Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Byltingarkennt bóluefni gegn lungnakrabbameini verður prófað á mönnum næsta sumar

„Gögnin líta virki­lega, virki­lega vel út. Skilaboð mín til krabba­meins: Við erum á leið­inni.“

Byltingarkennt bóluefni gegn lungnakrabbameini verður prófað á mönnum næsta sumar
Bólu­setn­ing Innan ára­tugs gæti verið komið bólu­efni gegn krabba­meini Mynd: Shutterstock

Breskir vís­inda­menn telja að bólu­efni sem gæti komið í veg fyrir krabba­mein gæti orðið að veru­leika innan næsta ára­tugar.

Klínískar til­raunir á bólu­efni sem ætlað er að koma í veg fyrir lungna­krabba­mein eiga að hefj­ast á næsta ári. Unnið er að frek­ari bólu­efnum sem gætu stöðvað þróun brjósta-, eggja­stokka- og ristil­krabba­meins í lík­am­anum.

Áformin gera ráð fyrir að breskir vís­inda­menn sam­eini þessi bólu­efni í eina and-krabba­meins sprautu sem ung­menni gætu fengið ókeypis á breska heil­brigð­is­kerf­inu (NHS) þegar þau heim­sækja heim­il­is­lækn­inn.

Talið er að þetta bólu­efni gæti hugs­an­lega bjargað allt að 3,6 millj­ónum manns­lífa á heims­vísu ár hvert, en svo margir deyja árlega af alvar­leg­ustu teg­undum krabba­meins. Þá gæti það lengt með­al­ævi manna.

Það gæti einnig losað mik­il­væg heil­brigðis­út­gjöld sem nýt­ast í bar­átt­unni við aðra mann­skæða sjúk­dóma, svo sem heila­bilun og hjarta- og æða­sjúk­dóma. Þessi stór­kost­lega nýsköpun er leidd af vís­inda­mönnum við Háskól­ann í Oxford, að því er Daily Star greinir frá.

Verk­efnið nýtur stuðn­ings NHS, Cancer Research UK, spænsku CRIS Cancer Foundation og fjöl­margra stórra lyfja­fyr­ir­tækja.

Sarah Blagden, lækna­vís­inda­maður og pró­fessor í til­rauna-krabba­meins­lækn­ingum við Oxford, greindi frá þessum miklu fram­förum í Channel 4 heim­ild­ar­þátt­unum Cancer Detectives: Finding the Cures.

Sarah BlagdenBlagden er bjart­sýn á verk­efnið

Hún sagði jafn­framt að verk­efnið gæti orðið lífs­bjarg­andi bylt­ing innan ára­tugar.

Hún lýsti fram­tíð­ar­sýn þar sem eitt bólu­efni gæti stöðvað flest helstu krabba­meinin, líkt og bólu­setn­ingar barna gegn misl­ingum, hettu­sótt, rauðum hundum, kíg­hósta og stíf­krampa. Hug­myndin kvikn­aði þegar hún hlust­aði á hlað­varp í bílnum sínum.

Í þætt­inum ræddi pró­fess­or­inn Charles Swanton, aðstoð­ar­for­stjóri Francis Crick Institute í Lundúnum, rann­sóknir sínar á því hvernig krabba­mein þró­ast í lík­am­anum og verður ónæmt fyrir með­ferð. Sarah, 56 ára, fékk hug­dettu: að rann­sóknum væri mögu­lega betur varið í að koma í veg fyrir að krabba­mein þró­ist, fremur en að með­höndla það þegar það er orðið að full­burða sjúk­dómi.

Þremur árum síðar, með hjálp hrað­virkra bólu­efna­að­ferða sem þró­uð­ust í heims­far­aldr­inum, er teymi hennar á barmi þess að kynna heim­inum bólu­efni gegn lungna­krabba­meini.

Hún segir:

„Við teljum að þetta sé fyrsta bólu­efnið sem gæti raun­veru­lega komið í veg fyrir að krabba­mein mynd­ist. Lungna­krabba­mein tekur oft meira en ára­tug að þró­ast. Það er svo­kallað for­stig, breyt­ingar á frumum áður en þær verða að krabba­meini. Við höfum hannað bólu­efni sem virkjar ónæm­is­kerfið til að eyða þessum frumum.“

Hún lýsti því hvernig hún sendi Charles Swanton skila­boð eftir að hafa hlustað á hann í hlað­varp­inu, og verk­efnið hófst í kjöl­farið:

„Okkur datt í hug að nýta stoðir COVID-bólu­efn­anna sem þró­aðar voru í Oxford og snúa þeim að krabba­meini.“

En það tók þrjár til­raunir að fá fjár­mögnun vegna þess hversu nýstár­leg hug­myndin var. Nú hefur fyrsta lota bólu­efn­is­ins verið fram­leidd í Oxford og klínísk rann­sókn verður opnuð næsta sumar.

„Við erum að vinna að fjölda bólu­efna sem koma í veg fyrir ólík krabba­mein. Mark­miðið er að sam­eina þau í eina bólu­setn­ingu sem væri gefin börnum. Þá myndi krabba­meins­hætta þeirra stór­minnka.“

Blagden segir að þetta gæti orðið að veru­leika á innan við 10 til 20 ára.

Hún segir að þetta marki stóra við­horfs­breyt­ingu í krabba­meins­lækn­ingum, þar sem áherslan hefur hingað til verið á að með­höndla sjúk­dóm­inn þegar hann hefur þró­ast:

„Við erum ekki að horfa undir yfir­borðið, á for­stigin. Þetta er tæki­færi til að stöðva krabba­mein áður en það hefst.“

Teymið starfar hraðar og sam­hæfðar en nokkur rann­sókn­ar­hópur í heim­inum á þessu sviði, segir hún.

„Við erum að reyna að búa til eitt sam­einað bólu­efni sem hægt er að gefa ungu fólki. Þetta gæti orðið bólu­efni sem nýt­ist um allan heim. Ef þetta virkar, þá verðum við að halda áfram hratt.“

Hún segir að vís­inda­menn­irnir vinni af ástríðu, knúnir áfram af mann­legum ástæðum:

„Við höfum öll misst ein­hvern úr krabba­meini. Þetta kemur frá okkur sjálfum, ekki lyfja­fyr­ir­tækjum. Okkur langar að hafa áhrif, breyta ein­hverju.“

Rann­sóknir þeirra benda til mjög efni­legra nið­ur­staðna:

„Gögnin líta virki­lega, virki­lega vel út. Skilaboð mín til krabba­meins: Við erum á leið­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco