust að því að Hall hefði sent pakka til vinar í Ohio eftir dauða Soniu. Yfirvöld í Ohio fundu hníf í pakk­anum sem var sagður með blóði á og grunur var um að það væri DNA Soniu.

Dwain Hall hefur verið hand­tek­inn og ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu, mann­rán, kredit­korta­svik og ólög­leg notkun á fjar­skipta­tæki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco