Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ævar sigrar bókamarkaðinn

Met­sölu­höf­undur síð­ustu ára, Arnaldur Ind­riða­son, kemur fast á hæla hans.

Ævar sigrar bókamarkaðinn
Arnaldur Ind­riða­son Er með mest seldu bók­ina í nóv­em­ber. Mynd: Forlagið

Bók Ævars Þórs Bene­dikts­sonar, Skóla­stjór­inn, hefur náð þeim árangri að vera mest selda bók lands­ins í nóv­em­ber, rétt eins og í októ­ber. Þetta kemur fram í nýjum bók­sölu­lista Félags íslenskra bóka­út­gef­enda.

„Við munum ekki eftir að þessi staða hafi komið upp áður og þetta sýnir alla­vega gríð­ar­legar vin­sældir Ævars,“ segir Sig­þrúður Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins. „Hann er líka búinn að fara um allt land til að lesa úr bók­inni og er um leið ötull tals­maður barna­bóka og lest­urs.“

Skóla­stjór­inn er mynd­skreytt af Elínu Elísabet Ein­ars­dóttur. Hún fjallar um 12 ára vand­ræða­geml­ing sem sækir um stöðu skóla­stjóra í gríni. Svo fer að hann ræður ríkjum í skól­anum með bestu vin­konu sinni.

Arnaldur annar

Á hæla Skóla­stjóra Ævars fylgir spennu­sagna­höf­und­ur­inn Arnaldur Ind­riða­son, með bók­ina Tál, sem á því ekki að venj­ast að vera neins eft­ir­bátur í jóla­bóka­flóð­inu.

Arnaldur var með sölu­hæstu bók­ina í fyrra eins og mörg önnur ár, Ferðalok. Í nóv­em­ber í fyrra tróndi hann sjálfur á toppnum. Það árið skák­aði Arnaldur Yrsu Sig­urð­ar­dóttur með bók­ina Ég læt sem ég sofi. Í nóv­em­ber í ár situr Yrsa hins vegar í 11. sæti sölu­list­ans, nokkuð neðar en Franski spít­al­inn, eftir Katrínu Jak­obs­dóttur og Ragnar Jónsson, sem gef­inn er út af Veröld.

Arnaldur var einnig með mest seldu bók­ina árið 2023, Sælu­ríkið, en árið 2022 vék hann af toppnum fyrir Katrínu Jak­obs­dóttur og Ragnari Jónassyni, sem gáfu þá út Reykja­vík glæpa­sögu.

Arnaldur Ind­riða­sonMesti met­sölu­höf­undur Íslands er í öðru sæti á bók­sölu­list­anum.

Arnaldur er gef­inn út af For­lag­inu, stærstu bóka­út­gáfu lands­ins, rétt eins og Skóla­stjóri Ævars Þórs, en Yrsa af Veröld.

Svo virt­ist sem Yrsa ætl­aði að hafa betur í upp­hafi jóla­bóka­flóðs­ins, þar sem hún sat ofar en Arnaldur á bók­sölu­lista Pennans. Arnaldur tróndi hins vegar á toppnum í sölu hjá Bónus í lok mán­að­ar­ins.

Sölu­listi nóv­em­berEins og síð­ustu ár koma barna­bæk­urnar sterkt út og Birgitta Haukdal þar með tvær bækur.

Nýr metsöluhöfundur

Ævar Þór Bene­dikts­son, sem er fæddur árið 1984, er útskrif­aður leik­ari frá Lista­há­skóla Íslands. Hann hefur síðan leikið bæði á sviði og í sjón­varps­þáttum en einnig fram­leitt sitt eigið efni fyrir útvarp og sjón­varp, meðal ann­ars undir merkjum Ævars vís­inda­manns. Fyrsta bók Ævars var smá­sagna­safnið Stór­kost­legt líf herra Rósar og fleiri sögur af ótrú­lega venju­legu fólki, sem kom út árið 2010. Frá þeim tíma hefur hann ein­beitt sér að barna- og ung­linga­bókum og er einn vin­sæl­asti og afkasta­mesti höf­undur lands­ins á því sviði með á fjórða tug verka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu