Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kona berst fyrir lífi sínu eftir að kveikt var í henni í Dyflinni

„Hún átti þetta ekki skilið“

Kona berst fyrir lífi sínu eftir að kveikt var í henni í Dyflinni
Alexis Lee Campion Óvíst er hvort Alexis lifi árás­ina af Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fjöl­skylda Alexis Lee Campion, sem átti að halda upp á 44 ára afmælið sitt í dag, hefur stigið fram og tjáð sig tveimur vikum eftir hrylli­lega árás á heim­ili hennar í Oak Downs, Clondalkin í vest­ur­hluta Dyfl­innar.

Alexis opn­aði úti­dyrnar fyrir árás­armanni sem skvetti yfir hana eld­fimu efni og kveikti í henni. Hún liggur nú á gjör­gæslu á Tallaght-sjúkra­hús­inu með nær þriðja stigs bruna­sár á meg­in­hluta lík­am­ans og er í mjög alvar­legu ástandi.

Aðstand­endur hennar, sem vilja ekki láta nafns síns getið, hafa lýst hræði­legum afleið­ingum árás­ar­innar. Andlit Alexis er orðið óþekkj­an­legt, meg­in­hluti lík­am­ans er vaf­inn í sára­um­búðir og henni hefur verið haldið sof­andi, að því er Irish Mirror greinir frá.

Einn fjöl­skyldu­með­limur, sem hefur vakað yfir Alexis á sjúkra­hús­inu, sagði árás­ina „mjög hættu­lega og djöf­ul­lega aðför“.

„Hún var svo fal­leg stúlka og allt líf hennar er nú í rúst. Hún mun aldrei verða sú sama,“ sagði hann.

„Við áttum aldrei von á að þetta myndi þró­ast svona. Hún var að reyna að ná sér á strik og svo ger­ist þetta. Hún hefur gengið í gegnum allt og nú er hún enn í mjög hættu­legri stöðu. Hún er enn á gjör­gæslu og okkur er sagt á hverjum degi að hún sé í mik­illi sýk­ing­ar­hættu, að hún þurfi marg­vís­legar húðígræðslur, hún er með 35 pró­sent bruna­sár, næstum þriðja stigs, og þau hafa brunnið í gegnum húð­ina.“

„Andlitið er mjög illa farið og hún er óþekkj­an­leg. Hún fékk svo mik­inn skaða, í and­lit­inu, háls­inum, brjóst­unum, hand­legg­inn, fót­legg­ina, aftan á fót­unum. Mikið tjón hefur orðið,“ sögðu þau. Þau bæta við að Alexis sé haldið sof­andi og þau viti ekki hvort hún muni nokkru sinni sjá eða ganga aftur, ef hún lifir af.

„Ég veit ekki hvort hún muni sjá aftur, eða tala. Henni er haldið sof­andi. Hún vaknar öðru hvoru og þá er hún svæfð aftur, því þau vilja ekki að hún finni fyrir sárs­auka og gefa lík­am­anum tæki­færi til að gróa.“

Fjöl­skyldan segir Alexis vera „góða mann­eskju“ sem hafi lent í aðstæðum sem hún átti engan þátt í, en hafi nú greitt verðið. Annar fjöl­skyldu­með­limur sagði lækna hafa varað við því að hún gæti dáið.

„Lækn­arnir hafa sagt okkur að hún gæti mögu­lega ekki lifað af. Hún gæti aldrei gengið út af sjúkra­hús­inu. Í augna­blik­inu eru húðígræðslur reyndar að reyna að bjarga augum hennar, nefi og munni. Við höfum verið hjá henni allan tím­ann. Hún vaknar en hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir þurfa að svæfa hana aftur. Hún er vafin umbúðum frá toppi til táar. Ef hún lifir þetta af mun hún þurfa aðstoð allan sól­ar­hring­inn.“

Fjöl­skyldan skilur ekki hvernig árás­ar­menn­irnir, sem eru taldir tengj­ast stað­bundnum fíkni­efna­hóp, gangi enn lausir.

„Ég skil ekki hvernig þeir geta gengið um göt­urnar eftir að hafa gert svona. Hún er enn í lífs­hættu og við verðum að vona það besta.“

Annar fjöl­skyldu­með­limur bætti við:

„Fyrst var mér sagt að hún væri látin, og svo var mér sagt hvað hafði gerst. Ég var nið­ur­brotin. Ég hugsa stöðugt um árás­ina og hversu grimmd­ar­leg hún var. Ég skil ekki hvernig nokkur getur gert svona ungu kon­unni.“

Í fréttum fyrir tveimur vikum kom fram að kær­asti Alexis, Francis Maguire (49), dæmdur inn­brots­þjófur, hafi senni­lega verið aðal skot­mark stað­bund­ins fíkni­efna­hóps. Sama glæpa­gengi reyndi að skvetta eld­fimu efni yfir Maguire, sem náði að forða sér. Hann reyndi síðan að bjarga Alexis með því að slökkva eld­inn með berum höndum og brennd­ist sjálfur.

Degi áður höfðu nokkrir menn komið að húsi Maguire og sögð­ust vitni hafa séð hnífa á þeim. Gardaí (írska lög­reglan) voru kölluð til, en engin form­leg kæra lögð fram. Heim­ildir segja árás­ina vera part af stór­felldu og stig­vax­andi ofbeldi eftir mörg minni­háttar atvik á heim­il­inu síð­ustu ár.

Einhver nágranni greindi frá að fyrir nokkrum árum hafi verið skotið á húsið.

„Þetta er mjög sorg­legt. Það hafa verið ýmis atvik en aldrei neitt svona. Hún átti þetta ekki skilið,“ sagði nágranni.

Málið hefur verið harð­lega for­dæmt og kallar sveit­ar­stjórn­ar­maður eftir því að málið verði rann­sakað sem morð­til­raun. William Joseph Carey, sveit­ar­stjórn­ar­maður Sinn Féin sem býr nálægt árás­ar­staðnum, sagði:

„Þetta er morð­til­raun og það á að rann­saka það sem slíka. Íbúar eru í sjokki. Sumir heyrðu öskrin og sáu afleið­ing­arnar. Það er mikið áfall.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco