Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dómsmálaráðuneytið birti falskt myndband af meintu sjálfsvígi Epstein

Sam­sær­is­kenn­ingar um and­lát barn­a­níð­ings­ins lifa góðu lífi

Dómsmálaráðuneytið birti falskt myndband af meintu sjálfsvígi Epstein
Jeffrey Epstein Margir telja Epstein hafa verið myrtan

Banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið birti á mánu­dag mynd­band sem virt­ist sýna end­ur­gerð á sjálfs­vígi Jeffrey Epstein í fanga­klefa hans á Man­hattan, og setti sam­fé­lags­miðla í upp­nám þar til í ljós kom að upp­takan var fölsuð.

Mynd­bandið birt­ist án skýr­inga á vef ráðu­neyt­is­ins sem hluti af nýjum gögnum um Epstein-málið. Um var að ræða tölvu­gerða, 12 sek­úndna, kornótta upp­töku þar sem hvít­hærður maður í app­el­sínu­gulum fanga­bún­ingi sést berj­ast við að hengja sig við koju í fanga­klefa.

Tíma­setn­ingin á skjánum var 4:29 að morgni 10. ágúst 2019, tveimur klukku­stundum áður en lík Epstein fannst í klef­anum í Metropolitan Correctional Facility.

Atburða­rásin í mynd­band­inu virt­ist líkj­ast þeirri sem rann­sókn­ar­að­ilar töldu að hefði átt sér stað, en strax fóru að sjást mein­bugir: app­el­sínugula fanga­bún­inga­hrúgan á gólf­inu virt­ist án áferðar og hurðin að klef­anum pass­aði ekki við þá sem var í lok­aða klefa Epstein.

Síðar sama dag kom í ljós í öðrum gögnum að upp­takan væri upp­runa­lega fals­mynd­bandið sem hafði gengið um á 4chan og hefði verið merkt rann­sókn­ar­að­ilum af sam­sær­is­kenn­inga­manni frá Flórída.

Emb­ætt­is­maður í rík­is­stjórn Trumps stað­festi síðar við The New York Post að mynd­bandið væri algjör­lega falsað og hefði lengi verið aðgengi­legt á YouTube. Það var fjar­lægt af vef ráðu­neyt­is­ins á mánu­dag.

Birting þess hafði þó þegar kveikt mik­inn áhuga á net­inu og margir töldu að loks hefðu komið fram raun­veru­legar upp­tökur af dauða Epstein.

Slíkt hefði gengið þvert gegn opin­berri frá­sögn rann­sak­enda, sem hefur alla tíð verið sú að eft­ir­lits­mynda­vélar við klefa Epstein hafi bilað um nótt­ina og því væri ekk­ert mynd­band til. Þessi skortur á upp­tökum hefur verið einn helsti elds­neyt­is­gjafi sam­sær­is­kenn­inga um að Epstein hafi verið myrtur.

Olíu var bætt á eld­inn fyrr á árinu þegar fyrsti hluti Epstein-gagn­anna var birtur en þar kom fram upp­taka frá gang­inum fyrir utan klefa hans nótt­ina sem hann lést, en mín­útu vant­aði rétt fyrir mið­nætti. Dóms­mála­ráðu­neytið full­yrti að ekk­ert óeðli­legt hefði gerst og birti síðar útgáfu sem sýndi að þarna var um tækni­legt end­ur­inn­rit­un­ar­ferli að ræða, ekki yfir­hylm­ingu. Margir bentu þó á ýmis­legt sem þótti grun­sam­legt við upp­tök­urnar, meðal ann­ars að til­vist hennar gengi í ber­högg við þá stað­hæf­ingu að mynda­vél­arnar í fang­els­inu hefðu bilað rétt fyrir and­lát Epsteins.

Epstein hafði áður verið settur í sjálfs­vígs­eft­ir­lit en var tek­inn af því. Hann átti að hafa klefa­fé­laga, en sá var fluttur dag­inn fyrir and­látið. Tveir fanga­verðir sem áttu að fylgj­ast með Epstein voru sof­andi og fölsuðu síðan skýrslur til að hylma yfir mis­tök sín.

Lög­fræði­leg dán­ar­or­sök var talin vera sjálfs­víg með heng­ingu. Óháð krufn­ing, skipuð af bróður Epstein, hélt því aaftur á móti fram að brot á hálsi hans bentu frekar til þess að hann hefði verið kyrktur með höndum.

Banda­ríska þingið sam­þykkti í nóv­em­ber að öll Epstein-gögnin yrðu gerð opin­ber og Donald Trump, sem hafði skipt um skoðun eftir end­ur­kjör, und­ir­rit­aði lögin innan nokk­urra daga. Birting gagna hófst í síð­ustu viku og hefur varpað ljósi á fjölda ljós­mynda, meðal ann­ars á óhugn­an­legar myndir af Epstein í nánd við mjög ungar stúlkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco