Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Næst kemur svo röðin að Íslandi“

Illugi Jök­uls­son hefur áhyggjur af Banda­ríkja­mönnum

„Næst kemur svo röðin að Íslandi“
Ísland Er Ísland næst?

Illugi Jök­uls­son, rit­höf­undur og fjöl­miðla­maður, varar við ásækni banda­rískra stjórn­valda í Grænland og segir að málið snú­ist ekki um örygg­is­hags­muni heldur yfir­ráð og auð­lindir.

Í færslu á Facebook segir Illugi að full­yrð­ingar Banda­ríkja­manna um að þeir „þurfi Grænland“ til að tryggja eigið öryggi stand­ist ekki skoðun. Að hans mati geti Banda­ríkin gætt allra sinna örygg­is­hags­muna á svæð­inu án þess að taka yfir eyj­una.

„Banda­ríkja­menn þykj­ast „þurfa Grænland“ til að vernda öryggi sitt. Það er þó deg­inum ljós­ara að allra sinna örygg­is­hags­muna á svæð­inu geta þeir gætt án þess að „taka yfir“ Grænland,“ skrifar Illugi.

Hann bendir jafn­framt á að bæði Danir og Græn­lend­ingar myndu að hans mati sýna sam­starfsvilja varð­andi auk­inn varn­ar­mátt á eyj­unni.

„Bæði Danir og Græn­lend­ingar myndu án efa leyfa þeim að auka varn­ar­mátt sitt á eyj­unni stóru meira og minna eins og þeim sýn­ist,“ segir hann.

Illugi telur að raun­veru­legar ástæður áhuga Banda­ríkj­anna á Græn­landi séu aðrar og alvar­legri. Hann segir málið snú­ast ann­ars vegar um auð­lindir og hins vegar um valda­stöðu gagn­vart Evrópu.

„Belg­ingur Banda­ríkja­manna í garð Græn­lands og Græn­lend­inga snýst því aug­ljós­lega ekki um örygg­is­hags­muni, heldur ann­ars vegar um að stjórnin í Mar-a-Lago ætlar að kasta eign sinn á auð­lindir Græn­lend­inga og hins vegar er verið að sýna Dönum og Evr­ópu­mönnum hver ræður,“ skrifar Illugi.

Að lokum varar hann við því að Ísland gæti orðið næsta skref í þess­ari þróun.

„Næst kemur svo röðin að Íslandi. Höfum það á hreinu.“

Færslan hefur vakið athygli en þegar þessi orð eru rituð hafa 244 líkað við færsl­una og hefur henni verið deilt 33 sinnum. Lang­flestir þeirra sem skrifa athuga­semd við færsl­una eru sam­mála Illuga en einn þeirra er afar ósam­mála en það er Krist­björn Helgi Björns­son, sagn­fræð­ingur og fram­halds­skóla­kenn­ari. Hann skrifar: „Hvaða bull er þetta? Næst kemur röðin að Ísland?? Nei!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð